Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Qupperneq 16

Eimreiðin - 01.05.1914, Qupperneq 16
92 unz ég sá bse snotran, ekki stóran, því í þá daga voru ekki stórhýsi í sveitum, hvorki steinsteypu eða timburhús. Ég spurði hann, hvað sá bær héti, en hann svaraði: »Mikil óvenja, þér vitið ekkert, þessi bær heitir TandraseU. Og nú þéraði hann mig, aldrei þessu vant, þegar við vorum tvö ein, og var nú kátur. Enn bætti hann við og sagði: »Og í tilbót býr hér Jón, sem er alþingismaður, höfðingi mikill.« Nú riðum við heim á bæinn og stigum af baki, og var ég reyndar fegin að fá hressingu. Hann gekk að bæjardyrum og barði með svipunni á hurðina, og óðar opnuðust dyrnar, og út kom stúlka, og bauð okkur báðum til stofu. Stofan var mjög lítil, en vel umgengin. Þar voru 2 rúm, sem bæði voru máluð blá eins og stofan og með rauðum listum. Sparlök voru fyrir báðum rúmunum, og glitofnar ábreiður yfir þeim. Borgundarhólms-klukka slóð á gólfinu, og þegar ég var að virða alt fvrir mér í þessari einkennilegu stofu, þá kom kona dálítið aldurhnigin, og segir þá Gísli við mig, að þetta sé húsfreyjan. Síðan byrjar hann á sinni gömlu romsu, og sagði við konuna: »Þessi stúlka er systur- dóttir dr. Jóns Hjaltalíns« o. s. frv. Konan kannaðist við bróður minn sálaða, því hún hafði verzlað við hann. Þá sagði ég, að við næðum seint að Stafholti, ef við stæðum hér lengi við. Þar var hugur minn allan daginn. Sagði þá Gísli: »Mikil óvenja, ég læt þar nótt sem nemur«. Þá stóð ég upp, en konan gekk fram, og kom að vörmu spori með kaffi og tvíbökur, og var það í fyrsta skifti, að ég hafði fengið þær með kaffi á þessari leið minni; og að fá með kaffi 1 þá daga, þótti nú heldur nýjung, Kaffið var ágætt, og í stórum bollum, sem voru blárósóttir. Síðan kvöddum við og fórum af stað, og var mér nú heldur i hug að halda vel áfram. Nú kom ekkert fyrir alla leið, fyr en við komum að Sólheimatungu afarseint um kveldið, hérna megin á bakkanum á Norðurá, og blasti Stafholt við hinumegin við ána, og má nærri geta, hvað mér var innanbrjósts, að komast ekki þangað um kveldið, af því ég heyrði, að Gísli fór að biðja bóndann gistingar, sem hét Guðmundur og var góður kunningi Jóns sál. bróður míns. Þegar ég heyrði þetta, þá gaf ég mig fram og heilsaði bónd- anum, og sagði, að mig langaði mjög að Stafholti í kveld, því þar byggi vinafólk mitt. Gísli byrjaði nú á sínum gamla formála: »Þessi stúlka er systurdóttir dr. Jóns Hjaltalíns« o. s. frv. Undir eins og bóndinn heyrði, að ég væri systir Jóns á Búðum, þá hætti hann vinn- unni, tekur hest og söðlar í snatri, og segist ætla að ríða við hliðina á mér yfir Norðurá, sem hann og gerði, því það var dýpsta og breið- asta áin, sem ég á þessari leið hafði farið yfir. A árbakkanum hinu- megin kvaddi ég bóndann með innilegu þakklæti fyrir hjálpina, og vel gekk yfir ána, en enga borgun mátti nefna við hann. Nú var þó hugsað um að halda áfram, og komum við að Stafholti um náttmál. Enginn var úti, þegar ég steig af baki, en þegar ég snéri mér við, var komið þrent út, karlmaður og tveir kvenmenn, og þekti ég strax mín- ar elskulegu leiksystur; Metta og Sigga voru það, og Sigurður Sæmund- sen bróðir þeirra, og alt voru þetta æsku-leiksystkin mín. Eftir að við höfðum heilsast, átti ég svo sem að koma inn, en þegar ég ætlaði inn í göngin, þá kemur blessaður prófasturinn sjálfur, síra Einar Sæmundsen, hafði þá frétt eftir á, hver komin væri, og tók á móti
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.