Frjáls verslun - 01.04.1999, Page 40
MARKAÐSMÁL
íll kemur akandi niður Almanna-
gjá og eldhnettir þjóta í kring um
hann. Er eitthvað athugavert við
þetta? Ekki að áliti starfsmanna SAGA-
FILM, sem fengu beiðni ffá erlendu fyrir-
tæki um að vinna þessa auglýsingu. „Þetta
kostaði að vísu talsverða vinnu og það var
mikið mál að fá leyfi til að fara með bíl í Al-
mannagjá, sem auðvitað er friðuð og ekki
beinlínis æskilegur staður til slíkrar vinnu,
en góð umgegni og gott samráð við Nátt-
úruverndarráð var og er lykillinn að því að
hægt sé að gera svona hluti,“ segir Jón Þór
Hannesson, eigandi SAGA-FILM, þar sem
hann situr í fallegri og notalegri skrifstofu
sinni í húsi fyrirtækisins við Vatnagarða.
Keypti meðeigendur sína út
Jón Þór keypti meðeigendur sína,
Japis og Byko, út úr SAGA-FILM
og rekur fyrirtækið núna eínn.
„Mér finnst pað að vissu leyti betra
þótt gott sé að hafa góða meðeig-
endur. Ég var með ákveðnar hug-
myndir um endurskipulagningu og
það að vera einn eigandi gaf mér
frjálsari hendur.“
TEXTI: Vigdís Stefánsdóttir
MYNDIR: Geir Ólafsson og fleiri
Stephensen, Hilmar Sigurðsson, Snorri
Þórisson, Eiður Guðnason og Jón Þór
Hannesson tóku sig saman og keyptu
gamalt fyrirtæki, Kvikmyndafélagið Saga,
en það fyrirtæki hafði verið starfrækt frá
árinu 1944.
„Með því að kaupa þetta gamla fyrir-
tæki fengum við nafnið til umráða, en ald-
urinn og virðuleikann fengum við í kaup-
bæti,“ segir Jón Þór, sem hefur unnið við
hljóðupptökur, auglýsinga- og kvikmynda-
gerð stóran hluta starfsævi sinnar. Hann
hóf störf við auglýsingagerð árið 1967 jafn-
framt því að starfa sem hljóðupptökumað-
ur hjá Sjónvarpinu á fyrstu árum þess.
SAGA-FILM hyggst
reisa kvikmyndaver
Jón Þór Hannesson, eigandi SAGA-FILM, segir aö fyrirtækiö hafi á
prjónunum stórframkvæmd í samvinnu viö nokkra íslenska og erlenda kvik-
myndageröarmenn; byggingu 5 þúsund fermetra kvikmyndavers í Grafarvogi,
skammt frá Korpúljsstööum.
„En okkar markmið er að gera það vel sem
viðskiptavinurinn fer fram á, hvort sem
það er smátt eða stórt og ef hann er
ánægður þá erum við ánægð.“
Fengum virðuleikann í kaupbæti SAGA-
FILM er stærsta fyrirtækið á sínu sviði á
íslandi. Það er umsvifamest í gerð sjón-
varpsauglýsinga hérlendis; það vinnur í sí-
auknum mæli að gerð erlendra auglýsinga,
bæði í samvinnu við önnur fyrirtæki og á
eigin vegum; það er helsti framleiðandi
innlends efiiis fyrir sjónvarpsstöðvarnar og
síðast en ekki síst; það á einn stærsta
tækjakost hérlendis til kvikmynda- og aug-
lýsingagerðar og hefur verulegar tekjur af
leigu þeirra tækja. SAGA-Film var stofnað
árið 1978 er fimm ungir menn, þeir Olafur
Hver er hann,
eigandi SAGA-FILM?
Hann heitir Jón Þór Hannesson, er 4
formaður Framleiðendafélagsins og er j
54 ára. Hann er kvæntur Valgerði
Lárusdóttur hjúkrunarfrœðingi. Þau
giftu sig árið 1967 og hafa því verið /
gift í 32 ár. Þau eiga tvo syni; Lárus,
31 árs, sem er giftur Sólveigu Krist-
jánsdóttur og eiga þau tvœr stúlkur
(tvíbura), ogÁrna Þór, 23 ára, sem er
í sambúð með Sigrúnu Ólajsdóttur,
þau eiga einn son. Lárus og Árni Þór
vinna báðirsem leikstjórar hjá SAGA-
FILM.
- • <*■ +■ < t .y- — .
„VorÍð“ .Auglýsinga- og kvikmyndagerð-
in sem ég vann í frítíma mínum frá Sjón-
varpinu um þetta leyti á árunum ‘77-78 var
farin að vera það umfangsmikil að RÚV var
yfirgefið og ég snéri mér að fullu að kvik-
myndagerðinni sem aðalstarfi," segir Jón
Þór.
„Okkur gekk vel strax frá upphafi og
auk þess að gera auglýsingar fyrir sjónvarp
bynuðum við fljótlega að framleiða kvik-
myndir. Árið 1978 gerðum við stuttmynd-
ina LILJU, með Hrafni Gunnlaugssyni sem
leikstjóra, stuttu síðar kvikmyndina Oðal
feðranna, einnig með Hrafni. Síðan kom
kvikmyndin Húsið í leikstjórn Egils Eð-
varðssonar. Þetta var skemmtilegur tími,
mikið að gerast, kvikmyndasjóður settur á
stofn og vor í lofti í íslenskri kvikmynda-
40