Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Qupperneq 80

Eimreiðin - 01.05.1914, Qupperneq 80
156 ver prentunina heldur en dráttmyndirnar. I*ví miður er engum gefið að geta gert gys að sjálfum sér. Annars mundi Át Hácklefjáll vera gullnáma fyrir jafn-athugulan og snjallan lýsanda mannlegrar vesaldar og Albert Engström. S. N VIGGO ZADIG: RELIGIO. Stokkhólmi 1913. Viggó Zadig, kennari í Eslöf, dvaldi á stúdentsárum sínum um hríð á íslandi, lærði íslenzku og kyntist landi og þjóð, og hefir síðan bæði haldið fyrirlestra og ritað um Tsland. Hann hefir nú gefið út skáldsögu, og er hún, eins og 'nafniÐ bend- ir á, mest um baráttu ungs manns við örðugasta viðfangsefnið: að mynda sér lífs- skoðun. Zadig hefir notað endurminningar sínar frá Islandi í umgjörð bókarinnar. fegar sagan hefst, er aðalpersónan, Rune Reh, þar á ferð, og síðar segir hann frá, þegar islenzkir námsmenn heimsækja hann í Lundi. Kennir í bókinni næmrar sam- úðar og skilnings á því, sem íslenzkt er. Og öll er hún prýðilega rituð. 5. N. UM ÍSLAND hefir ungfrú Laufey Valdimarsdóttir, stud. mag.» sem býr á »Hagemanns Kolle- gium« í Kaupmannahöfn, ritað dálitla grein í ársrit þessarar góðkunnu stofnunar. Lýsir hún þar Reykjavík í fáum dráttum og talar síðan um ýmislegt af hinu ein- kennilegasta í þjóðlífinu. Er greinin einkar vel rituð og með glöggu auga fyrir því, hvað útlendingum hæfi bezt. En auðvitað varð rúmsins vegna að fara fljótt yfir sögu. M. a. minnist ungfrúin á uppruna orðsins »menning« og gefur í skyn, ao þótt »kúltúr« Tslendinga sé ekki jafnsniðföst og margra annarra þióða, geti verið að hún eigi jafnmikið mannlegt gildi, innra gildi. Mætti margt um þetta rita með og móti. En orðin sýna a. m. k., að þessa ungu námsmey, sem stundar erlend mál og bókmentir við erlendan háskóla, vantar ekki metnað fyrir hönd þjóðar sinnar. 5. N. MITTEILUNGEN DER ISLANDFREUNDE. I, 1—3. Af tímariti »Islandsvinafélagsins«, sem getið var í Eimr. XIX, 230, eru nú út komin 3 hefti og er í þeim allmikill fróðleikur. Er þar meðal annars skrá yfir rit um Island, er komið hafa út á þýzku síðan um aldamótin 1900, og á seinna að koma samskonar skrá yfir tímaritsgreinar og blaða um sama efni og fleiri þesskonar upplýsingar. í^ar eru ritdómar bæði um íslenzkar bækur og um útlend rit um ís- land, um ferðir til íslands, fréttir frá íslandi af ýmsu tægi, þýdd sýnishorn úr ís- lenzkum bókum (t. d. síðustu sögu Jóns Trausta: »Sigur lífsins«) og margt fleira. Og þar sem alt er hér svo vandað og áreiðanlegt og gert af þeirri þekkingu, sem Þjóðverjar einir hafa til að bera, að því er fsland snertir, þá er sannarlega ástæða til fyrir oss að gleðjast yfir þessu riti, sem hlýtur að auka þekkingu útlendinga á Islandi að miklum mun. Og bókasöfnin heima mega til að kaupa það. — Rit- stjóri þess er prófessor dr. W. Heydenreich í Eisenach, og er ritstjórnin þar í góðum höndum. Meðlimir »íslandsvinafélagsins« eru nú orðnir á annað hundrað, og vill stjórnin láta þess getið, að allir Islendingar séu velkomnir í félagið. V. G.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.