Morgunblaðið - 10.01.2002, Page 21

Morgunblaðið - 10.01.2002, Page 21
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2002 21 „ÉG ER þakklátur fyrir hvern dag sem líður án þess að nokkur kind veikist,“ segir Björn Pálsson, bóndi í Þorpum í Kirkjubólshreppi, en hann hefur orðið fyrir því að missa sjö kind- ur í haust og tíu í fyrravetur úr vot- heysveiki. „Það veiktust fimmtán ær á fyrstu vikunum eftir að ég tók á gjöf núna í haust en sjö þeirra eru að ná sér á strik og það hefur engin kind veikst síðan á jóladag svo ég vona að þetta sé yfirstaðið.“ Björn gefur nær eingöngu vothey og þegar fyrstu kindurnar féllu í fyrravetur var ein ær send í krufn- ingu, svo og heysýni. Sigurður Sigurðarson, dýralæknir á Keldum, hafði umsjón með krufn- ingunni og tók sýni: „Það kom í ljós að í heyinu voru svokallaðir Hvanneyr- arveikisýklar sem finnast í votheyi,“ sagði Sigurður. Þegar kindur fá súr- heysveiki myndast bólgur í miðtauga- kerfinu og ef veikinnar verður vart nógu snemma er hægt að lækna hana með lyfjum en það er mjög sjaldgæft að hún greinist í svo mörgum kindum á jafnstuttum tíma og í þessu tilviki. Í framhaldi af þessu var haft sam- band við fyrirtækið Lífafl í Eyjafirði en það sérhæfir sig í rannsóknum og þróun á varnarbúnaði og mælingum á segulsviði í byggingum. Brynjólfur Snorrason sem stýrir rannsóknum á þessu sviði hjá Lífafli sagði að við mælingu hefði komið í ljós að gamla rafskautið var farið að gefa sig og raf- og segulsvið voru óeðlilega há. Þá hefðu vaknað grunsemdir um að ekki væri allt með felldu. Settur var upp varnarbúnaður í fjárhúsin og skipt um inntakskassa sem var orðinn mjög lélegur og við þetta lækkuðu mæli- gildi mikið. Sigurður sagði að menn vissu ekki nógu mikið um þátt rafseg- ulsviðs varðandi heilsu í mönnum og skepnum. „Það má segja að þessir hlutir geti haft óheppileg áhrif en hvort tengsl eru þarna á milli er ekki fullkomlega vitað þótt það sé sjálfsagt að hafa þessi mál í lagi.“ „Ég hef tröllatrú á þessum rann- sóknum, hvort sem þessi atriði eru ástæðan fyrir veikindum kindanna eða ekki,“ sagði Björn. Hann hefur verið bóndi í Þorpum í rúmlega 20 ár, fyrst í sambýli við foreldra sína en tók alfarið við búinu við lát föður síns fyr- ir tveimur árum og segist aldrei hafa upplifað neitt þessu líkt. Missti 17 kindur úr votheysveiki Morgunblaðið/Arnheiður Guðlaugs Björn Pálsson í fjárhúsunum í Þorpum. Strandir JÓN Ingi Jónsson kvaddi jólin með því að sprengja nokkra flugelda. Jón Ingi segir að það sé eitt það skemmti- legasta sem hann geri að skjóta upp flugeldum bæði um áramót og þrett- ánda. Þessi áramót eru öðruvísi en mörg undanfarin áramót að því leyti að ekki er hægt að nota snjóskafla sem skotpalla heldur þurftu menn að nota ýmis ráð. Eins og myndin sýnir límdi Jón Ingi nokkrar tveggja lítra flöskur saman og fyllti allar af vatni nema eina sem var skotið úr. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Jón Ingi kveikir í flugeldi. Jólin kvödd Fagridalur STYRKTAR- og menningarsjóður Sparisjóðs Vestmannaeyja sem stofnaður var til minningar um Þor- stein Þ. Víglundsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóra, styrkti í lok ársins nokkra aðila eins og undanfarin ár. Að þessu sinni rann styrkurinn til fjögurra aðila og stofnana. Myndlistarmenninrnir Steinunn Einarsdóttir og Bennó Ægison fengu viðurkenningu fyrir framlag sitt til menningarmála á sviði mynd- listar, sérstaklega vegna framlags síns til eflingar myndlistar í Vest- mannaeyjum með námskeiðahaldi sem þau hafa staðið fyrir á umliðnum árum. Steinunn hefur einnig staðið fyrir námskeiðahaldi í A-Skaftafells- ýslu og Höfn og hlotið viðurkenningu fyrir þau störf. Báðir listamennirnir hafa haldið einkasýningar í Eyjum og tekið þátt í samsýningum. Stein- unn er borin og barnfæddur Vest- mannaeyingur fædd í Steinholti 1940, en Bennó fæddist í Prag í Tékklandi 1945 og fluttist til Vest- mannaeyja 1969. Jón Björnsson frá Bólstaðahlíð fékk styrk vegna framlags hans til varðveislu heimilda um íslensk skip. Hann hóf skipulagða söfnun árið 1979. Bókaflokkurinn Íslensk skip kom út í tvennu lagi árin 1999 og 2000 og eru 9 bindi í flokknum. Jón vinnur nú að upplýsingasöfnun um allan Eyjaflotann frá áraskipum til skipa dagsins í dag. Selma Ragnarsdóttir er ungur fatahönnuður sem fæddist í Eyjum 1972. Selma, sem er lærður kjóla- og klæðskerameistari, hefur getið sér gott orð sem hönnuður. Henni er veitt viðurkenning vegna framlags hennar til menningarmála á sviði fatahönnunar. Sérstaklega fyrir störf hennar við framkvæmd sýning- arinnar Midnight Sun Fashion Show sem fram fór í Eyjum sl. sumar og fékk gríðarlega kynningu í tísku- blöðum og sjónvarpsþáttum um tísku víða um heim. Rannsóknarsetri Háskóla Íslands í Vestmannaeyjum undir stjórn Páls Marvins Jónssonar líffræðings var einnig veitt viðurkenning. Styrkur- inn er veittur sem framlag til tækja- kaupa vegna sjávarrannsókna við Vestmannaeyjar en á því sviði hefur setrið unnið að margvíslegum verk- efnum og verður styrkurinn notaður til að greiða upp í fjarstýrðan kafbát sem rannsóknarsetrið hefur ráðist í að kaupa. Það var formaður stjórnar Spari- sjóðs Vestmannaeyja, Þór Í. Vil- hjálmsson, sem afhenti styrkina. Morgunblaðið/Sigurgeir Sparisjóður Vestmanna- eyja veitir styrki Vestmannaeyjar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.