Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Qupperneq 51

Eimreiðin - 01.05.1914, Qupperneq 51
12 7 15 sm. langt og 12 sm. breitt, er helt hálffult af kvikasilfri, og ofan í það dálítið af vínanda, til þess að hindra, að kvikasilfrið skvettist út úr fatinu eða gufi burt. Bezt er að hita kvikasilfrið dálítið, áður en það er notað til baðsins. Sjúklingurinn dýfir nú allri hendinni niður í fatið, og heldur henni þar nokkrar sekúndur eða alt upp að einni mínútu. í baðinu legst kvikasilfrið fast upp að öllum hrukkum og köntum handarinnar öllum megin, og sökum hinnar miklu eðlisþyngdar þess fær öll höndin svo jafna og fasta þrýstingu, að hún hvítnar alveg upp, verður blóðlaus. Blóðið þrýstist upp í líkamann, á líkan hátt og verður við handnuddið; en við kvikasilfurbaðið varir þrýstingin nokkru lengur, er jafnari og jafnþétt frá öllum hliðum. Sjúkdómskendir vökvar í liðamótum dreifast og þrýstast á burt, á líkan hátt og blóðið. Eftir að hönd- in er dregin upp úr baðinu, fyllast allar æðar hennar aftur með ríkulegra blóðmagni en áður. Sjúklingurinn er vanalega látinn dýfa niður hendinni og draga upp 50—60 sinnum í hvert skifti, sem þessi lækningaraðferð er viðhöfð. Kvikasilfurbaðið kvað hafa gefið frábærilegan árangur við téða sjúkdóma, einkum við stirðleika og bólgu í fingrum. En sá hæng- ur er á almennri notkun þess, að kvikasilfur er því miður mjög dýrt. 1 pottur af því kostar rúmlega 75 krónur. II. SJALDGÆF »ÓPERATÍÓN«. Fyrir skömmu gerði þýzkur læknir mjög sjaldgæfa og fín- gerða óperatíón á fiðluleikara einum, sem þjáðist svo mjög af gigt- bólgu í einum af liðamótum litla fingurs vinstri handar, að honum var ómögulegt að halda áfram lífsstarfa sínum. Pegar fiðluleikar- inn kom til læknisins, var hann mjög þjáður af sársauka og eymsl- um í liðnum, auk þess að sjúkdómurinn hafði gert hann atvinnu- lausan. Læknirinn bauðst nú til að reyna að hjálpa honum með skurðlækningu, og gekk fiðluleikarinn að því. Læknirinn skar svo fingurinn upp, losaði sinar, taugar og æðar frá beinum, án þess að skera þær í sundur eða skadda á nokkurn hátt; og að því búnu sagaði hann hin sjúku liðamót burt úr fingrinum. Því næst gerði hann skurð á fjórðu tánni á öðrum fæti sjúklingsins, og losaði þar á sama hátt sinar, taugar og beinhimnu frá beinum táarinnar, og tók burt ein af liðamótum táarinnar á sama hátt og fingur- iiðamótin, og saumaði þau áföst við báða stúfa litlafingursins í staðinn fyrir hin sjúku liðamót. Síðan sáumaði læknirinn bein- 9’
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.