Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Síða 68

Eimreiðin - 01.05.1914, Síða 68
144 EINAR HJÖRLEIFSSON: LÉNHARÐUR FÓGETI. Sjónleikur í fimm þáttum. Rvík 1913. Menn höfðu lengi gert sér vonir um, að Einar Hjörleifsson mundi geta samið leikrit og óskað að hann gerði það. Hann hefir nú orðið við þessari ósk, og að því er virðist, líkar mönnum það yfirleitt vel. Þó að margt sé gott í Lénharði, get ég samt ekki tekið í sama streng- inn. Hann er í mörgu svo gallaður, að ég get ekki annað en drepið á það helzta, Þegar menn rita söguleiki, er þess venjulega krafist, að þeir beri einhvem keim af þeim tíma, sem þeir eiga að fara fram á. Sumir líta samt svo á, að skáldin geti umturnað öllum tímahlutföllum, og lát- ið persónur hugsa eins og nútímamenn, á hvaða tíma sem er. Einar gerir sig sekan í þessu. Leikrit hans ber engin merki þess tíma, hvorki í orðfæri né tíðarhugsun. En þó að ég nú slepti þessu, og dæmdi eftir skoðun hinna, yrði það engu að síður gallað. f’að er eins og fastan grundvöll vanti undir byggingu leiksins. Það er eins og höf. hafi hugsað sér leikinn alt öðruvísi, en hann svo breyzt í höndum hans, þegar hann fór að rita hann. Ætli hann hafi ekki hugsað sér Eystein sem aðalpersónu? Er það ekki nær þjóðartilfinn- ingunni og Einari sjálfum? Mér er það gáta, hvernig hann fer að gera Lénharð, þennan ofstopa og ribbalda, sem fór með ránum og rupli hérað úr héraði, að stórmenni og göfugum fanti. Hefði ekki verið nær, að hefja þjóðartilfinninguna upp yfir ofkúgun Danavaldsins, þar sem það var? Ég efast ekki um það, og Einar gerir það senni- lega ekki heldur. Þetta. sem ég nú hefi minst á, finst mér höfuðgalli leiksins, auk vmislegs fleira. Það er enginn frumlegur dráttur í leiknum. Engin ný skaplýs- ing. Hann hefir engar sérstakar nýjungar að færa. Það er hálf-æfin- týralegt, hvernig persónurnar koma fram í fyrsta þætti. Magnús og Eysteinn koma f bónorðsför á sama tíma, en Torfi og Lénharður koma alveg að ástæðulausu. Lénharður var ekki vanur að gera vart við sig áður en hann rændi. f’að er ólíklegt, að hann hafi farið yfir Ölfusá til þess, að heilsa upp á kotbóndann á Selfossi. Enda segir Ingólfur 1' 2. þætti (bls. 48): »Ölfusá aftrar aldrei Lénharði lengi«. Það er óviðfeldið að láta Torfa og Lénharð nota orðið »yndis- lega« jöfnum höndum, og Holm kemur leiknum lítið við, en Frey- steinn kemur of oft fyrir. Leiknum er í rauninni lokið í 4. þætti, en til þess að koma Guðnýju og Eysteini saman, bætir hann 5. þættin- um við, sem er illa saminn og óþarfur. Hann minnir á síðasta þátt- inn í »En Fallit« eftir Björnson, sem virðist hafa orðið til út úr lík- um vandræðum. Þrátt fyrir þessa galla, sem ég nú hefi talið, er margt fallegt í Lénharði. Fundarsenan í 2. þætti, og senan á hlaðinu á Selfossi í 3. þætti, eru mjög vel samdar, og í 4. þætti kennir víða þeirrar snildar, sem Einari er lagin, og við þekkjum úr smásögunum. Það er ekki auðgert, á árum Einars, að hlaupa frá þeirri skáldskapargrein, sem maður hefir tamið sér, og taka aðra fyrir. Borið saman við þessa erfiðleika, er Lénh. sjálfsagt góður, og við

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.