Morgunblaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 1
139. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 15. JÚNÍ 2002
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti kenndi í gær
„róttækum morðingjum“ um sprengjutilræði við
ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í Karachi í
Pakistan sem olli dauða ellefu manna. Bush gekk
hins vegar ekki svo langt að fullyrða al-Qaeda
hryðjuverkasamtök Osama bin Ladens hefðu stað-
ið fyrir ódæðinu og áður óþekkt samtök, Tarjuman
al-Qanoon, lýstu ábyrgð á verkinu á hendur sér.
Þau hótuðu frekari árásum og sögðu aðgerðir sínar
miða að því, að skaða Bandaríkin og leppstjórn
þeirra í Pakistan.
Bandaríkjamenn brugðust við árásinni með því
að fyrirskipa þegar lokun sendiráðs þeirra í Pak-
istan, sem og ræðismannsskrifstofa í Lahore og
Peshawar, og er óljóst hvenær byggingarnar verða
opnaðar gestum að nýju.
Þetta er fjórða árásin í Pakistan á þessu ári sem
beinist að vestrænum skotmörkum, en 8. maí sl.
fórust ellefu Frakkar og þrír Pakistanar þegar bíll
var sprengdur í loft upp fyrir framan Sheraton-
hótelið í Karachi. Talið er að al-Qaeda hafi þar verið
að verki.
Sagði vestrænn stjórnarerindreki, sem starfar í
Karachi, að allt benti til að tengsl væru á milli
sprengjutilræðanna en sem fyrr segir vildu Banda-
ríkjamenn ekki ganga svo langt í gær að fullyrða að
al-Qaeda hefði hér lagt hönd á plóg.
Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins, sagði til-
ræðið sýna svart á hvítu þá ógn sem Bandaríkj-
unum stafaði af alþjóðlegum hryðjuverkamönnum.
„Þetta minnir okkur á að bandaríska þjóðin á í
stríði við hryðjuverkamenn sem eru reiðubúnir til
að beita öllum brögðum til að bana Bandaríkja-
mönnum og öðrum.“
Engir Bandaríkjamenn í hópi látinna
Talið er fullvíst að um sjálfsmorðsárás hafi verið
að ræða og að ódæðismaðurinn hafi verið meðal
þeirra ellefu sem létust. Talsverðar skemmdir urðu
á ræðismannsskrifstofunni en engir Bandaríkja-
menn eða aðrir erlendir ríkisborgarar voru í hópi
þeirra sem biðu bana. Hins vegar fórust fjórir pak-
istanskir lögreglumenn, sem höfðu það hlutverk að
tryggja öryggi skrifstofunnar. Aðrir voru óbreyttir
borgarar, sem fyrir tilviljun voru þarna á ferð er at-
burðurinn átti sér stað. Um fjörutíu manns til við-
bótar særðust.
Svo virðist sem Suzuki-jeppa, sem fullur var af
sprengiefni, hafi verið ekið á talsverðum hraða á
lögregluvarðstöð við inngang ræðismannsskrifstof-
unnar. Sprengingin var svo öflug að hún myndaði
stóran gíg í jörðina og gat var á veggnum, sem um-
lukti innkeyrslu ræðismannsskrifstofunnar.
Árásin kemur aðeins degi eftir að Donald Rums-
feld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, heim-
sótti Pakistan í því skyni að þrýsta á stjórnvöld í
landinu að ráða niðurlögum múslimskra öfga-
manna og draga úr spennu í samskiptum Indlands
og Pakistans.
Sendiráði Bandaríkj-
anna í Pakistan lokað
Ellefu manns biðu
bana í sprengjutilræði
í borginni Karachi
Reuters
Hópur öryggisfulltrúa skoðar aðstæður á
vettvangi sprengjutilræðisins í gær.
Washington, Karachi. AFP, AP.
ÞÚSUNDIR Suður-Kóreubúa fögn-
uðu því í gær innilega að knatt-
spyrnulandsliði þeirra skyldi í
fyrsta skipti takast að vinna sig upp
úr undanriðli í lokakeppni heims-
meistaramótsins í knattspyrnu en
S-Kórea vann óvæntan 1-0 sigur á
Portúgölum. S-Kórea mætir Ítölum
í 16-liða úrslitum keppninnar en
hún er haldin í S-Kóreu og Japan.
Og ekki var gleðin minni í Japan
þar sem heimamenn unnu sigur á
Túnis, 2-0. Þeir mæta Tyrkjum í
16-liða úrslitum, sem hefjast í dag.
Reuters
Draumurinn rættist
Portúgalar/B2–B4
NORSKU stjórnarandstöðuflokk-
arnir hafa ákveðið að hindra áform
minnihlutastjórnarinnar í Noregi um
frekari einkavæðingu ríkisfyrirtækja
þegar þau verða borin undir atkvæði
á þinginu á þriðjudaginn kemur.
Samkvæmt tillögum stjórnarinnar,
sem voru lagðar fram í apríl, er stefnt
að því að selja hlutabréf í stórfyrir-
tækjum á borð við olíufélagið Statoil,
samsteypuna Norsk Hydro og fjar-
skiptafyrirtækið Telenor. Meirihluti
flokkanna, sem eiga sæti í viðskipta-
nefnd þingsins, samþykkti hins vegar
í fyrrakvöld að hindra áformin þar
sem þeir eru andvígir því að dregið
verði frekar úr áhrifum ríkisins í mik-
ilvægum fyrirtækjum.
„Stjórnin fékk ekki heimild til frek-
ari sölu á hlutabréfum ríkisins,“ sagði
formaður nefndarinnar, Olav Aksel-
sen, þingmaður Verkamannaflokks-
ins. „Núna getum við haldið fyrir-
tækjunum í Noregi.“
Stjórnin seldi 17,5% hlutabréfa rík-
isins í Statoil fyrir ári og 21% í Tele-
nor í desember. Hlutur ríkisins í
Norsk Hydro minnkaði úr 51% í 44%
árið 1999.
Í tillögum minnihlutastjórnarinn-
ar, sem þrír mið- og hægriflokkar
mynduðu í fyrra, kom ekki fram
hversu mörg hlutabréf ætti að selja.
Verkamannaflokkurinn, Framfara-
flokkurinn, Miðflokkurinn og Sósíal-
íski vinstriflokkurinn, sem eru með
meirihluta þingsætanna, sögðust ætla
að fella flestar tillögurnar í atkvæða-
greiðslunni á þriðjudaginn kemur.
Þeir féllust þó á sölu á hlutabréfum í
iðnfyrirtækinu Raufoss og fasteigna-
fyrirtækinu Entra Eiendom, sem á
nokkrar opinberar byggingar. Að
sögn stjórnarinnar hefur hún enn
heimild til að minnka hlut ríkisins í
Telenor í 34%.
Noregur
Einkavæð-
ingaráform
hindruð
Ósló. AP.
♦ ♦ ♦
GENGI hlutabréfa á evrópskum
mörkuðum féll umtalsvert í gær og er
ástæðan sögð sú að slegið hafi veru-
lega á væntingar fjárfesta um efna-
hagsbata og arð fyrirtækja. Þá olli
sprengjutilræði fyrir framan ræðis-
mannsskrifstofu Bandaríkjanna í
Karachi í Pakistan óróa á mörkuðum.
FTSE 100-hlutabréfavísitalan
breska hrapaði um 3% og var 4,630
punktar við lokun. Í París féll gengi
hlutabréfa um 2,9%, var 3,843 punkt-
ar, og þýska DAX 30-vísitalan var
3,4% lægri í lok dags, eða 4,317 punkt-
ar. Hafa hlutabréf ekki verið jafnlágt
skráð í Evrópu í átta og hálfan mán-
uð. Á Wall Street féll gengi hlutabréfa
einnig við opnun en tók svo við sér á
ný og var lækkun á Dow Jones-vísi-
tölunni 0,3% þegar upp var staðið.
Lækkun á
evrópskum
mörkuðum
London, New York. AFP, AP.