Morgunblaðið - 01.05.2001, Side 28
VIÐSKIPTI
28 ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TALSVERÐ viðskipti voru með
hlutabréf í Húsasmiðjunni hf. síðast-
liðinn föstudag en samkvæmt áreið-
anlegum heimildum Morgunblaðsins
stóð Íslandsbanki-FBA hf. að baki
viðskiptunum, sem námu um 12,9
milljónum króna að raunvirði. Húsa-
smiðjan keypti ekki eigin bréf þrátt
fyrir að þau hafi staðið til boða.
Greint var frá því í Morgun-
blaðinu á föstudag að Húsasmiðjan
og Kaupás hf. væru að hefja við-
ræður um sameiningu fyrirtækj-
anna tveggja en bréf Húsasmiðjunn-
ar eru, sem kunnugt er, skráð á
Aðallista Verðbréfaþings Íslands.
Samdægurs urðu alls 13 viðskipti
með hlutabréf í Húsasmiðjunni að
verðmæti 12,9 milljónir króna en
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins átti Íslandsbanki-FBA
stóran þátt í þeim viðskiptum.
Bjarni Ármannsson, bankastjóri Ís-
landsbanka-FBA, kvaðst í gær ekki
geta tjáð sig um málið.
Við lok viðskipta föstudagsins var
gengi hlutabréfa Húsasmiðjunnar
18,10, hið sama og upphafsgengi
dagsins, en í gær hækkaði gengið í
18,50 í tveimur viðskiptum að verð-
mæti 450 þúsund krónur.
Meiri upplýsingar
en markaðurinn
Frá Húsasmiðjunni fengust þær
upplýsingar að fyrirtækið hefði ekki
keypt eigin bréf á föstudag þrátt
fyrir að þau hafi staðið til boða. For-
svarsmönnum fyrirtækisins hafi
ekki fundist kaupin réttlætanleg þar
sem fyrirtækið hefði vitneskju sem
markaðurinn hefði ekki, þ.e. um
samrunaviðræðurnar við Kaupás.
Stjórnarformaður Húsasmiðjunn-
ar sagði í frétt Morgunblaðsins á
föstudag að í sameiningu fyrirtækj-
anna tveggja lægju bæði samlegð-
artækifæri og tækifæri til hagræð-
ingar auk þess sem sameinað
fyrirtæki yrði áhættudreifðara.
Hann sagði ennfremur að nútíma-
verslunarrekstur væri sífellt meira
byggður á þekkingu og upplýsinga-
tækni.
Morgunblaðið hefur heimildir fyr-
ir því að samlegðaráhrifin af samein-
ingu Húsasmiðjunnar og Kaupáss
geti verið af ýmsum toga þrátt fyrir
mismunandi áherslur í vöruframboði
til neytenda. Telja megi til áhrif á
flutningskostnað og hagræði í flutn-
ingum, fyrirtækin flytja til að mynda
bæði vörur inn til landsins með gám-
um. Heimildirnar segja að samlegð-
aráhrifum megi jafnframt ná með
hagræðingu í yfirstjórn og ýmissi
bakvinnslu s.s. bókhaldi, upplýs-
ingakerfum og slíku. Þá geti sam-
einað fyrirtæki í krafti stærðarinnar
náð niður ýmiss konar kostnaði á
borð við tryggingakostnað auk þess
sem stærðin gefi færi á hagkvæmari
fjármögnun. Hins vegar sé dreifing
áhættunnar í rekstrinum einnig
mikilvæg í augum fjármögnunar-
aðila og sameinað félag komi til með
að vera mjög áhættudreift með sinn
dreifða tekjugrunn.
!
"#
!$%
&
#
#'&&
%
%
(%
)
*
&
"
+
#%
,-,./
0,"11 !' &
$)
!
"
####
$%
$
$
"
&' (
)
Ekki réttlætanlegt
að kaupa eigin bréf
Sameiningarviðræður Húsasmiðjunnar og Kaupáss
Hvað
dregur að?
Domenico Vitale
Ogilvy & Mather
Ucef Hanjani
Kirshenbaum,
Bond & Partners
Á námskeiðinu mun á líflegan og fræðandi hátt verða
fjallað um þann hag sem hægt er að hafa af mótun
markvissrar vörumerkjastefnu og hvernig hún getur
leitt til auglýsinga og markaðssamskipta sem höfða
beint til neytenda.
Domenico Vitale er yfirmaður stefnumótunar hjá Ogilvy
& Mather í New York og leiðir stefnumótunarhóp fyrir
Motorola World Wide. Hann var áður aðstoðarforstjóri
og yfirmaður stefnumótunar hjá Kirshenbaum, Bond
& Partners í New York og Saatchi & Saatchi í Róm.
Ucef Hanjani er hönnunarstjóri hjá Kirshenbaum, Bond
& Partners í New York. Meginverkefni hans þar eru
fyrir Hennessy, Möet & Chandon, Target Stores og
Credit Suisse. Hann var áður hönnuður hjá Ogilvy &
Mather í New York og vann þar m.a. að alþjóðlegum
verkefnum fyrir fyrirtæki á borð við IBM og Jaguar.
Námskeiðið er haldið
föstudaginn 4. maí
frá kl. 13.00–17.00
í studio.is,
Laugavegi 176
(gamla Sjónvarpshúsið)
Skráning er hjá XYZETA í síma 520 1900. Einnig er hægt að
senda tölvupóst á namskeid@xyz.is. Nánari upplýsingar á
www.xyz.is. Þátttökugjald: 12.900 kr.
Námskeið um mótun vörumerkjastefnu (Brand Planning)
fyrir auglýsinga- og markaðsfólk, föstudaginn 4. maí
í samstarfi við
X
Y
Z
E
T
A
/
S
ÍA
“Hvernig mótun vörumerkjastefnu
bjargaði lífi okkar en gæti klúðrað þínu!”
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
TIL athugunar er í fjármálaráðu-
neytinu hvort heimila eigi íslensk-
um fyrirtækjum sem hafa um-
fangsmikil viðskipti erlendis að
færa bókhald og gera ársreikninga
í erlendri mynt. Í vefriti ráðuneyt-
isins segir að þetta sé eðlilegt í
ljósi stöðugt aukinnar alþjóðavæð-
ingar og aukinna samskipta og
samruna íslenskra og erlendra fyr-
irtækja. Þetta mál er til skoðunar í
nefnd sem fjármálaráðherra skip-
aði til að endurskoða lög um árs-
reikninga. og er gert ráð fyrir að
endanlegar tillögur frá henni liggi
fyrir í haust.
Meginreglan um færslu bók-
halds hefur verið sú að bókhaldið
sé fært í íslenskum krónum enda
hafa viðskiptin farið fram í íslensk-
um krónum og afkoma fyrirtækj-
anna verið mæld í íslenskum krón-
um.
„Hins vegar er full ástæða til að
kanna vel hvort ekki sé rétt að
koma til móts við þau fyrirtæki
sem telja sér hag í því vegna við-
skipta sinna erlendis að færa bók-
hald sitt í erlendum gjaldmiðli.
Ýmsar nágrannaþjóðir okkar hafa
opnað fyrir slíkar heimildir. Skoða
þarf mjög vel hvaða skilyrði þarf
að setja áður en heimildin yrði
veitt. Væntanlega þarf að setja
skilyrði um umsvif viðskipta og
starfsemi erlendis, hvort viðkom-
andi fyrirtæki er með dótturfyr-
irtæki erlendis eða er dótturfyr-
irtæki erlends aðila. Fleiri skilyrði
þarf hugsanlega að setja,“ segir í
vefritinu.
Þar kemur fram að verði fyr-
irtækjum veitt heimild til að færa
bókhald og semja ársreikninga
sína í erlendum gjaldmiðli þurfi
einnig að taka afstöðu til þess
hvernig skuli ákvarða skattstofna,
álagningu og greiðslu skatta og
aðrar skyldubundnar upplýsingar
til skattyfirvalda. Ef skattauppgjör
eigi sér stað í erlendum gjaldmiðli
þurfi jafnframt að taka afstöðu til
þess hvort heimila eigi að greiðsla
skatta og opinberra gjalda fari
fram í sömu mynt.
„Er ljóst að gengisáhætta verður
til við slíkt fyrirkomulag. Þá kallar
uppgjör í erlendum gjaldmiðli
væntanlega á brottfall verðbreyt-
ingarfærslu og endurmats eigna.“
Kannað hvort heim-
ila eigi bókhald í
erlendri mynt
BANDARÍSKI fjölmiðlarisinn AOL
Time Warner á í viðræðum við breska
kapalsjónvarpsfyrirtækið NTL um
hugsanlegt samstarf fyrirtækjanna
um dreifingu á sjónvarpsefni AOL
um háhraða breiðbandsnet NTL í
Evrópu, er haft eftir New York Times
á fréttavef BBC.
Þar segir að forsvarsmenn AOL
vonist til að komast inn á Evrópu-
markað með samstarfi við NTL sem
rekur stærsta kapaldreifikerfi Bret-
lands. Viðskiptavinir NTL í Bretlandi
eru um 8,5 milljónir en dreifikerfi fyr-
irtækisins nær til um 20 milljóna
heimila í Evrópu.
Sérfræðingar segja skiljanlegt að
AOL Time Warner vilji á Evrópu-
markað því útlit sé fyrir að auglýs-
ingatekjur þess lækki vegna niður-
sveiflunnar í bandarísku efnahagslífi.
Ekki er búist við að AOL kaupi hlut
í NTL. Hins vegar er áætlað að tekjur
AOL af starfsemi utan Bandaríkj-
anna aukist verulega. Stjórnarfor-
maðurinn Steve Chase og forstjórinn
Gerald Levin reikna með að hlutfallið
aukist úr 17% af heildartekjum í 50%
innan 10 ára. NTL þarf einnig aukið
tekjustreymi en félagið hefur undan-
farið keypt marga keppinauta sína.
AOL Time
Warner á leið
inn á Evrópu-
markað