Eimreiðin - 01.07.1919, Page 3
EIMREIÐIN]
ORKUGJAFAR ALDANNA
131
hinna fornu stöðva. Þar sem eldílóðið hafði stöðvast,
fann hann dauðan björn; logandi trén höfðu fallið þarna
ofan á hann, og lá hann þar steiktur í einni kássu. Pilt-
urinn var hungraður, og sulturinn gerir sætan mat; hann
fór að rífa í sig bjarnarkjötið; aldrei hafði hann smakkað
annan eins mat. Þessu atviki, og hinni ljúffengu máltíð,
gat hann aldrei gleymt; honum var aldrei um hráa kjötið
eftir það. En það varð hann samt að hafa. Að eins einu
sinni á æfinni siðar hafði hann séð þennan rauða stökkul
í trjátoppi, er elding hafði kveikt í; en eldurinn dó þar
út, áður en hann gæti til hans náð. Nú sat hann, eins
og svo oft áður, og var að hugsa um það, hve óumræði-
leg gæði það væru, ef mennirnir gætu náð eldinum á sitt
vald; það mætti þá geyma hann í einhverri klettaskoru,
og halda honum þar við, með því að gefa honum nógan
trjávið að eta, og þá þyrfti ekki framar að eta kjötið
hrátt. Fólkið gaf honum auga, þar sem hann sat hugs-
andi og starandi fram; svona hafði hann setið dögum
saman fyrir mörgum árum. Rétt á eftir hafði hann komið
með steinhnífinn, sem var svo hentugur til að flá með og
hluta sundur bráðina. Skeð gat, að einhver slík upp-
götvun til þæginda væri nú að brjótast um í kolli gamla
mannsins, og því vildi enginn verða til að trufla hann.
II.
Við lyftum hattinum fyrir fyrsta hugvitsmanninum,
stígum á bak og tökum nú 200,000 ára sprett. — Nú er
margt orðið breytt. Sum löndin, sem vér áður sáum, eru
nú sokkin í sjávarins djúp; á öðrum stöðum hefir hafs-
botninn hafist, og er nú orðinn að þurlendi, þakinn afar-
miklum frumskógum. Má þar sjá menn á ferð. Veiði-
skapurinn er enn eini atvinnuvegurinn, og vopnin steinar
og viðarlurkar. En mennirnir hafa dálítið breytst; ennið
er orðið hærra; augun eru orðin stærri, og liggja ekki
eins djúpt; neðri skolturinn hefir lagast, er orðinn skap-
legri og ásjálegri. Nú eru á tungu þeirra til um 500 orð,
í stað 100 áður. Og nú eta þeir ekki kjötið hrátt; þeir
hafa náð eldinum, og tekið hann í sina þjónustu. Það
*9