Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Page 6

Eimreiðin - 01.05.1914, Page 6
82 tegundar, en þaö, sem upp vex, annarrar. Aöferð þessi er nálega eingöngu notuð við trjákendar plöntur, og hepnast eigi nema á skyldum tegundum, og verður sú planta, sem á annarlegri rót vex, varla jafngömul og ella. Viðkvæmar tegundir má láta vaxa í lélegri jarðvegi og kald- ara loftslagi, en þær eiga að venjast, með því, að láta þær vaxa á rótum harðgerðari tegunda. T. d. eru steinfíkjur látnar vaxa á plómu-rótum hér í Danmörku. Kirsiberjatré þrífast illa, þar sem jarðvegurinn er leirkendur, og eru þau því, þar sem jarðvegurinn er þannig, látin vaxa af rótum af mahahaleb, sem þolir leirkenda jarðveginn. Sumar perutréstegundir bera betri ávöxt, þegar þau vaxa á kveðurót o. s. frv. Pað er heil fræðigrein innan garðyrkju- fræðarinnar, sem segir um, á hverskonar rótum hinar ýmsu ávaxta. tegundir vaxi bezt eða verði ljúffengastar, í mismunandi jarðveg; eða loftslagi. Ágræðsla er viðhöfð til þess, að fá lágvaxin ávaxta- tré (til ræktunar í gróðurhúsum), og mörg er önnur notkun að- ferðar þessarar, sem hér yrði oflangt upp að telja. Pess má geta, að Fönikíumenn kunnu ágræðslu, og líklegast hafa Grikkir og Rómverjar einnig þekt hana. En á miðöldunum féll hún í gleymsku eða gleymdist alveg, svo sem margt annað gott á þeim tímum. fað var fyrst undir lok 17. aldar, að farið var á ný að nota hana að nokkru ráði. 8. HVAÐ PARF AÐ GERA? Við þurfum fyrst og fremst að eignast öflugar gróðrarstöðvar hér og þar um landið. Því það eitt, að rannsaka hvaða ræktar- tegundum útlendum (fóðurjurtum, matjurtum, aldinum) við getum haft gagn af, og hvaða afbrigðum hverrar tegundar má mest gagn að verða í hverjum landshluta, er geysimikið verkefni. Par við bætast svo tilraunirnar við að framleiða nýjar tegundir. Fáeina menn munum við eiga, sem færir eru um að fást við þetta, en við þurfum að eignast fleiri. Alþingi þarf því, jafnframt því að veita ríflega fé til gróðrarstöðva, að veita fararfé nokkrum efnilegum búfræðingum, til þess að kynna sér mál þetta í Svíþjóð og Danmörku. Við höfum ekki, eins og Bandamenn, ráð á að senda menn í jurtaleit til annarra landa, en þess þarf heldur ekki með, ef við erum úti um okkur. En jafnframt því og við höfum áhuga á að

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.