Eimreiðin - 01.07.1919, Blaðsíða 52
180
FRESKÓ
[EIMREIÐIN
ingum og andlits-litir urðu að vera eftir þvi, hvernig
ljósmyndaþynnan tekur þeim, en ekki eftir því, sem feg-
urst er fyrir augað. Kvað vera herfilegt að sjá kvikmynda-
leikendur oft og tíðum, bláa og græna og með ýmsum
litum í andliti, og það ekki þá, sem verst eiga að líta út,
heldur jafnt hinar fegurstu konur sem aðra.
Kvikmyndirnar koma fram á sjónarsviðið um aldamótin
síðustu, og fylgja því 20. öldinni að aldri. En þótt þær
séu ekki nema fullra 18 ára eru þær þó komnar um allan
heim, og hafa náð svo miklum tökum á fólkinu að borg-
aðar eru á ári hverju svo skiftir þúsundum milljóna króna
fyrir aðgöngumiða á kvikmyndasýningar.
M. J.
Freskó.
Saga eflir Ouida.
[Framh.]
Charterys greifinna (á bréfspjaldi):
»Eg er hrædd um að hitinn þarna suðurfrá sé farinn
að gera heilann i yður meyran. »Souchong« er alls ekki
kominn í neina fjötra, og getur vel haft það til, að bíta
hestasveininn og slíta af sér söðulinn, eins og áður«.
Hr. Hollys (bréfspjald):
»Aðeins eitt: Ætlið þér að koma til Cowes, eins og
venjulega, eða ekki?«
Charterys greifinna (bréfspjald):
»Hvernig í ósköpunum stendur á því, að þér leggið
svona áherslu á þessa sauðmeinlausu spurningu? Nei, eg
ætla ekki að fara. Glaucus er í aðgerð og eg ætla að nota
hann í vetur«.
Hr. Hollys (á bréfspjaldi):
»Takk! Þetta hefði eg átt að geta sagt mér sjálfur. í
vetur ætlið þér að nota káetuna á Glaucus, þá sem er