Morgunblaðið - 10.01.2002, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 10.01.2002, Qupperneq 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2002 47 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S E D D 1 63 36 01 /2 00 2 Njóttu lífsins á réttan hátt! Handhægu heilsubækurnar Heilsubók fyrir alla Bókin hefur að geyma lýsingar á einkennum og orsökum fjölda sjúkdóma og upplýsingar um hvenær ástæða er til að leita sér hjálpar. Þá er fjallað um hvaða úrræði hefðbundin læknavísindi hafa gegn sjúkdómunum og lýst hvernig hægt er að bregðast við þeim með ýmsum óhefðbundnum lækningaaðferðum. Einnig er greint frá grundvallaratriðum helstu tegunda náttúrulækninga og hvernig ber að stunda þær. Hér gefst tækifæri til að nálgast á einum stað upplýsingar um hvernig hægt er að viðhalda góðri heilsu og verjast fjölda sjúkdóma á náttúrulegan hátt með bætiefnum og réttu mataræði. Gerð er grein fyrir hvers konar vítamín, steinefni og önnur bætiefni henta best í hverju tilfelli, hvaða fæði er æskilegt og hvað ber að varast. Auk þess er í bókinni að finna töflur þar sem gerð er grein fyrir virkni og notkun bætiefnanna og hvernig þau henta ólíkum aldursskeiðum. 30%afsláttur 1.750 kr. TILBOÐSBÓK MÁNAÐARINS SÆBJÖRG, Slysavarnaskóli sjó- manna, hefur fengið Viking björgunarbúning, Standard COM neyðarsendi sem einnig er með 406 MHZ kóðuðum sendi og Ocenco neyðar/flóttareykköf- unargrímu að gjöf frá ICEDAN. Á myndinni eru fulltrúar frá gefendum, ICEDAN og áhöfn Slysavarnaskólans, talið frá vinstri: Ólafur Steinarsson, ICE- DAN, Þráinn Skúlason, Aðalbjörg Erlendsdóttir, Einar Haraldsson, ICEDAN, Einar Örn Jónsson, Ei- ríkur S. Aðalsteinsson, Ingi- mundur Valgeirsson, Hilmar Snorrason skipstjóri og Halldór Almarsson. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Slysavarnaskóli sjómanna fær gjöf FRAMKVÆMDASTJÓRN Starfs- greinasambands Íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem harðlega er mótmælt þeim hækkunum á opin- berum gjöldum og þjónustu sem tek- ið hafa gildi að undanförnu. „Með þessum hækkunum er verið að stefna í hættu þeim markmiðum sem Alþýðusambandið og SA settu sér með samkomulaginu 13. desember sl.,“ segir í ályktuninni. Starfsgreinasamband Íslands átelur harðlega þær hækkanir sem urðu á heilbrigðisþjónustu og lyfja- kostnaði síðustu misseri. Bitnar verst á láglauna- fólki og öryrkjum „Framkvæmdastjórnin telur það einkennilegt innlegg í viðleitni aðila vinnumarkaðarins til að koma bönd- um á vaxandi verðbólgu undangeng- inna mánaða, að auka kostnað not- enda heilbrigðiskerfisins. Þessar hækkanir bitna hvað verst á lág- launafólki, barnafjölskyldum, ör- yrkjum og eftirlaunafólki. Með þessum hækkunum ætlar rík- isstjórnin að bæta stöðu ríkissjóðs um hálfan milljarð á sama tíma og hún léttir sköttum af þeim sem tekjuhæstir eru. Í úttekt á kostnaðarþátttöku not- enda lyfja í heilbrigðisþjónustu kom fram að hann hefur margfaldast á síðustu tíu árum. Þannig vegur rík- isstjórn Davíðs Oddssonar stöðugt að hag sjúkra og lífeyrisþega. Framkvæmdastjórn Starfgreina- sambandsins skorar á fólk að kynna sér vandlega framgöngu ríkis- stjórnarflokkanna í þessum efnum. Sveitarfélög sem nú hafa í sínum fjárhagstillögum kynnt verulegar hækkanir á útsvari og gjöldum sýna að þau telja sig geta spilað ábyrgð- arlaust í þeirri verðbólgu sem teflir efnahagslegum markmiðum síðustu kjarasamninga nú í tvísýnu. Þessi óábyrga stefna ríkis og sveitarfélaga er með öllu óviðunandi og gengur þvert á þá viðleitni aðila vinnumarkaðarins að koma böndum á efnahagsmarkmið kjarasamn- inga,“ segir í ályktun Starfsgreina- sambandsins. Ályktun Starfsgreinasambandsins um hækkanir á opinberri þjónustu Vegið að mark- miðum ASÍ og SA STÖÐ 1 hefur nú tífaldað sendistyrk sinn með nýjum búnaði sem settur var upp á gamlársdag. Ná útsending- ar Stöðvar 1 nú til allra heimila á Faxaflóasvæðinu um hefðbundið dreifikerfi. „Sent er út á rás 21, og allir sem hafa hefðbundið loftnet eiga því auð- velt með að nema útsendingar stöðv- arinnar, sem nú sendir út sjónvarps- efni allan sólarhringinn. Hefðbundnar útsendingar með fullmótaðri dagskrá hefjast með vor- inu, og er Stöð 1 að hefja uppsetningu á fjarskiptamannvirkjum á Akureyri, Selfossi og í Borgarnesi. Gerður hef- ur verið samstarfssamningur við Fjarskiptafélagið Fjarska um dreif- ingu myndefnis Stöðvar 1 um landið. Þá hefur Stöð 1 gert samstarfs- samning við Ríkisútvarpið um að- stöðu á Vatnsenda sem hýsir útsend- ingar og loftnetastæðu fyrir hefð- bundið dreifikerfi, en öll slík loftnet vísa í átt að Vatnsenda. Nýverið eignaðist Stöð 1 einnig út- varpsstöðina 101 Reykjavík, og munu útsendingar þeirrar stöðvar hefjast aftur á næstunni, en nýtt dreifikerfi hefur verið sett upp. Jafn- framt mun Útvarp 101 Reykjavík fylgja eftir Stöð 1 í uppbyggingu sinni um landið. Framundan er dreif- ing Stöðvarinnar á örbylgju og um hin ýmsu kapalkerfi,“ segir í frétta- tilkynningu. Stöð 1 tífaldar sendistyrk sinn MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Félagi ís- lenskra kjötiðnaðarmanna: „Fjölmennur félagsfundur hjá Fé- lagi íslenskra kjötiðnaðarmanna sem var haldinn á Stórhöfða 31 mánudag- inn 7. janúar mótmælir harðlega þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið við samruna kjötiðnaðar- fyrirtækja að undanförnu. Mótmælt er þeim vinnubrögðum Ferskra kjötvara, með fulltingi Slát- urfélags Suðurlands, að segja fag- mönnum í kjötiðnaði, kjötiðnaðar- mönnum, upp störfum á sama tíma og auglýst er eftir ófaglærðum verkamönnum til kjötiðnaðarstarfa. Þá er og mótmælt vinnubrögðum Norðlenska matborðsins gagnvart kjötvinnslunni í Borgarnesi. Fyrir- tækið yfirtók Goða og þar með Borg- arnes kjötvörur ásamt þriggja ára leigusamningi en starfar aðeins í 6 mánuði. Ljóst má vera að tilgangur með yfirtökunni var sá einn að leggja niður starfsemina í Borgarnesi. Fundurinn varar kjötiðnaðarfyrir- tæki við að láta stóru verslanakeðj- urnar Baug og Kaupás, sem eru markaðsráðandi fyrirtæki, vaða uppi með óeðlilegum yfirgangi við inn- kaup á kjötvörum.“ Kjötiðnaðarmenn mótmæla vinnu- brögðum DAGUR Nella nágranna verður haldinn laugardaginn 12. janúar. Deginum er ætlað að kynna tóm- stundastarf fyrir börnum á aldr- inum 6–12 ára sem eru í Austurbæj- arskóla, Háteigsskóla, Hlíðaskóla og Álftamýrarskóla. Að deginum stendur Forvarna- félagið Samtaka. Fjölskylduhátíð verður í Tónabæ kl. 16.30–18 þar sem boðið verður upp á skemmtiatriði, m.a. barnakór, borðtennissýningu og dans. Þá verður og nýi bókabíllinn framan við Tónabæ á meðan hátíðin er. Einnig munu eftirtalin félaga- samtök og fyrirtæki verða með opið hús kl. 13–16: Glímufélagið Ár- mann, Skátafélagið Landnemar, Tennis- og badmintonfélag Reykja- víkur, Balletskóli Eddu Scheving, Dansskóli Jóns Péturs og Köru, Jazzballetskóli Báru, Enskuskólinn, Knattspyrnufélagið Fram, Háteigs- kirkja, Hallgrímskirkja, Félagsmið- stöðin Tónabær, Karatefélagið Þórshamar og KFUM&KFUK í Friðrikskapellu. Dagur Nella nágranna MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Dýralækna- félagi Íslands: „Vegna umræðna um flutning til- raunastöðvarinnar á Keldum vill haustfundur DÍ leggja áherslu á að hér á landi til samræmis við önnur lönd verði stofnuð sérstök Rann- sóknarstofnun dýrasjúkdóma, sem verði sjálfstæð stofnun á háskóla- stigi sem byggist í stórum dráttum á núverandi starfsemi Keldna auk þess að vera faglegur bakhjarl dýra- læknastarfsemi hér á landi.“ Vilja að stofnuð verði rannsóknarstöð KRISTJÁN L. Möller alþingismað- ur Samfylkingarinnar er á ferð um Norðurland. Í dag, fimmtudag, verð- ur hann á Akureyri og á föstudag í Skagafirði þar sem hann verður með kaffispjall í Ströndinni á milli kl. 17 og 19, segir í fréttatilkynningu. Þingmaður á ferð um Norðurland NÁMSKEIÐ vorannar á vegum Tölvumiðstöðvar fatlaðra eru að hefjast. Námskeiðin eru ætluð fag- fólki og foreldrum fatlaðra barna. Foreldrar fatlaðra barna fá afslátt á námskeiðin. Upplýsingar á heima- síðunni www.tmf.is. Tölvunámskeið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.