Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Side 25

Eimreiðin - 01.05.1914, Side 25
IOI margfaldast. Pessir berklagerlar eru, eins og aðrir gerlar, örsmáar lifandi verur, sem alstaðar sitja á fleti fyrir og menn geta hvergi verið óhultir fyrir. Það er annars langur vegur frá, að allir gerlar séu skaðsemdarskepnur; það eru að eins þeir, sem valda sjúkdómum, og það eru fæstir þeirra. Margir gerlar mega teljast hreinustu gagnjurtir, því að til jurtaríkisins eru þeir taldir vegna lifnaðar- hátta sinna. Peir eru okkur hjálplegir, eigi að eins við ýmsar nauðsynlegar efnabreytingar í líkamanum, heldur líka í ýmsum atvinnugreinum, svo sem jarðrækt og iðnaði. Peir breyta áburð- inum í nothæf efnasambönd fyrir jurtirnar, hleypa gerð í ölið, sýra rjómann á rjómabúunum, o. m. fl. vinna þeir til þarfa. Berklagerillinn er með minstu gerlum; hann sést að eins í smásjá, er stækkar mörg hundruð sinnum, og verður fyrst að lita hann. Hann þrífst bezt við líkamshita dýra (370—4O0C.); aðvísu getur hann lifað nokkuð utan líkamans, en tímgast þar getur hann ekki nema þar, sem sérstaklega er að honum hlúð, eins og á rannsóknarstofum, þar sem hann er ræktaður og alinn og hafð- ur til rannsókna. Hann þolir ekki sólarljósið nema stutta stund, en kann betur við sig í sorpi og skúmaskotum. Pegar hrákar berklaveikra manna, eða annað það, sem berklagerlar eru í, liggur og þornar, þá þyrlast gerlarnir upp í loftið, eru þar á sveimi í andrúmsloftinu og berast með loftstraumnum til og frá; því að hver andvari eða blær hefir áhrif á þessar smáverur, og oft verð- ur það þeim svo til lífs, að þær lenda ofan í menn eða skepnur. Pá lætur þeim lífið, eins og þið getið nærri. Af þessu er það auðsætt, hve háskalegt það er, að hrækja á gólfið og láta hrák- ana þorna, því að enginn getur verið viss um, að ekki séu berkla- gerlar í hrákanum, sem hann þeytir úr sér á gólflð. Hugsið ykk- ur, hve lítið þarf til þess, að eitra heilt heimili og leggja ef til vill margar manneskjur í gröfina; að ekki skuli þurfa meira til að leiða böl og óhamingju yfir ykkur sjálf, og alt ykkar heimili, en að hafa ekki nóga og góða hrákadalla á heimilinu, og gæta þess ávalt, að hafa vatn í þeim og fara eins þrifalega með þá, eins og hrákarnir væru úr berklaveiku fólki. Þetta er þó ekki nema hirðu- semi — hirðusemi og þrifnaður, er lítið sem ekkert kostar. En með hirðuleysi, drasli og óþrifnaði bökum vér oss árlega stórtjón — heilsutjón og efnatjón. Hvað segið þið t. d. um sullaveikina ? Henni væri fyrir löngu rýmt úr Iandi, ef ekki breiddi hirðuleysið og sóðaskapurinn yfir hana verndarvængi sína.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.