Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1919, Page 61

Eimreiðin - 01.07.1919, Page 61
EIMREIÐINI 189 Ritsjá. JÓNAS PORBERGSSON: FRÍKIRKJA — PJÓÐKIRKJA. Fyrir- lestur haldinn á Akureyri. 1917. Töluvert hefir verið rætt um skilnað rikis og kirkju hér á landi á undanförnum árum, og sannast að segja fæst af pví af Hiikilli þekkingu eða viti, t. d. þegar menn vilja pjóta til og af- nema margra alda gamla pjóðkirkju í þeim tilgangi einum að bola úr samneyti við sig fáeinum mönnum, sem pykja ekki sem hárréttastir í einhverjum kennisetningum. Rjóðkirkjan er vort elsta félag og merkasta og merkisberi íslenskrar menningar um aldaraðir, og svo á að slá hana af út af smá goluþvt. Eg er hræddur um að menn geri sér ekki fulla grein fyrir pví hvað af skilnaði ríkis og kirkju mundi leiða, pví að þá raundu skýrir menn sjá, að pað væri áreiðanlega versta leiðin út úr »ógöng- unum«. I pessum fyrirlestri talar maður, sem hefir reynslu í pessu máli, og »greindur nærri getur, en reyndur veit pó betur«. Og hann hefir nógu heila sjón til þess að sjá meingalla fríkirkju- skipunarinnar og nógu mikla velvild til þjóðarinnar til pess, að vilja ekki fara að gera á henni »tilraunir« með pað, sem aðrar þjóðir hafa reynt, sér til lítillar blessunar. Hann vill hafa þjóðkirkju, en ekki binda hana við Lúthers nafn, heldur »stofnsetja ,hina íslensku kristilegu kirkju‘«. En fæst samkomulag um það? Auðvitað er pað höfuðatriðið, eða ætti að vera, að vera »kristinn« maður. En pað er nú svo einkennilegt, að pað er eins og mörgum finnist það alls ónóg. Eða hví væri að öðrum kosti hamast svo gegn þeim, sem ekki eru taldir nógu lútherskir? Og mundi pá ekki sama ósamþykkjan og sömu get- sakirnar fljótt vakna, að eins í peirri nýju mynd, að menn væru pá taldir ókristnir í stað pess að þeir eru nú taldir ólútherskir? Aðal áhugamálið sýnist sem sé vera pað, að losna við þá, sem aðrar skoðanir hafa, losna úr samneytinu við pá. Eg hef enga trú á því, að hægt sé að losna úr »ógöngunum«, ef pað gætu talist ógöngur, að menn hugsa og tala um trúmál eins og hjarta þeirra og samviska segir peim að sannast sé og réttast — enga leið, meðan menn eru svo haldnir drambi, að þeir pykjast vissir um, að peirra skoðun ein sé brúðkaupsklæðið og geta ekki setið sama bekk og bræður þeirra í hinum fötunum. Svo mikill heilagleikur veldur og hlýtur að valda úlfúð, hvernig sem kirkjumálunum er skipað hið ytra. En Jónas Porbergsson á pakkir skilið fyrir sitt fróðlega og djarflega erindi um petta mál og tilraun sína að leysa úr vand-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.