Morgunblaðið - 10.01.2002, Síða 38

Morgunblaðið - 10.01.2002, Síða 38
UMRÆÐAN 38 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGINN 6. janúar sl. var Reykjavíkurbréf Morgunblaðs- ins helgað væntanlegum sveitar- stjórnarkosningum sem fram eiga að fara 25. maí 2002. Ekki síst var vikið að framboðsmálum sjálfstæð- ismanna hér á höfðuborgarsvæð- inu, þ.e. í Reykjavík og Kópavogi. Það vekur ánægju okkar Kópa- vogsbúa þegar borin eru saman þessi sveitafélög og árangur þeirra á umliðnum árum. Þá var í þessum pistli vikið að þeim vanda sem sveitarstjórnar- menn eiga við að etja þegar kemur að fréttaflutningi frá sveitarfélög- um og þá um leið hve illa okkur gengur að koma sjónarmiðum okk- ar á framfæri. Það er ekkert óeðli- legt við það að þegar fréttamenn leita upplýsinga þá sé fyrst leitað til þeirra sem forystuhlutverki gegna og þeir verði fyrir svörum. Það vekur hinsvegar athygli að mat fréttamanna á öðrum sem sinni sveitarstjórnarmálum sé þannig að ekkert gagn sé í þeim sem sveitarstjórnarmönnum. Þetta veikir aðra sveitar- stjórnamenn og gef- ur ekki sanna mynd af störfum þeirra. Í stórum sem litlum sveitarfélögum eru mörg verkefni sem þarf að sinna og þau verkefni taka sveitarstjórnarmenn að sér á óeigingjarn- an hátt og mín reynsla af sveitar- stjórnarmönnum er allt önnur en þessi fréttaflutningur gef- ur til kynna. Árangur í Kópavogi Sjálfstæðismenn í Kópavogi eru nú að undirbúa framboð sitt vegna kosninganna 25. maí. Ákveðið er að viðhafa prófkjör um val á frambjóðendum og á það að fara fram 9. febrúar nk. Þegar frestur til framboðs rann út 31. desember sl. komu aðeins fram framboð frá þeim sem skipa aðal- og vara- manna lista flokksins frá síðustu bæjar- stjórnarkosningum. Þetta vekur athygli vegna þess góða árang- ur sem við sjálfstæð- ismenn höfum náð á undangengnum árum og náð að standa við flest stefnumál og komið þeim í framkvæmd. Áhugi manna á að sinna þessum störfum sem skipta alla bæjarbúa miklu máli og ekki síst hvernig staðið er að fram- kvæmd á stefnumálum flokkanna er það áhyggjuefni. Því tek ég undir sjónarmið Morgunblaðsins heilshugar. En árangur sjálfstæðismanna í Kópavogi byggist að mínu mati á jákvæðri fjölskyldustefnu flokksins sem fram hefur komið í áherslu á skóla- og fjölskyldumál í víðtækum skilningi. Fyrir kosningarnar 1994 lögðu meirihlutaflokkarnir í Kópa- vogi áherslu á að einsetningu grunnskólanna yrði flýtt og henni lokið fyrir haustið 1997. Þetta gekk eftir og varð Kópavogur fyrst stóru sveitarfélaganna til að ein- setja grunnskólann. Þá var einnig lögð áhersla á að byggja upp framhaldsmenntun í Kópavogi og lagði bæjarfélagið fram verulega fjármuni til þessa máls og lánaði ríkinu þá fjármuni. Fyrir kosningarnar 1998 lögðu meirihlutaflokkarnir áherslu á leikskólamálin og nú er ljóst að nær öll 2ja ára börn mun fá leik- skóladvöl frá haustinu 2002. Mótuð hefur verið stefna í málefnum ný- búa í Kópavogi og áhersla lögð á að tryggja öllum skólavist við sitt hæfi. Öll þessi mál hafa gengið eft- ir á sama tíma og bæjarbúum hef- ur fjölgað um 8.000 manns. Enginn einn forustumaður hefur tryggt þennan árangur, því liðs- heildin skiptir öllu máli. Það hafa allir bæjarfulltrúar í Kópavogi gert því sveitarstjórnar- mál eru samstarfsverkefi allra þeirra sem í sveitarstjórn veljast á hverjum tíma. Pólitískur ágreiningur er að vísu um áherslur og hvernig standa eigi að málum, en þegar ákvarðanir hafa verið teknar skipti mestu að vel til takist að leysa málin. Áherslur Nú liggur fyrir að frambjóðend- ur til sveitarstjórna fara að marka stefnu flokkanna fyrir næsta kjör- tímabil. Á sveitarstjórnarsviðinu er mörg verkefni sem sinna verð- ur, en áhyggjuefni okkar er að sjálfsögðu veikur fjárhagur sveit- arfélaga almennt. Hvað eftir annað hefur ríkisvald- ið látið verkefni í hendur sveitarfé- laga, en ekki látið fylgja með fjár- muni sem nægja til að byggja upp og reka þessa málaflokka. Þau mál, sem nú er mest fjallað um, að séu til vandkvæða í sveit- arfélögum eins og Kópavogi eru nær öll í höndum ríkisins. Þar má nefna málefni eins og þjónustu fyrir aldraða, löggæslu- mál, framhaldskólamál, heilsu- gæslumál og samgöngumál. Þetta hlýtur að vekja okkur til umhugs- unar um hvernig samskiptum rík- isins og sveitarfélaga sé fyrir kom- ið í dag. Nýverið skilað nefnd sem fjallaði um samskipti þessara stjórnsýslustiga af sér áfangatil- lögum um verkaskiptingu. Þar var m.a lagt til að ríkisvald- ið tæki að sér stofnkostnað við framhaldskóla og heilsugæslu að öllu leyti. Í þessum málaflokkum er mest- ur vandinn á höfuðborgarsvæðinu. Undan löggæslunni hefur mest verið kvartað hér, vandi við þjón- ustu aldraðra er mestur á höfuð- borgarsvæðinu og engum sem um svæðið fer getur dulist vandi í samgöngum. Við sveitarstjórnarmenn hér á höfuðborgarsvæðinu höfum ástæðu til að standa saman að því að finna lausnir í þessum efnum. Það eru verkefni sem leggja verður áherslu á næsta kjörtíma- bil. Árangur með fjölskyldustefnu Bragi Michaelsson Kópavogur Kópavogur var fyrst stóru sveitarfélaganna, segir Bragi Michaelsson, til að einsetja grunnskólann. Höfundur er forseti bæjarstjórnar Kópavogs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.