Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Side 36

Eimreiðin - 01.05.1914, Side 36
112 tað, sem gert hefir verið hér á landi til að stemma stigu fyrir berklaveiki, er enganveginn lítið, þegar litið er til þess, hve stutt er síðan þær tilraunir hófust. Og þótt flest af því sé frem- ur ófullkomið enn og standi til bóta, þá verður þó ekki annað sagt, en að það sé gói) byrjun. Löggjafar- og fjárveitingarvaldið hefir gefið lög um varnir gegn berklaveikinni 3/io '03, veitt fé til útgáfu berklabókarinnar og allmikinn styrk til byggingar og rekst- urs heilsuhælisins. Pá hefir verið stofnað heilsuhælisfélag (1906), sem ætlast var til, að tæki yfir land alt, og sem flestir landsbú- ar styddu. Undirtektirnar undir það voru allgóðar í fyrstu, en því miður hefir áhuginn á því sýnil. dofnað, er frá leið, og er það illafarið. En langmesta sporið, sem stigið hefir verið í þessu efni er stofnun Heilsuhælisins á Vífilstöðum. Sú stofnun verður þeim, sem fyrir henni gengust, til ævarandi sóma og landi voru og þjóð til sæmdar, enda stendur hælið okkar, að dómi fróðra manna í þeirri grein, fyllilega jafnfætis samskonar stofnunum erlendis. En það á, eins og margt annað hjá oss, erfitt með fjárhaginn, og er það satt að segja lítill sómi fyrir oss íslendinga, ef vér látum jafn- þjóðþarfa stofnun veslast upp, en eyðum árlega stórfé í glingur og glatin, sem oss er til lítilla nytja. Ef hvert heimili á landinu gæfi árlega 2 kr. til hælisins, segir G. Bj. landlæknir í blaðagrein í fyrra, þá væri fjárhag þess langsamlega borgið. Og sem betur fer, eru þau þó ekki mörg heimilin hér á landi, sem svo eru aum- lega stödd, að þau muni verulega um einar 2 kr. á ári, enda venjulega hægt að finna eitthvað til að spara við sig aftur í stað- inn, ef viljinn er nógu sterkur. Vegna þessa fjárskorts, hefir Heilsuhælið orðið að hækka meðgjöfina með sjúklingum, og er slíkt illa farið, því að fátæka sjúklinga, sem þurfa langrar hælis- vistar, munar miklu meira um 25 eða 50 aura daglega meðlags- hækkun, heldur en fátækt heimili um 2 kr. á ári. En þ'að er ekki viljann, sem almenning vantar til svona lítilla fjárframlaga, það er ég viss um, heldur brestur framgöngu og framtakssemi. Ef einn maður eða kona í hverri sveit, eða tveir, vildu leggja fram krafta sína af allri alíu), til að ná saman þessum 2 kr., þá er ég viss um, að það væri létt verk. — Látið þið sjá, sem hér eruð stödd, — bindist fyrir svona löguðum samskotum í sveitinni hjá ykkur á hverju einasta ári, og þið skuluð sjá, að það gengur greitt. Pið vinnið með því þarft og þakksamlegt guðsþakkaverk. Pað getur líka komið sú tíð, fyr eða síðar, að þið sjálf eða frænd-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.