Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Blaðsíða 69

Eimreiðin - 01.05.1914, Blaðsíða 69
i45 vonum að Einar hafi í næsta leikriti náð sömu snildartökum á með ferðinni og í smásögunum, H. Th. GUNNAR GUNNARSSON: SÖGUR. Rvík x9i2. Þetta er ekki stórt kver, en í því eru þó io sögur. f’ær eru allar stuttar, einmitt eins og fólkið helzt vill hafa þær. Og þótt þær máske beri þess nokkur merki, að þær séu eftir ungt skáld, eftir byrj- anda, þá eru þær allar læsilegar og vel frambærilegar í alla staði. En auðvitað eru þær ekki allar jafnar að gæðum. Beztar þeirra eru »Sporður« (hestsnafn), »Rauði fossinn«. »Augu dauðans« og »Bónorð Geirs«, fjörug gamansaga, sem hefir tekist mætavel. Höf. ætti að skrifa fleiri í þeinx stíl; það yrði eflaust vel þegið. Og svo ættu hin stærri og fullkomnari verk hans að koma sem fyrst út á íslenzku. V G. f’ÚSUND OG EIN NÓTT. Arabiskar sögur. III—IV. íslenzk- að hefir Stgr. Ihorsteinsson. 2. útg. endurskoðuð. Rvík 1912—1913. Hún er nú öll út komin í annað sinn (öll fjögur bindin) þessi frægasta æfintýrabók heimsins. Og hún verður keypt og hún verður lesin, bókin sú; á því er enginn vafi. Okkur, sem nú erum á fullorð- ins-skeiðinu og munum, hve sólgnir við vorum í þessar sögur á barns- aldrinum og hve mikla nautn og unað við höfðum af lestrinum, — okkur er það að minsta kosti óskiljanlegt, ef ekki verður handagangur í öskjunni hjá æskulýðnum uppvaxandi til að krækja sér í eitt eintak af þessum óviðjafnanlegu sögum, þegar þær nú loksins eru orðnar fá- anlegar aftur. Og það er svo sem ekki æskan ein, sem hefir yndi af þeim, heldur líka fullorðna fólkið; allir, jafnt gamlir sem ungir, hljóta að hafa skemtun af þeim óendanlega hugmynda-auði, æfintýra-undrum og kynjasögum, sem »Þúsund og ein nótt« hefir á borð að bera. Og þar sem öll bókin skiftist í ótal smásögur, er hún hverri bók ann- arri hentugri til upplestrar á kvöldvökum eða til að grípa niður í í frí- stundum sínum. Og auk nautnarinnar er fleira á henni að græða. Hún fræðir og mentar og frjóvgar andann, og hún kennir manni lip- urt og fallegt mál í hinni snildarlegu þýðingu Stgr. Th. V. G. STEFÁN STEFÁNSSON: PLÖNTURNAR. Kenslubók í grasa- fræði. Með 252 myndum. Bókaverzlun Gyldendals. Khöfn 1913. 166 bls. Bókar þessarar hefir þegar verið minst í blöðum og tímaritum, og það er því ef til vill að bera í bakkafullan lækinn, að fara að minnast hennar hér. Ég get þó ekki stilt mig um að rita nokkrar línur um hana, af því að efnið er mér svo nákomið. Höf. getur þess í formálanum, að »Plönturnar« sé sniðnar eftir »Plantelivet«, kenslubók eftir hinn nafnkunna grasafræðing og ágæta kennara prófessor Eug. Warming. Bók Warmings má telja meðal hinna helztu kenslubóka í grasafræði. Hún lætur sér ekki nægja að eins að lýsa sköpulagi jurtanna, heldur bendir og á samræmið milli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.