Morgunblaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 39
Til íslensku þjóðarinnar
og íslensku ríkisstjórnarinnar
– frá Vinum Falun Gong
Við, sem erum mannréttindahreyfing er helgar sig stuðningi við
trúfrelsi þeirra sem iðka Falun Gong, erum snortin yfir öflugum og
hvetjandi stuðningi íslensku þjóðarinnar við Falun Gong. Við höfum fengið
fjölmargar kveðjur og orðið vitni að alúðlegum stuðningsaðgerðum hennar
og erum full þakklætis.
Það er kvíðvænlegt að sjá hvernig einræðisaðferðir kínverskra stjórnvalda
hafa breiðst út til þessarar ljúfu þjóðar sem á sér elsta lýðræði heims.
Kínverski einræðisherrann, Jiang Zemin, hefur beitt öllum þeim ráðum sem
honum eru tiltæk til að standa fyrir hatursherferð sinni, þar með taldar
hótanir um efnahagslegar þvinganir gegn erlendum ríkisstjórnum.
Ríkisstjórn hans sendi út „svartan lista“ og þess
vegna eru margir tugir Falun Gong iðkenda nú
strandaglópar í flughöfnum um heim allan eftir
að hafa verið neitað um flugfar til Íslands.
Þeir verða að greiða hóteldvöl, mat og annan
ferðakostnað sem ekki hafði verið gert ráð fyrir.
Hver ber ábyrgð á þessu? Og hvernig kom þessi
„svarti listi“ til sögunnar? Flestir þeirra sem á
listanum eru hafa ekki verið talsmenn Falun
Gong eða sérstaklega virkir félagar, hvernig var
þá nöfnum þeirra safnað saman?
Það sem nú gerist á Íslandi fyrir allra augum er að harðstjóri spillir lýðræðislegum stofnunum í frjálsu
ríki með það fyrir augum að auka enn frekar ofsóknir sínar á hendur Falun Gong. Sama hefur verið
uppi á teningnum, þótt minna hafi farið fyrir því, um Bandaríkin öll og víðar undanfarin þrjú ár.
Kínverskir ráðamenn hafa þvingað staðbundin yfirvöld og ráðamenn ríkja til að verða við óskum
stjórnar Jiangs um að hætta stuðningi við Falun Gong. Í lýðfrjálsum ríkjum um heim allan deilir fólk
hneykslun Íslendinga á því sem er að gerast.
Þeir einstaklingar sem ákváðu að fara til Íslands áttu sér þá ósk eina að láta Jiang Zemin vita að
umheiminum stendur ekki á sama um þá saklausu karla, konur og börn sem hann hefur skipað svo
fyrir um að yrðu barin, pynduð eða jafnvel myrt undanfarin þrjú ár fyrir það eitt að leggja stund á
Falun Gong. Þúsundir saklausra karla og kvenna hafa verið sendar í hræmulegar þrælabúðir, að
minnsta kosti 100.000 iðkendur hafa verið settir í fangelsi án dóms og laga og á fimmta hundrað
hafa verið drepnir.
Hvernig getur samfélag þjóða látið sem ekkert sé gagnvart þessum glæpum gegn mannkyni?
Eða það sem verra er, hvernig er hægt að sætta sig við þá? Við erum sannfærð um að enginn með
samviskuna í lagi getur sætt sig við þannig ódæðisverk þegar af þeim fréttist og því er það undir
okkur komið að fræða umheiminn um hvað sé á seyði. Við vonumst til að þið haldið áfram að taka
vel á móti Falun Gong og veita þessari friðsamlegu starfsemi stuðning.
Vinir Falun Gong vilja lýsa yfir einlægu þakklæti sínu við íslensku þjóðina og fjölmiðla
hennar og styðja hana í því að hvetja ríkisstjórn Íslands til að aflétta nú þegar ferðabanni
á iðkendur Falun Gong til Íslands. Okkur sýnist þetta vera afbragðstækifæri til að sýna
heiminum öllum að ekki er hægt að stofna meginreglum þess frelsis, sem vestræn
lýðræðisríki rækta með sér, í voða vegna krafna kínversks kommúnistaharðstjóra.
Með vinsemd og virðingu,
Vinir Falun Gong,
mannréttindasamtök
sem ekki starfa í hagnaðarskyni.
Friends of Falun Gong Europe: www.freecfm.com/f/FOFG-europe/introduction.htm eða 020-8422-7789 (UK)
Friends of Falun Gong USA: www.fofg.org eða 1-866-343-7436 (USA)
Vinátta
United in Support of Falun Gong
Practitioner´s Freedom of Belief