Frjáls verslun - 01.04.1999, Qupperneq 47
Þórður B. Pálsson framkvœmdastjóri jyrir framan Fraktlausnir.
Paþþírar sóttir til Cargolux.
tilviki Fraktlausna er þetta ekki rétt. Kostir
þess að eiga viðskipti við fyrirtækið og fá
það til þess að annast flutning vöru frá
framleiðslustaö til viðtakanda byggjast á
því í fyrsta lagi að innflytjendur þurfa ekki
að hafa áhyggjur af því að finna leiðir til að
flytja vöruna frá framleiðanda að flutn-
ingsfari. Fraktlausnir gera það því fyrirtæk-
ið er í samstarfi við miðlara um allan heim
sem sérhæfa sig í að veita þessa þjónustu
á mjög hagstæðu verði. í öðru lagi hefur
staða Fraktlausna, sem óháðrar flutnings-
miðlunar, það í för með sér að ævinlega
eru hagsmunir innflytjandans hafðir í fyrir-
rúmi þegar flutningsleið er valin. Ræður
þar einungis tími og verð. í þriðja lagi geta
Fraktlausnir boðið mjög hagstæð flutn-
ingsgjöld vegna magnsamninga hjá farm-
flytjendum. f fjórða og síðasta lagi sjá
Fraktlausnir um að fylgjast með sending-
unni frá því hún leggur af stað og þar til
hún er komin í hendur viðtakanda og láta
hann vita þegar í stað ef ófyrirséðar tafir
verða.
Hraðinn skiptir miklu máli „Við fylgjum
hlutunum eftir og leggjum metnað í að vita
hvar varan er stödd. Ef eitthvað óvænt
kemur upp á látum við viðskiptavininn vita
strax svo hann geti brugðist við í samræmi
við þetta. Hann þarf að sjálfsögðu ekki að
hafa fyrir því að fara sjálfur að grennslast
fyrir um vöruna," segir Þórður. „Þá er
einnig hægt að taka ákvörðun um það
hvort varan bíði eftir því að fara með þeim
flutningsaðila sem fyrst var valinn eða
hvort leita skuli annarra lausna. Og Þórður
ítrekar að þegar Fraktlausnir velji einn
farmflytjanda öðrum fremur, ef verðið er
það sama, þá byggist valið á því að við-
skiptavinurinn fái vöruna sem fyrst í hend-
ur. Hraðinn sé aðalatriðið í því tilviki.
„Um 90% af viðskiptavinum okkar eru
innflytjendur," segir Þórður „en við erum
jafnframt að senda vörur um allan heim, til
Chile, Bandaríkjanna, Japan og auðvitað
til meginlands Evrópu."
Getur minnkað fjármagnskostnað Þórður
segir að aukinn hraði og auknir möguleikar
á fraktflutningum með flugi hafi breytt
miklu fyrir innflytjendur. Nú geti menn val-
ið á milli þess að fá litlar en tíðar sending-
ar með flugi eða stórar sendingar með
nokkurra vikna eða mánaða millibili. Með
þessu megi draga úr fjármagnskostnaði
sem fylgi stórum lager. Fraktlausnir leggja
sig fram um að leiðbeina viðskiptavinum á
þessu sviði og benda þeim á hagkvæm-
ustu flutningsleiðina um leið og hún getur
orðið til þess að bæta þjónustu viðkom-
andi innflytjanda við viðskiptavini sína,
sem ekki þurfa að bíða lengi eftir næstu
vörusendingu.
Að lokum má geta þess að viðskipta-
vinir Fraktlausna þurfa ekki að bíða til
morguns komi skyndilega upp þörf á að
hafa samband við starfsmennina vegna
ófyrirséðra atvika í vöruflutningum. Ef
hringt er í síma 5 200 600 er svarað allan
sólarhringinn.
jar Skútuvogi 12e
JBSf CDAI/T Revkiavík
rnhfxi sfmi: 5 200 600
MLMJSMehf^ 3 5 200 601
Flutningsmiðlun
l'
:cargolux;
47