Morgunblaðið - 10.01.2002, Blaðsíða 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BÆJARRÁÐ Garðabæjar hefur
samþykkt tillögur undirbúnings-
nefndar um byggingu nýs íþrótta-
húss í Hofsstaðamýri og vísað þeim
til bæjarstjórnar. Kostnaðaráætlun
vegna verksins er áætluð 460 millj-
ónir króna. Gert er ráð fyrir að húsið
verði tekið í notkun um áramót
2003–2004.
Að sögn Eiríks Bjarnasonar bæj-
arverkfræðings hefur verið unnið
með þessar hugmyndir í nokkur ár
og allt árið 2001 var nefnd að störf-
um við að þróa tillögur en hönnun
frumtillagna var í höndum teikni-
stofunnar Úti og inni. Í bréfi Eiríks
til bæjarráðs kemur fram að helsta
viðfangsefni nefndarinnar hafi verið
stærð og staðsetning íþróttahússins,
hvort í því ætti að vera einn eða tveir
handboltavellir og sömuleiðis stærð
og staðsetning kennslusundlaugar
sem verður í húsinu.
Segir Eiríkur það hafa verið nið-
urstöðu nefndarinnar að hafa í hús-
inu tvo handboltavelli. „Viðbótar-
kostnaðurinn við stækkunina var
tiltölulega lítill, eða eitthvað um 80
milljónir, svo menn vildu ekki sleppa
þessu tækifæri til að leysa stærra
vandamál.“
Athugað með göngu-
og hlaupabraut
Þá var ákveðið að kennslusund-
laugin verði 8 x 12,5 metrar að stærð
en þó verði kannað á hönnunartím-
anum hvort hagkvæmt og æskilegt
sé að stækka hana í 8 x 16,7 metra.
Er kostnaðaraukning af þeirri
stækkun áætluð um 10 milljónir
króna.
Loks verði athugað hvort unnt
verði að koma við göngu- og hlaupa-
braut í húsinu allt í kring um vellina.
Er áætlað flatarmál hússins 3.585
fermetrar, þar af verði salurinn
2.185 fermetrar.
Að sögn Eiríks mun íþróttahúsið
þjóna Hofsstaðaskóla og Fjölbrauta-
skólanum í Garðabæ auk annarra.
„Við erum með aðalíþróttahús bæj-
arins við Ásgarð og það hús, sem var
byggt árið 1975, var ekki af löglegri
stærð. Síðan var byggt við það og
gerður löglegur völlur árið 1989 en
þörfin er það mikil að þetta dugar
einfaldlega ekki lengur.“
Frumkostnaðaráætlun, sem mið-
ast við húsið án búnaðar, er sem fyrr
segir um 460 milljónir króna og það
er Garðabær sem fjármagnar bygg-
inguna alfarið.
„Framhaldið er að núna verður
þetta sett í hönnun sem tekur rúm-
lega hálft ár eða svo og fer svo í út-
boð væntanlega í haust. Það er stefnt
að því að húsið verði tekið í notkun
síðla árs 2003 eða í byrjun árs 2004,“
segir Eiríkur.
Íþróttahús í Hofsstaða-
mýri í burðarliðnum
Tölvumynd/Onno
Frumhönnun teiknistofunnar Úti og inni á íþróttamannvirkinu sem verður í grennd við FG og Hofsstaðaskóla.
Garðabær
ÞAÐ vantaði ekki kappið í þessa
pjakka á leikskólanum Lundabóli
þar sem þeir spiluðu fótbolta af
mikilli list á dögunum. Virðist
öllu fórnað til að ná til boltans og
engu líkara en að um mikilvægan
úrslitaleik sé að ræða. Ekki er
ósennilegt að hér séu á ferðinni
landsliðskappar framtíðarinnar
því ekkert virðist skorta á ákaf-
ann og keppnisskapið og með
slíkt í farteskinu eru menn til
allra hluta líklegir.
Morgunblaðið/Sverrir
Barist um
boltann
Garðabær
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt að taka tilboði Ræst-
ingarþjónustunnar í bón-
hreinsun og bónun gólfa í
grunnskólum Reykjavíkur
næstu tvö ár. Tilboðið var
næstlægst af þeim þrettán til-
boðum sem bárust og hljóðaði
upp á 49.787.550 sem eru 87
prósent af kostnaðaráætlun.
Lægra tilboð kom frá
hreingerningarþjónustunni
Blika og hljóðaði framreiknað
til tveggja ára upp á
38.697.340 krónur. Er það 68
prósent af kostnaðaráætlun.
Samkvæmt úttekt Innkaupa-
stofnunar á tilboðinu var það
ófullnægjandi í nokkrum
veigamiklum atriðum og má
þar nefna upplýsingar um
þjónustugetu, faglega
reynslu, fjölda starfsmanna
og val efna. Er talið að fyr-
irtækið sé ekki nægjanlega
öflugt til að valda verki af
þessari stærðargráðu en fram
kemur í gögnum frá Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur að flat-
armál þeirra gólfflata sem
bóna á er um 130 þúsund fer-
metrar.
Athugasemdir frá Blika
Í athugasemdum Blika sf.
vegna niðurstöðu Innkaupa-
stofnunar kemur fram að fyr-
irtækinu þyki undarlegt að
ekki hafi verið rætt við for-
svarsmenn þess þar sem til-
boð þess hafi verið um 11
milljón krónum lægra en hins
bjóðandans. Fyrirtækið hafi
alla burði til að skila um-
ræddu verki með ágætum.
Sömuleiðis eru gefnar upp
upplýsingar er varða nokkra
þeirra þátta sem óskað var
eftir í útboðinu.
Í greinargerð Innkaupa-
stofnunar vegna athugasemd-
anna kemur fram að sam-
kvæmt stjórnsýslulögum hafi
Innkaupastofnun ekki verið
skylt að leita eftir sjónarmið-
um eða upplýsingum frá bjóð-
endum sem þeir skiluðu ekki
„eins og þeim bar samkvæmt
útboðsgögnum.“ Þá verði ekki
séð að Bliki hafi burði til að
geta staðið undir því umfangi
sem verkið krefst. Fyrir hafi
legið að tilboð Blika uppfyllti
ekki skilyrði útboðsgagna og
því hafi verkkaupi ekki getað
tekið því.
Er það því niðurstaða borg-
arráðs að taka tilboði Ræst-
ingaþjónustunnar í verkið.
Um 50
milljónir í
bón og bón-
hreinsun
Reykjavík
SJÁLFSTÆÐISMENN í borgar-
stjórn gagnrýna ákvörðun meirihlut-
ans að fara í samstarf við Rauðhól
ehf. um uppbyggingu íbúðahverfis í
Norðlingaholti. Telur oddviti minni-
hlutans ekki fordæmi fyrir slíkri
samvinnu borgarinnar og bygginga-
verktaka.
Í bókun sjálfstæðismanna á borg-
arráðsfundi á þriðjudag segir að fjár-
málalegt samkrull borgarinnar og
tveggja byggingarfyrirtækja geti
ekki talist eðlilegt. Segir Inga Jóna
Þórðardóttir, oddviti sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn, að slíkt eigi að
vera á könnu markaðsaðila.
„Við hefðum alveg eins getað séð
þann möguleika að byggingaverk-
takar eða lóðaeigendur mynduðu
þetta félag og keyptu þá það sem
Reykjavíkurborg á. Skipulagsvaldið
og ábyrgðin er auðvitað borgarinnar
– það er hún sem þarf að skipuleggja
og hún getur gert það óháð því hvort
hún er í svona fjárhagslegu sam-
félagi við byggingaverktakana eða
ekki. Ég held að ekki séu dæmi um
þetta áður á vegum Reykjavíkur-
borgar. Byggingaverktakar hafa
hins vegar verið að taka tiltekin
svæði og þróa þau og það finnst mér
mjög jákvætt.“
Áframhaldandi uppboðsstefna
Í annan stað gagnrýnir minnihlut-
inn það sem hann kallar áframhald-
andi uppboðsstefnu á lóðum, sem
hafi stórhækkað byggingarkostnað
og íbúðarverð í Reykjavík. „Menn
eru búnir að setja sig í svolítið und-
arlega stöðu með þessu. Reykjavík-
urborg ætlar í þessum samningi að
taka til sín eða eiga kauprétt á 100
íbúðalóðum sem hún ætlar þá að taka
að sér að niðurgreiða. Afleiðingin af
þessu er sú að borgin verður að
kaupa lóðirnar á uppboðsverðinu og
niðurgreiða fyrir aðra sem ekki hafa
kaupgetu til þess,“ segir Inga Jóna.
Í þriðja lagi segir Inga Jóna að lít-
ið samráð sé við aðra lóðareigendur á
svæðinu en tæplega 20 hektarar eru í
eigu annarra aðila en borgarinnar og
Rauðhóls ehf.
Minnihlutinn gagnrýnir samning um uppbyggingu íbúðahverfis
Segir fjármálalegt
samkrull ekki eðlilegt
Norðlingaholt
KVEN-
SÍÐBUXUR
3 SKÁLMALENGDIR
Bláu húsin við Fákafen.
Sími 553 0100.
Opið virka daga 10-18,
laugardaga 10-16.
FASTEIGNIR
mbl.is