Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Síða 53

Eimreiðin - 01.05.1914, Síða 53
129 hann hreyfði sig, þó hann gerði ekki nema að flytja þunga sinn af einum fætinum á annan. En undireins og hann stóð kyr, heyrði hann stunur og andþyngsli barnanna, sem var óhægt í svefni. Og hann vissi, að konan hans hlaut að vera vakandi, því hann heyrði ekki andardrátt hennar. En hann lét sem hann vissi ekki annað, en að hún svæfi. Og þegar hann var klæddur, læddist hann fram að uppgöngunni, opnaði með hægð hlerann og fór ofan. Hann var svo kunnugur kofum og krangölum, að hann þurfti ekki einu sinni að þreifa fyrir sér. Hann beygði sig af vana, án þess að vita af því, þegar hann kom að hlöðudyrunum, sem ekki voru annað en ofurlítil smuga. Svo reif hann niður hey í geil. Gætti þess, að taka jafnt af stabbanum. Hristi það upp, til þess að blanda rekjunum meðfram veggnum saman við góðu töðuna — alt saman í myrkrinu. Saxaði síðan töðubinginn upp í fang sér, hristi tugguna, til þess að slæða ekki á leiðinni, og rólaði síðan með hana hálfboginn út um dyrasmuguna, dálítið fram eftir göng- unum og inn um aðrar dyr, sem þar voru. — Kýrin hafði vakn- að, þegar hann fór framhjá fjósdyrunum á leið fram í hlöðuna. Hún heilsaði honum, þegar hann kom með tugguna, með lágu bauli. Hann tróð sér upp í básinn meðfram henni og fleygði gjöf- inni niður með veggnum fyrir framan hana. Að svo búnu tók hann upp eldspýtnastokk, og kveikti á kolu- sem hékk í stoð á tröðinni. Svo mokaði hann saman í flórnum. Og ætlaði svo út, að gá til veðurs. Pað hafði verið gríðar fannkoma um nóttina. Hann varð að lyfta bæjardyrahurðinni, sem opnaðist út á hlaðið, af hjörunum, því það var fent fyrir dyrnar. Pegar hann loksins náði hurðinni a rönd inn í bæjardyrnar, sá hann ekkert nema hvítan snjóskafl- inn. Hann varð að grafa sig upp með þilinu, til þess að komast út. fað var hætt að snjóa. Nóttin var heið og það var blæja- '°gn. Stóri-Jón fór svo að moka göng frá bæjardyrunum út í gegnum skaflinn. Hann hamaðist eins og hann gat. Mokaði eins og berserkur, og reyndi að hugsa um ekkert annað á meðan. Hann gerði, með vilja, göngin helmingi breiðari en þurfti. Og undireins og hann var búinn með þau, fór hann í óða önn að leita uppi holuna niður að læknum, sem var eina vatnsbólið. Pað var slétt af börmum yfir gilið. En á endanum fann hann þó vatns- bólið, með miklum erfiðismunum. Pá var farið að lýsa af degi. Hann fann ekki fleira að taka

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.