Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Qupperneq 77

Eimreiðin - 01.05.1914, Qupperneq 77
i53 Á Englandi virðist ættarbandið hafa látið nauðalítið á sér bera í verki þegar á 7. og 8. öld. er vér fyrst höfum fregnir af stofnunum Engilsaxa. Að ofurlítið lifnar yfir því aftur í lögum Aðalsteins konungs, stafar frá dönskum áhrifum, enda helzt það ekki lengi og er hætt að sýna sig í verki áður en Vilhjálmur bastarður leggur England undir sig (1066). A Islandi heyrði það fortíðinni til, þegar landnáms- menn fyrst stigu þar á land, og í Noregi fór því smáhnignandi, sem líklega hefir byrjað á 9. öld og endað um lo'k 13. aldar. I Svíþjóð bendir alt á, að ættarband- ið hafi þar haldist út 14. öldina og máske miklu lengur. Einkennilegt er það, að á Hollandi, í Helgíu og í franska hlutanum af Flandern stendur ættarbandið með mestum blóma í bæjunum, en utan bæjanna ber fremur lítið á því. í Hansabæjunum Hamborg, Kíl og Lýbiku losnar aftur miklu fyrum ætt- arbandið en í sveitunum umhverfis, og sama máli er að gegna um flesta hinna stærri bæja í Danmörku. í viðbæti aftan við bókina tekur höf. til umræðu, hve há manngjöldin hafi verið á Islandi og hvernig eigi að skilja »/iundrað silfrst. Og kemst hún þar að sömu niðurstöðu og dr. Valtýr Guðmundsson hefir jafnan haldið fram, að »hundraðv< liljóti að merkja »120 aura«, en ekki álnir. eins og prófessorarnir Finnur Jónsson og B. M. ólsen hafa haldið fram. Bendir hún því til sönnunar meðal annars á, að þar sem prófessor Ólsen haldi því fram, að um 930 hafi eyrir silfurs og eyrir vaðmáls (= 6 álnir) verið jafnir, þá ættu eftir hans skoðun manngjöldin ekki að vera nema 20 aurar vaðmáls (= 20 aurar silfrs), ef »hundrað silfrs« táknaði 120 álnir (en ekki aura). En af því leiddi aftur, að manngjöldin eða vígsbæturnar hefðu um 930 verið meira en helmingi niinni en »rcttr<f.} bætur fyrir liögg, sár eða aðra móðgun, sem hefði verið 48 aura (6 merkur) vaðmáls, og jafnvel 4 aurum minni en »útlegð«. (= 3 merkr eða 24 aurar vaðmáls), sem ákveðin væri í lögunum sem minsta sektarfé eða bætur fyrir hverskonar lagabrot, hve lítilfjörlegt sem verið hefði. Mætti öllum vera ljóst, hve fráleitt þetta væri, að manngjöldin væru lægri en slíkar bætur, enda kæmi 120 aurar silfurs nokkurnveginn heim við aðalupphæðina í Baugatali og færi mjög nærri því, sem manngjöldin hefðu verið í öðrum löndum (t. d. í Danmörku á Sjálandi og Skáni upprunalega einmitt 15 merkur (= 120 aurar) silfurs, en á Jótlandi (og seinna í öllu ríkinu) 18 merkur silfurs. Margt er fleira gott í þessari bók, sem hér er ekki rúm til að ræða, t. d. at- hugasemdirnar um, hvein þátt það hafi átt í hnignun og falli hins íslenzka þjóð- veldis, að ættarbandið var svona veikt eða samheldi ættanna svo lítið, og margt fleira þess háttar viðvíkjandi Islandi. Eru þessar rannsóknir, eins og rannsóknir þeirra prófessors Heuslers og dr. Bódens, afarmikilsverðar fyrir oss Islendinga, og kenna oss bæði að lesa betur sögurnar okkar og meta betur sannleiksgildi þeirra, þar sem þær greinir á við lögin, eins og þau birtast í Grágás. Hafi fröken Phill- potts þökk fyrir verkið og láti okkur fá meira af líku tægi eða öðru jafngóðu. V. G. A. HEUSLER: ALTISLÁNDISCHES ELEMENTARBUCH. Heidelberg 1913. XII 4- 264 bls. 5 M. Þótt bók þessi sé samin handa Pjóðverjum, er engu að síður ástæða til þess að vek'a eftirtekt Islendinga á henni; því að þar er saman kominn svo mikill fróð- leikur um íslenzka tungu að fornu, að hvergi annarstaðar mun slíkur í ekki lengra niáli. það er auðséð, að höfundurinn hefir ekki einungis víðtæka og sjálfstæða þekkingu á efninu, heldur einnig hagnýta reynslu sem kennari. Hann setur t. d. við hliðina á íslenzku fallbreytinga-dæmunum sömu dæmin á gotnesku, enda má með
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.