Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1919, Page 33

Eimreiðin - 01.07.1919, Page 33
EIMREIÐIN] VONDAFLJÓT 161 Eftir dalnum rann það tært og silfurlitt og bugðaði sig, mjúklega eins og slanga, alla leið til hafs. Það var þarna í dalnum, að fljótið hafði fengið á sig svo ógurlegt orð, og var kallað öllum illum nöfnum: Vondafljót, Glæpafljót, Morðfljót. Þarna í dalnum, þar sem það rann þó einmitt fram í allri sinni fegurð og tign; þar sem börnin léku sér á bökkum þess á sumrin; narsissan laut fram yfir spegilrönd þess, ásthrifin af sinni eigin feg- urð; og rökkurlit fiðrildi svifu í dansi kringum myndina af skildi mánans eða sigð. Vondafljót hét það alt um það, — og þessi var orsökin til nafnsins: t hamraþrengslunum uppi við dalbrúnina, litlu ofar en þar sem fljótið varð að fossi, safnaðist fyrir í vetrarfrost- unum ísbólstur, sem tók yfir alt gilið, lokaði smám sam- an fyrir það, og gerðist, eftir því sem á leið veturinn, hærri og harðari en hamrarnir í kring. Bak við þennan ísbólstur var áin lokuð inni. Hún var nauðbeygð til að hörfa undan, og gróf sér djúpa og breiða dæld upp með farvegi sínum. Þessar undanhörfandi álmur voru eins og vængir sem uxu út frá herðum hennar, þöndust út og lögðust saman á vixl, alt eftir vatnsmagninu. Dældin sjálf varð stærri með hverjum deginum, þar til hún lá eins og hyldjúpt stöðuvatn á bak við bólsturinn. Og svo einn dag, einn vordag í leysingum, þegar hver ísbrún var ávöluð af sólinni, og jökullinn roðnaði eins og ung perla sem ligg- ur fyrir framan spegil úr krystal eða silfri og sér sig í fyrsta sinn, roðnaði örlítið, roðnaði bleikt — þá belgdist áin upp, auðguð að hundruðum lækja frá jöklunum, aflið af sólbráðsins óteljandi kvíslum, og ruddist með öllu sínu vatnafylgi beint á bólsturinn: Klauf hann, molaði hann, malaði hann, með viðlíka hvelli og af sprengitundri, svo að flísar, teningar og pýramídar íssins hrutu í allar áttir, en ísduftið dansaði eins og fossúði yfir fossinum. í sama vetfangi og hvellurinn kvað við, braust áin fram, valt fram í hvítfreyðandi stöllum, og sneið sig á einni svip- stundu eins og risavaxið lagvopn í gegnum dalinD, æddi 11

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.