Morgunblaðið - 01.05.2001, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 9
HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða hefur
dæmt mann til greiðslu á 400.000
króna sekt til ríkissjóðs fyrir fisk-
veiðilagabrot og fyrir brot gegn lög-
gjöf um atvinnuréttindi vélstjórnar-
manna. Maðurinn var skipstjóri 6,8
tonna krókaleyfisbát en veiðar á
bátnum voru bannaðar utan leyfi-
legra sóknardaga. Skipstjórnendur
slíkra báta verða að tilkynna um upp-
haf og lok veiðiferðar á slíkum bátum
til Fiskistofu.
Skipverjar á varðskipinu Óðni fóru
til eftirlits um borð í bátinn hinn 24.
júlí í fyrra kl. 8.15 þar sem hann var á
handfæraveiðum austur af Horn-
bjargi. Þá kom í ljós að skipstjórinn
hafði tilkynnt um að hann hefði látið
úr höfn hálftíma fyrr. Fyrir rétti
sagði hann aðspurður að hann hafi
verið byrjaður að veiða þegar hann
náði sambandi við Fiskistofu. Hann
bar við að hafa lagt í ferðinni úr
Reykjarfirði á Ströndum sem er eyði-
fjörður. Farsímasamband sagði hann
slæmt í firðinum og það staðfestu tvö
vitni sem komu fyrir réttinn.
Í niðurstöðum dómsins segir að
það hafi verið ábyrgð skipstjórans að
tilkynna um upphaf veiðiferðar og
hann hafi sjálfur kosið að leggja upp
frá Reykjarfirði. Samkvæmt lögum
eigi að tilkynna um upphaf veiðiferð-
ar áður en lagt er úr höfn og var brot-
ið því fullframið um leið og hann lagði
af stað í veiðiferðina. Hann var því
fundinn sekur um fiskveiðilagabrot
og dæmdur til vægustu refsingar,
400.000 króna sekt enda var þetta
fyrsta brot mannsins. Skipstjórinn
var auk þess ákærður og sakfelldur
fyrir að hafa siglt bátnum án vél-
gæslumanns en sjálfur hafði hann
ekki vélgæsluréttindi. Engu breytti
þótt hann segðist kunna vel að fara
með vélina.
Erlingur Sigtryggsson héraðs-
dómari kvað upp dóminn.
Tilkynnti of seint um
upphaf veiðiferðar
Frá
Ítalskar dragtir
með pilsi og buxum
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Brúðargjafir Söfnunarstell
Gjafakort Áletranir á glös
Bæja r l ind 1 -3 , s ím i 544 40 44
Afmælis-og sölusýning
Ekta síðir refapelsar á kr. 75.000.
10% afsláttur af öllum ljósum.
Allt að 50% afsláttur af handunnum húsgögnum.
Mikið úrval af púðum, rúmteppum og dagdúkum.
Verið velkomin.
Opið virka daga frá 11—18 og laugard. frá 11-16
Sigurstjarnan
Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin),
sími 588 4545.
Bankastræti 14, sími 552 1555
Þýskar og danskar yfirhafnir
Kápur, jakkar og regnkápur
Gott verð
Mikið úrval af gluggatjaldaefnum
Skipholti 17a, sími 551 2323
Við ráðleggjum
og saumum fyrir þig
– sérverslun – Fataprýði
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, sími 553 2347.
Sumarfatnaður - stórglæsilegt úrval
Við erum í sólskinsskapi - vertu velkomin/n
Sérhönnun. St. 42-56
!
Neðst við Dunhaga
sími 562 2230
Opið virka daga kl. 10–18
Opið laugardaga kl. 10–14
Bómullardragtir
frá kr. 16.200
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík
sími 562 2862
Ný
sending
frá
Full
búð
af
nýjum
undirfötum
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473
STJÓRN Lánasjóðs íslenskra
námsmanna samþykkti í gær
endurskoðaðar úthlutunar-
reglur fyrir námsárið 2001 til
2002. Megin breytingarnar
felast í hækkun grunnfram-
færslu úr 66.500 krónum á
mánuði í 69.500 krónur eða
um 4,5% og hækkun frítekju-
marks úr 265.000 krónum í
280.000 eða um 5,7%.
Í báðum tilvikum er um
hækkun umfram vísitölu að
ræða. Einnig var reglan um
hámarksnámslengd rýmkuð.
Í fréttatilkynningu frá
Stúdentaráði Íslands fyrir
hönd námsmannahreyfing-
anna er breytingunum fagnað.
Fulltrúar námsmannahreyf-
inganna segja að með þeim sé
stigið skref í átt að sann-
gjarnara lánasjóðskerfi.
Í bókun sem fulltrúar
námsmannahreyfinganna
lögðu fram við samþykkt
reglnanna fagna þeir því að
sátt hafi náðst um hækkun
grunnframfærslu og telja að
hún feli í sér kjarabót fyrir
námsmenn.
Fulltrúarnir lögðu hins veg-
ar áherslu á það í bókun sinni
að enn væri langt í land með
að grunnframfærslan endur-
speglaði raunverulega fram-
færsluþörf námsmanna og
telja sig hafa sýnt fram á að
hún þurfi að hækka umtals-
vert meira til að svo sé. Einn-
ig ítrekuðu þeir kröfur sínar
um afnám tekjutengingar við
maka.
Stjórn Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna
Hækkun
námslána
samþykkt