Frjáls verslun - 01.04.1999, Page 15
500 milljóna samningur
FRÉTTIR
Frá kynningu Tetra-Pak og Sindra á Hótel Örk. Fremri röð frá vinstri: Peter Jak-
obsson, Owe Hansson, Yvonne Andreasson og Páll Björnsson. Aftari röð frá vinstri:
Peter Hedin, Páll St. Bjarnason og Bergþór Konráðsson, forstjóri Sindra-Stáls.
nslenska hátæknifyrirtækið
Netverk hefur vakið mikla
athygli undanfarna mánuði
fyrir gott gengi. Fyrirtækið lauk ný-
lega við 500 milljóna króna hlutafjár-
útboð sem unnið var í samvinnu við
hinn alþjóðlega fjárfestingarbanka
Banque Paribas í London.
Lokafrágangurinn var staðfestur
Holberg ásamt Halldóri Asgrímssyni utanríkisráðherra við undirritun hlutafjárútboðsins.
Frá Atlas Coþco deginuni í Háskólabíói. Hér má sjá
nokkra starfsmenn þessa sœnska stórfyrirtækis en
þeir komu til landsins í tilefni dagsins.
Holberg MáSson
er einn aðaleig-
andi Netverks
og átti hug-
myndina að
helstu söluvöru
fyrirtœkisins.
FV-myndir: Geir
Ólafsson.
með formlegri undirritun að við-
stöddum fulltrúum Netverks og
Banque Paribas og Halldóri Asgríms-
syni utanríkisráðherra.
Velgengni fyrirtækisins byggist á
búnaði sem gerir tölvusamskipti um
gervihnetti auðveldari og fljótlegri en
áður og heitir Marstar. 35
Kynningar hjá
Sindra
indra-Stál stóð nýlega fyrir tveimur
kynningum á vörum frá sænsku fyrir-
tækjunum Atlas Copco og Tetra-Pak —
en Sindri er umboðsaðili þessara fyrirtækja á ís-
landi.
Fyrirtækið hélt svonefndan Atlas Copco dag í
Háskólabíói en þetta sænska stórfyrirtæki er
þekkt fyrir framleiðslu sína á loftpressum, vélum
og verkfærum.
Þá buðu Tetra-Pak og Sindra-Stál mjólkur-
fræðingum, stjórnendum mjólkurbúa og annarra
drykkjarvörufyrirtækja á námstefnu á Hótel Örk
um ýmsar nýjungar í framleiðsluferli drykkjar-
vara svo og um þvottakerfi og hreinlæti við fram-
leiðslu. SD
Á ri ] EV/ \\ Ll IA </> ■ Dca ■ E (Q X ■ 3
— Það cv kaffið sími 575 5500 3 3
15