Eimreiðin - 01.07.1919, Síða 28
156
»LJÓS ÚR AUSTRI«
JEIMREIÐIN
hæfilegri fjarlægð. En um að gera að koma ekki of-nærri,
athuga ekki né rannsaka sjálfur! Það getur líka verið
ábyrgðarhluti! En slíkum eftirlegukindum verður að skilj-
ast það í eitt skifti fyrir öll, að þær mega ekki krefjast
þess af neinum, að þekkingarskortur þeiría eða ándlegur
eintrjáningsskapur verði tekinn minstu vitund til greina.
Eg hafði enga tröllatrú á Yoga-kerfinu fyrst í stað. Eg
hafði meiri trú á Múller, er eg byrjaði að iðka »Mína að-
ferð«. En eg hugsaði sem svo: Ur því að menn hafa
stundað Yoga um þúsundir ára og því er ávalt borinn
jafnveglegur vitnisburður, og af því að skynsemi mín get-
ur • í fljótu bragði aðhylst sumar æfingarnar, þykir mér
sennilegast, að eitthvert vit sé í þeim. Eg tók mig því
næst til og skrifaði mér til minnis í vasabók mína þær
æfingarnar, sem mér leitst skást á og eg hélt að kæmi
heilsu minni helst að notum. Æfingar þessar tilheyrðu
flestar þeim greinum Yoga-kerfisins, sem nefndar eru á
indversku máli Hatha-Yoga og Raja-Yoga. Sumarið 1918,
í byrjun ágústmánaðar, tók eg að iðka æfingarnar og fann
furðu fljótt mun á mér, enda reyndi eg að fylgja öllum
forskriftum nákvæmlega, þótt það sé reyndar að sumu
leyti ókleift fyrst í stað. í öndverðum nóvembermánuði,
eftir þriggja mánaða þjálf, er eg lagðist í inflúensunni,
hafði Yoga gert mér meira gagn en »Mín aðferð« megn-
aði á þrem árum. Eg get að minsta kosti ekki fundið
neina aðra skynsamlega orsök til framfara þeirra, sem á
mér urðu á þessu tímabili. Þegar eg sté upp úr inflúens-
unni, tók eg aftur til við æfingarnar og hefi hugsað mér
að halda þeim áfram það, sem eftir er æfinnar.
Eg bið menn að gæta þess, að Yoga er fremur seinvirkt,
líkt og hver önnur andleg .áreynsla, svo að eigi er við því
að búast, að árangur minn sé meiri enn þá en raun er á.
En hann er í stuttu máli þessi: Taugaslekjan er að mestu
leyti horfin. Eg finn aldrei til þreytu eða sljóleika. Andar-
drátturinn hefir lengst að miklum mun (og var hann þó
aldrei sérstaklega stuttur) og brjóstholið vaxið um 5 cm.
fjóra síðustu mánuðina (mældi mig ekki fyr). Allir vöðvar,
einkum í andliti, hafa fyllst. Augun eru miklu skærari.