Frjáls verslun - 01.04.1999, Side 35
tölvur og tæki starfsmanna sem í erli dags-
ins eru með taugar þandar í hringiðu hluta-
bréfaviðskipta. Þrátt fyrir tæknina mátti sjá
á stöku stað samanvöðlaða bréfmiða,
þessa gömlu, góðu. Allir helstu sljórnend-
ur Hewlett Packard — með stjórnarfor-
manninn og aðalforstjórann, Lewis E.
Platt, í fararbroddi — tóku á móti gestum
ásamt æðstu yfirmönnum Kauphallarinn-
ar. Lewis E. Platt nýtur mikillar virðingar í
bandarísku viðskiptalífi, er menntaður í
Wharton-háskólanum og tók við stjórnar-
formennsku af David Packard árið 1993,
samhliða starfi sínu sem aðalforstjóri. Um-
gjörð móttökunnar gaf strax til kynna að
þarna færu tvö fyrirtæki sem störfuðu vel
saman og að Hewlett Packard væri í met-
um hjá Kauphöllinni. Það er ekki á hverj-
um degi sem haldin eru hanastél úti á
miðju gólfi hallarinnar og fyrir vikið fékk
það á sig brag þungavigtar! Skyndilega var
bjöllunni hringt á svölunum frægu og þar
stigu gestgjafar iram og ávörpuðu gesti.
Stjórnarformaður Kauphallarinnar í bráð-
um þrjátíu ár, Richard Grasso, fór lofsam-
legum orðum um viðskipti fyrirtækisins
við Hewlett Packard um leið og hann bauð
gesti velkomna.
Kauphöllin gaf tóninn Þessi móttaka f
Kauphöllinni gaf tóninn; blaðamenn fengu
það fljótlega á tilfinninguna að þeir væru
að verða vitni að mikilvægum atburði á
Wall Street, musteri kapítalismans. En það
er einmitt „atburða-aðferðin" sem flest
bandarísk fyrirtæki nota til að kynna nýjar
vörur sínar og þjónustu. Sú aðferð kom
líka heldur betur á daginn á blaðamanna-
fundinum morguninn eftir. Hann var hald-
inn í þekktum samkomusal á Wall Street,
skammt frá Kauphöllinni. Tækjabúnaður-
inn, sem blasti við innandyra, gaf strax til
kynna að stórsýning á ameríska vísu væri í
uppsiglingu. Sú varð líka raunin. Eftir að
gestir höfðu gætt sér á veisluföngum voru
ljósin í salnum slökkt og kynningin hófst.
Hún byijaði með afar kröftugu þyrluhljóði
— eins og heyra má í spennumyndum ætt-
uðum frá Hollywood. Þetta var upphaf sem
fangaði athygli allra. En skyndilega var
sviðið lýst upp og á það steig Janice
Chaffin, aðalframkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins. Hún stýrði blaðamannafundinum eftir
það. Hún byrjaði á að sýna mynd á risa-
stórum skjám frá opnun Kauphallarinnar
fyrr um morguninn þar sem nokkrir af
helstu stjórnendum Hewlett Packard voru
samankomnir á svölunum frægu. Mynd-
irnar úr Kauphöllinni sýndu að hátíðardag-
Helstu stjórnendur Hewlett Packard við oþnun Kauphallarinnar t New York að morgni 13.
apríl sl. ásamt Richard Grasso, stjórnarformanni Kauphallarinnar. Tölvukerfi Kauþhallar-
innar erufrá Hewlett Packard og í kynningu sinni á nýja N-Class miðlaranum nutu HP-menn
víðtœks stuðnings þessarar þekktustu kauphallar í heimi. Það var sterkur markaðsleikur!
ur var genginn í garð hjá Hewlett Packard.
Þessi hátíðlega stund við opnun Kauphall-
arinnar komst þegar um morguninn í sjón-
varpsfréttir ytra en Kauphöllin tilkynnti að
hún ætlaði að kaupa N-miðlarann. Góð
byijun á góðum degi!
Tónlist og flugeldasýning Að þessu loknu
bað Janice Chaffin stjórnarformanninn og
aðalforstjóra Hewlett Packard, Lewis E.
Platt, að stíga fram á sviðið. I sameiningu
kynntu þau hinn sögulega atburð sem væri
í uppsiglingu; komu N-Class miðlarans.
Við dúndrandi tónlist og flugeldasýningu
var hann látinn síga niður á sviðið. Örninn
var lentur! Viðbrögðin létu ekki á sér
standa; magnað lófaklapp upphófst. Það
var rífandi stemmning í salnum. Eftir það
voru sýnd viðtöl á sjónvarpsskjám við
þekkta viðskiptavini auk þess sem nokkrir
stórviðskiptavinir voru kallaðir upp á svið-
ið til að segja frá gagnsemi N-Class miðlar-
ans — og hvers vegna þeir ætluðu að
kaupa hann. Enn og aftur lék fulltrúi Kaup-
hallarinnar eitt helsta hlutverkið í kynn-
ingunni og minntí menn á nauðsyn aflmik-
ils tölvukerfis fyrir Kauphöllina í ljósi hins
kynngimagnaða upplýsingaflæðis sem
færi um tölvukerfi hennar á hverri sek-
úndu. Varla þarf að taka fram að ræðurnar
og viðtölin voru samin fyrirfram þannig að
þeir, sem voru á sviðinu hveiju sinni, gátu
lesið textann jafnóðum á risaskjá sem var
fyrir aftan gestina — en einnig voru texta-
skjáir tíl hfiðar við sviðið. Allt var þetta gert
tíl þess að viðtölin væru sem eðlilegust.
Oþnun Kauphallarinnar að morgni 13. aþríl
sl. komst þegar í sjónvarpsfréttirytra um morg-
uninn en Kauþhöllin tilkynnti að hún ætlaði
að kauþa N-miðlara.
Stjórnendur HP í Kauphöllinni í New York
ásamt Richard Grasso, stjórnarformanni
hennar. Hann er lengst til vinstri á mynd-
inni. Við hlið hans er Janice Chaffin, aðal-
frkvstj. HP, Lewis E. Platt, forstjóri og stjórn-
arformaður HP, ogBill Russell, frkvstj. fram-
leiðslusviðs HP.
35