Eimreiðin - 01.07.1919, Side 48
176
KVIKMYNDIR
[EIMREIÐIN
En hvernig eru þessar kvikmyndir eða lifandi myndir
búnar til? Hvernig stendur á því, að hægt er að sýna á
mynd hreyfingar, nákvæmlega eins og þær eru í raun og
veru? Og hvernig er saga þessarar uppgötvunar?
Allir kannast við það, að ef vér sveiflum í dimmu eld-
spýtu með glóð, þá sýnist oss glóðin mynda hring, saman
hangandi, eða langar rákir, en sjáum ekki glóðina sjálfa
a hverjum stað. Þetta kemur af því, að myndin, sem fellur
á nethimnu augans helst þar ofurlitla stund, þó að hlut-
urinn, sem á er horft, hverfi. Þess vegna sýnist oss t. d.
elding standa yfir dálitla stund þótt hún í raun og veru
komi og hverfi svo að segja á sama augabragði. Vér sjá-
um því hvern hlut ofurlitla stund eftir að hann er farinn.
Samband skynfæranna, t. d. augnanna, við heilann, er að
vísu mjög fullkomið og afgreiðslan fljót, en þó tekur það
ofurlítinn tíma að koma boðunum frá auganu til heilans,
en fyrst þá »sjáum« vér hlutinn. Ef hluturinn, sem á er
horft, er á hreyfingu, þá er hann kominn á dálítið annan
stað þegar heilinn verður hans var, heldur en hann var
þegar mynd hans féll fyrst á nethimnuna, og ný mynd er
því komin þar. Af þessu leiðir, að vér getum ekki séð
nema takmarkaðan fjölda af breytingum á sekúndu hverri.
Vér getum ekki séð fleiri breytingar en svo, að hægt sé
að koma boðum um þær frá auganu til beilans, og menn
hafa fundið, að þær eru 16 á sekúndunni.
Þetta er nú sá grundvöllur, sem kvikmyndagerðin er
reist á. Hún notar sér þennan ófullkomleika skynfæranna
til þess að láta oss sýnast annað en það, sem er. Og það
gerir hún með því, að bregða upp fyrir oss 16 myndum
á sekúndunni af hlut, sem er á hreyfingu. Ur því að vér
nú ekki getum greint nema 16 myndir á sekúndunni þó
að vér horfum á hlutinn sjálfan, þá getum vér engan mun
gert á þessu tvennu, og oss sýnist því hluturinn hreyfast á
myndinni.
Tökum til dæmis dreng, sem sveiflar eldspýtu með glóð.
Setjum svo að hann geri eina sveiflu á sekúndunni. Þá
sjáum vér í rauninni ekki sjálfa hreyfinguna, heldur sjá-
um vér glóðina á 16 mismunandi stöðum í hringnum. Ef