Morgunblaðið - 10.01.2002, Side 1

Morgunblaðið - 10.01.2002, Side 1
7. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 10. JANÚAR 2002 ábyrgð á árásinni og hún sýndi að ekkert væri að marka yfirlýsingar hans um að hann vildi vopnahlé. Palestínsk lögreglu- stöð eyðilögð Síðar um daginn réðust ísraelskir hermenn á þremur skriðdrekum og jarðýtum á palestínska lögreglustöð nálægt alþjóðaflugvellinum á Gaza- svæðinu og eyðilögðu hana. Hamas lýsti árásinni á herstöðina á hendur sér. Hreyfingin lýsti því yf- ir 21. desember að hún hefði orðið við áskorun Arafats um vopnahlé en leiðtogar hennar sögðu í gær að Hamas hefði aðeins lofað að hætta sprengjuárásum. Fréttaskýrendur sögðu árásina benda til þess að Hamas hygðist nú hefja skæruhern- að gegn ísraelskum hermönnum en hætta eða draga úr sjálfsmorðsárás- um á ísraelska borgara. TVEIR félagar í íslömsku hreyfing- unni Hamas réðust í gær á ísraelska herstöð nálægt Gaza-svæðinu og urðu fjórum hermönnum að bana. Árásarmennirnir féllu síðan í skot- bardaga. Er þetta í fyrsta sinn í tæpan mán- uð sem Palestínumenn verða Ísr- aelum að bana og árásin dregur mjög úr líkunum á því að nýtt sam- komulag náist um vopnahlé. Hermennirnir fjórir, sem biðu bana, voru í hersveit sem er nánast öll skipuð bedúínum, arabískum hirðingjum. Ættingjar árásarmann- anna sögðu að þeir hefðu einnig ver- ið bedúínar. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, kvaðst ætla að standa við lof- orð sín um vopnahlé og palestínska heimastjórnin fordæmdi árásina. Ar- iel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði hins vegar að Arafat bæri Sex menn falla í árás á her- stöð í Ísrael Jerúsalem. AP, AFP. Reuters Ísraelskir hermenn standa við vopn og lík tveggja Hamas-liða sem réðust á herstöð í Ísrael í gær. BANDARÍSK herflugvél hrapaði á fjall í Pakistan í gær þegar hún var á leiðinni til herflugvallar í suðvestur- hluta landsins. Að minnsta kosti sjö hermenn voru í vélinni en ekki var vitað í gærkvöldi hvort einhverjir þeirra hefðu komist lífs af. Björgun- arsveit var á leiðinni á staðinn. Vélin var af gerðinni KC-130, eða svonefnd Herkúles-vél, en slíkar vél- ar eru einkum notaðar til að dæla eldsneyti í orrustuþotur og þyrlur á flugi. Einnig er hægt að nota þær til birgða- og liðsflutninga, björgunar- starfa og sérstakra aðgerða. Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði að sam- kvæmt síðustu upplýsingum hefði vélin verið með farþega en hann lagði áherslu á að fréttirnar af at- burðinum væru enn mjög óljósar. „Við vitum ekki enn hvort manntjón hefur orðið.“ Embættismenn í bandaríska varn- armálaráðuneytinu sögðu að sjö menn hefðu verið í vélinni, sex manna áhöfn og einn farþegi. Segja að kviknað hafi í vélinni áður en hún hrapaði Í stuttri yfirlýsingu frá Banda- ríkjaher sagði að flugmennirnir hefðu verið að undirbúa lendingu þegar vélin fórst. Hún fór frá Jac- obabad í Pakistan og hrapaði nálægt herflugvelli í Shamsi, um 280 km suðvestan við borgina Quetta, klukk- an 15.15 að íslenskum tíma. Heimild- armaður fréttastofunnar AFP í bandaríska varnarmálaráðuneytinu sagði að vélin hefði verið að flytja birgðir. Pakistanskur blaðamaður, sem býr nálægt Shamsi, sagði að vélin hefði hrapað á afskekktu og strjál- býlu svæði í Balochistan-héraði og sjónarvottar segðu að eldur hefði komið upp í henni. „Íbúar á svæðinu sáu blossa frá brennandi flugvélinni áður en hún hrapaði.“ Embættismenn í bandaríska varn- armálaráðuneytinu sögðu að ekkert benti til þess að vélin hefði verið skotin niður en útilokuðu það ekki, að sögn CNN-sjónvarpsins. Bandarísk sprengjuþota hrapaði í Indlandshaf 12. desember og að minnsta kosti fjórar bandarískar þyrlur hafa hrapað frá því að Banda- ríkjamenn hófu hernaðaraðgerðirn- ar í Afganistan 7. október. Tveir menn biðu bana þegar þyrla fórst í sandbyl í Pakistan 6. október en áhafnir hinna þyrlnanna þriggja og sprengjuþotunnar björguðust. Bandarísk herflug- vél ferst í Pakistan Talið að sjö menn hafi verið í vélinni Washington. AFP, AP.BANDARÍKJASTJÓRN hef- ur lagt á hilluna átta ára og 1,5 milljarða dala áætlun um fram- leiðslu hásparneytinna bíla, og í staðinn ætlar hún að hvetja til þróunar bifreiða er knúnar eru vetni. Spencer Abraham orku- málaráðherra tilkynnti þetta formlega í Detroit í gær. Nýja þróunaráætlunin hefur verið kölluð „Frelsisbíllinn“, en stjórnin hefur verið lítt hrifin af þróunaráætlun sem ríkisstjórn Bills Clintons, fyrrverandi for- seta, lagði fram sem svar við þörf fyrir bætta nýtingu bif- reiðaeldsneytis. Ætlunin var að þróa fjölskyldubíla sem kæm- ust 129 km á 3,8 lítrum af elds- neyti. Áttu þessir bílar að líta dagsins ljós 2004. Frumgerðirnar tilbúnar eftir 4–5 ár Með því að nýta framfarir í loftaflfræði, vélasmíði og ný, léttari byggingarefni hafa verksmiðjurnar búið til frum- gerðir bíla sem komast 113 km á 3,8 lítrum, en ekki hefur tek- ist að fjöldaframleiða slíka bíla. Þess í stað vill ríkisstjórnin nú leggja áherslu á að hraða þróun vetnisknúinna bíla, en bandarískir bílaframleiðendur segjast væntanlega hafa frum- gerðir slíkra bíla tilbúnar eftir fjögur til fimm ár. Aftur á móti sé a.m.k. áratugur í að hægt verði að framleiða slíka bíla í miklu magni. Þróunarverkefnið verður samstarf stjórnarinnar og bílaverksmiðjanna General Motors, Ford og Daimler- Chrysler AG. Stjórnin hugar að vetnisbílum Washington. AP. Bandaríkin AUSTURRÍKISMENN eru andvígir kjarnorku, útlendingum og banda- rískum lífsháttum, en kunna að meta öryggi og röð og reglu, sam- kvæmt niðurstöðum könnunar á því, hvaða orð þeim hugnist best og verst. Óvinsælasta orðið í Austurríki er „kjarnorka“ og sögðu 69% lands- manna að þeim hugnaðist það ekki. Fast á hæla þess kom orðið „ísl- amismi“, sem 58% sögðust ekki kunna við. Fyrirtækið Imas vann könnunina. „Útlendingar“ er eitt af tíu óvin- sælustu orðunum í Austurríki og höfðu 48% illan bifur á því og sama hlutfall lýsti andúð sinni á „banda- rískum lífsháttum“. Önnur orð sem verma botninn í orðaforða Austur- ríkismanna eru „erfðatækni“ og „verkföll“. En vinsælustu orðin í huga lands- manna eru aftur á móti „öryggi“, sem fékk 82% fylgi, og 81% fellur vel við „heimili“ og „röð og regla“. Önnur vinsæl orð eru m.a. „stöð- ugleiki“ og „vinna“. Austurríkismenn hafa löngum verið eindregnir kjarnorku- andstæðingar og í þjóðaratkvæða- greiðslu 1978 voru hugmyndir um kjarnorkuver kveðnar í kútinn. Eitt þúsund manns tóku þátt í könn- uninni, en í næstu viku verður hald- in almenn atkvæðagreiðsla, sem ekki er bindandi, um fyrirhugað kjarnorkuver, sem setja á upp í ná- grannaríkinu Tékklandi. Hugnast ekki orðið „kjarnorka“ Vín. AFP. ingarnar skutu flugeldum og köst- uðu grjóti og flöskum á lög- reglumenn sem voru sendir á staðinn til að stilla til friðar. Að minnsta kosti fimm lögreglumenn særðust og brynvarin lögreglu- bifreið eyðilagðist þegar bensín- sprengju var kastað á hana. ÁTÖK blossuðu upp í gær milli ungra mótmælenda og kaþólikka nálægt kaþólskum stúlknaskóla á Ardoyne-vegi í norðurhluta Bel- fast. Hermt var að þrjú kaþólsk ungmenni hefðu verið flutt á sjúkrahús eftir að hafa orðið fyrir skotárás mótmælenda. Báðar fylk- Óeirðir í Belfast AP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.