Morgunblaðið - 08.03.2002, Side 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 8. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Heimilisdagar
hreinlætistæki
Sími 525 3000 • www.husa.is
glæsilegt úrval
20-40% afsláttur
rykmottur í úrvali
stærðir: 40x60 cm,
60x90 cm og 90x150 cm
ekkert lím, bara að leggja
Verð 1.690 kr. m2
Frábært verð
Parket frá Lamella og Tarkett
Verð frá 3.250 kr. m2
gólfefni
málning
ljós
Smellt ALLOC home parket
10-40%
afsláttur
Heimilisdúkar
Mikið úrval af mottum
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna
Hefur leitt
fram umbætur
Alþjóðlegur baráttu-dagur kvenna er ídag og í tilefni hans
er bryddað upp á einu og
öðru víða um lönd, ekki síst
hér á landi. Nokkur stétt-
arfélög og hópar standa nú
saman að hátíðarhöldum á
þessum baráttudegi
kvenna. Tilgangurinn er að
vekja athygli á vinnufram-
lagi kvenna og hafa hóparn-
ir sent frá sér sameiginlegt
ávarp í tilefni dagsins. Þór-
unn H. Sveinbjörnsdóttir
er í forsvari fyrir umrædda
hópa og hún svaraði nokkr-
um spurningum Morgun-
blaðsins.
– Hversu lengi hefur al-
þjóðlegur baráttudagur
kvenna verið haldinn?
„Alþjóðlegur baráttu-
dagur kvenna hefur verið
haldinn sem sérstakur baráttudag-
ur frá 1910 þó með hléum, m.a. á
stríðsárunum. Síðan hafa staðið að
honum ólíkir hópar eftir því hvað
hefur verið efst á baugi, en langoft-
ast hefur hannverið helgaður
kjarabaráttu kvenna og baráttu
fyrir friði. En hér á landi er dags-
ins sennilega fyrst minnst 1948. Nú
í dag standa ýmis kvennasamtök
að 8. mars. Dagurinn á sér afar for-
vitnilega sögu sem sýnir í hnot-
skurn að baráttumálin hafa þróast
í takt við það sem hefur áunnist.
Sameinuðu þjóðirnar lýstu árið
1975 alþjóðlegt kvennaár og
ákváðu jafnframt að 8. mars skyldi
vera alþjóðlegur kvennadagur
sameinuðu þjóðanna.“
– Er dagurinn sem slíkur mikils
virði?
„Þessi dagur er afar mikils virði
og sýnir sagan að hann hefur leitt
fram umbætur á mörgum sviðum
sem sérstaklega snerta konur. Þá
er það einnig mikilvægt að sérstak-
ur dagur sé ætlaður jafn mikilvæg-
um málaflokki og réttindi og kjara-
baráttu kvenna.“
– Hverjir standa að deginum að
þessu sinni?
„ASÍ – BSRB – Jafnréttisstofa –
Kvenréttindafélag Íslands –
Reykjavíkurborg og SÍB hafa tek-
ið höndum saman um að vekja sér-
staka athygli á vinnuframlagi
kvenna og senda frá sér sameig-
inlegt ávarp af því tilefni.“
– Miðað við þjóðfélagið í dag,
hverjar eru helstu áherslurnar nú
um stundir?
„Margt hefur áunnist í jafnrétt-
isbaráttunni á undanförnum árum
og áratugum. Mikilvægi vinnu-
framlags kvenna er óumdeilt. Og
konur hafa verið að sækja fram á æ
fleiri sviðum. Þó eru mörg verkefni
óleyst. Má þar fyrst nefna launa-
misrétti kynjanna þar sem veru-
legur hluti launamunarins verður
eingöngu skýrður með misrétti
kynjanna óháð félagslegum þátt-
um eða ólíku vinnuframlagi. Jafn-
réttisáætlanir sem nú er að finna í
lögum eru vonandi nýtt tæki til að
útrýma launamun kynjanna auk
kynhlutlauss starfsmats. Einnig
höfum við áhyggjur af
óhóflega löngum vinnu-
degi og miklu álagi sem
einkennir íslenskt sam-
félag. Aðbúnaður og
vinnuvernd eru ofar-
lega í umræðunni og þarf að auka
þekkingu starfsmanna á heilsu-
vernd á vinnustöðum. Að lokum
viljum við nefna að æ fleiri fyrir-
tæki eru að taka upp fjölskyldu-
væna starfsmannastefnu og er það
eitt af okkar baráttumálum að
þeim fjölgi jafnt og þétt sem það
gera.“
– Er þessi kvernnabarátta eilífð-
arbarátta?
„Kvennabaráttan varir þar til
fullu jafnrétti er náð og um það
ætti að vera samstaða á milli karla
og kvenna þar sem hagsmunir
beggja eru ótvíræðir. Útrás
kvenna á vinnumarkað hefur fært
konum aukið álag við að mæta öll-
um kröfum sem vinna, heimilis-
störf og umönnun barna og oft
eldri fjölskyldumeðlima krefst af
þeim. Það er því mikilvægt að bæði
kynin taki virkan þátt í heimilis-
störfum og umönnun og uppeldi.
Þar hallar enn verulega á á milli
kynjanna.“
– Eru jafnréttissinnar ánægðir
með ímynd sína og er hún að ná ár-
angri?
„Ég tel að jafnréttissinnar séu
það í dag. Það er hljómgrunnur
fyrir jafnréttisbaráttunni þar sem
körlum er æ ljósara hversu hags-
munir þeirra og fjölskyldunnar í
heild eru miklir. Karlar og konur
vinna í dag saman að því að ná
markmiðum sínum fram. Ímyndin
hefur breyst og felst sú breyting
m.a. í því að þetta er í dag sameig-
inleg barátta kynjanna og það
skiptir afar miklu máli til að ná ár-
angri.“
– Hvað verður helst gert í dag í
tilefni dagsins?
„Nú í dag verður
haldinn fundur á Grand
hóteli kl. 8.30 með yfir-
skriftinni „Framlag
kvenna gerir gæfumun-
inn“, en þar verða flutt erindi af
Lilju Mósesdóttur um vinnufram-
lag kvenna, Hólmfríði K. Gunnars-
dóttur um konur og vinnuvernd og
Hildi Jónsdóttur um möguleikana
sem felast í gerð jafnréttisáætlana.
Fundurinn stendur í um eina
klukkustund. Fleiri félagasamtök
minnast dagsins með dagskrá sem
tengist öðrum hliðum baráttunn-
ar.“
Þórunn H.
Sveinbjörnsdóttir
Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir
fæddist á Hofstöðum á Snæfells-
nesi árið 1945. Gagnfræðingur
1960 og lauk síðan ýmsum nám-
skeiðum á sviði leikskóla-
starfsemi, stjórnunar og félags-
mála. Vann fyrst við
verslunarstörf, síðar á leik-
skólum og loks 1985 hóf hún
störf hjá Sókn. Formaður Sóknar
frá 1987 og þar til félagið sam-
einaðist öðrum félögum og
myndaði Eflingu – stéttarfélag.
Þar er hún nú fyrsti varafor-
maður. Maki er Þórhallur Run-
ólfsson, íþrótta- og íslenskukenn-
ari, og eiga þau þrjú börn,
Áslaugu Valgerði uppeldisfræð-
ing, Runólf, laganema og lög-
reglumann, og Sveinbjörn bif-
vélavirkja. Barnabörnin eru
fimm.
…þar hallar
enn verulega
á milli…
Rústabjörgun skal reynd á meðan einhver von er um að enn leynist pólitískt lífsmark í brakinu.