Morgunblaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isHeiðar Helguson fær nýjan
þjálfara/B1
Birgir Leifur enn á meðal efstu
manna/B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r15.
j ú n í ˜ 2 0 0 2
ÞÓRÐUR Pétursson veiðimaður á
Húsavík veiddi fyrsta stórlax
sumarsins í Laxá í Aðaldal í gær-
morgun. Þar var á ferðinni 20
punda hrygna sem hann veiddi á
maðk í Efri-Háfholu í Kistukvísl.
„Þetta var mjög falleg hrygna,
ekki lúsug, en samt björt og ný-
komin úr sjó. Þetta voru mikil
átök, það er mikið vatn þarna og
menn maðkveiða með mörgum
sökkum. Stórir laxar vilja kafa
djúpt þarna og þá er mikil hætta
á því að línan festist og margir
hafa einmitt misst stórlaxa í þess-
um stað vegna þess. Af þeim sök-
um tek ég á stórlöxum þarna, tek
þá uppúr holunni og það eru ægi-
leg átök. Veiðifélagi minn spurði
hvort ég ætlaði að brjóta stöng-
ina. En þetta tókst, ég náði lax-
inum niður úr hylnum, elti hann
að næsta stað og þar var eftirleik-
urinn auðveldur,“ sagði Þórður.
Morgunblaðið/Magnús Jónasson
Þórður Pétursson með 20 punda hrygnuna úr Efri-Háfholu.
Fyrsti stórlax
sumarsins á land
NÝ farþegaþota hefur bæst í flota
Íslandsflugs og verður hún í verk-
efnum frá Krít. Er þetta fimmta
Boeing 737 þotan sem Íslandsflug
rekur og sú fyrsta af gerðinni 737-
400 og hefur einkennisstafina TF-
ELV.
Ómar Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandsflugs, segir
samninginn vera til 18 mánaða en
fyrsta ferðin var í gær. Þotan á að
sinna farþegaflugi milli Krítar og
Evrópu, einkanlega Bretlands. Í
vetur á þotan að sinna flugi út frá
Aþenu. Tvær íslenskar áhafnir
starfa á vélinni. Þá hóf Íslandsflug
um síðustu mánaðamót að sinna
farþegaflugi út frá Mílanó á Ítalíu
með B737-300 þotu og verður þar
ein íslensk áhöfn að jafnaði.
Íslandsflug er alls með fimm 737
þotur í rekstri í sumar, auk þessara
tveggja með tvær þotur í Bretlandi
og eina hérlendis. Þá rekur félagið
eina Airbus A310 fraktþotu sem
sinnir flugi milli Beirút og Evrópu
og Persaflóa. Henni fljúga eingöngu
erlendar áhafnir. Þessu til viðbótar
rekur Íslandsflug ATR-42 og Dorn-
ier flugvélar í innanlandsflugi.
Ný þota Íslands-
flugs í verk-
efnum á Krít
MÖRG eru mannanna nöfnin, en
þrátt fyrir það eru Íslendingar
greinilega enn hrifnir af Jóni og
Guðrúnu, samkvæmt frétt frá
Hagstofu Íslands. Þegar teknar
voru saman upplýsingar um al-
gengustu eiginnöfn í þjóðskrá um
síðustu áramót kom í ljós að 3,9%
karla bera nafnið Jón og 3,7%
kvenna heita Guðrún. Þar með eru
nöfnin þau algengustu á Íslandi.
Nöfnin hafa bæði notið mikilla
vinsælda, og sem dæmi má nefna
að á miðri 19. öld hétu 15,6% karla
Jón og 13% kvenna Guðrún. Síðan
þá hafa fjöldamörg ný nöfn verið
tekin upp og má segja að sam-
keppni milli nafna hafi aukist með
hverju ári. Þrátt fyrir það halda
Jón og Guðrún enn sínu sæti.
Á tuttugustu öld varð mjög vin-
sælt að skíra börn tveimur nöfn-
um, og bera þeir einstaklingar svo-
nefnt tvínefni. Þar má einnig sjá
tískusveiflur, og eru nöfnin Þór og
Björk algengustu seinni nöfnin
sem sjá má í þjóðskránni. Sam-
setningin Jón Þór er efst á blaði
meðal karla, en Anna María meðal
kvenna.
Gömul og góð
nöfn falla
Gömul og góð nöfn, til dæmis
Guðmundur og Sigurður, hafa fall-
ið niður um nokkur sæti á vin-
sældalistanum undanfarin ár og
vekur Hagstofan sérstaka athygli
á því hvað nöfn framarlega í staf-
rófinu, til dæmis Aron, Axel, Alex-
ander og Andri, eru vinsæl um
þessar mundir.
Mannanafnatalning Hagstofunnar
Jón og Guðrún
halda sínu sæti
TVÖ umferðarslys urðu í
Skagafirði í nágrenni Sauðár-
króks í gær. Hið fyrra átti sér
stað í Hegranesi en þar var um
aftanákeyrslu að ræða. Öku-
menn voru báðir einir í bílunum
og varð annar fyrir háls- og
bakmeiðslum en hinn meiddist
á brjósti.
Seinna slysið átti sér stað á
Sauðárkróksbraut við bæinn
Birkihlíð rétt eftir hádegið. Þá
lenti fólksbíll á leið til Varma-
hlíðar út af veginum með þeim
afleiðingum að tvítug stúlka
sem í honum var lærleggs-
brotnaði að öllum líkindum.
Hún var flutt til aðgerðar á
sjúkrahúsið á Akureyri.
Tvö um-
ferðarslys í
Skagafirði
SAMKVÆMT upplýsingum
frá lögreglunni í Borgarnesi
og á Blönduósi var mikill um-
ferðarstraumur norður seinni-
hluta gærdagsins og í gær-
kvöldi. Að sögn lögreglunnar á
Selfossi var umferð í austurátt
einnig töluverð í gærkvöldi.
Lögreglan í Reykjavík sagði
að búast mætti við því að tölu-
vert margir stefndu nú úr
bænum vegna hinnar löngu
helgar en þjóðhátíðardagurinn
er á mánudaginn.
Margir bílar á ferð með
hjól- og fellihýsi
Að sögn lögreglunnar hefur
bílum með hjól- og fellihýsi í
eftirsdragi fjölgað stórlega á
undanförnum árum. Vildi hún
beina því sérstaklega til þeirra
sem ferðast um á slíkum bíl-
um, að gæta þess að auka-
speglabúnaður sem fylgja þarf
bílunum sé í lagi. Að öðrum
kosti sjái ökumenn ekki út á
veginn til hliðanna, sem sé af-
ar varasamt. Ætíð sé hætta á
ferðum þegar aðrir bílar reyni
framúrakstur.
Margir á
faralds-
fæti um
helgina
Ökumenn tald-
ir undir áhrif-
um fíkniefna
BÍLL ók aftan á annan á Eyr-
arbakkavegi um hádegisbilið
gær. Að sögn lögreglunnar á
Selfossi voru ökumenn, karl og
kona, ein í bílunum og sluppu
þau bæði ómeidd. Bílarnir eru
hins vegar mikið skemmdir.
Lögreglan segir að grunur leiki
á að báðir ökumenn bílanna
hafi verið undir áhrifum fíkni-
efna.
BANDARÍSK stjórnvöld hafa óskað eftir op-
inberri skýringu íslenskra stjórnvalda á því
hvers vegna þau héldu fimm bandarískum með-
limum Falun Gong í haldi um stundarsakir fyrr í
vikunni. Þetta kom fram hjá talsmanni banda-
ríska utanríkisráðuneytisins við fjölmiðla í gær,
að sögn AFP-fréttastofunnar.
Í lok vinnudags í íslenska sendiráðinu í gær
hafði bréf þessa efnis ekki borist sendiráðinu, að
sögn Jóns Baldvins Hannibalssonar, sendiherra í
Washington. Hann segir að starfsmenn 13
bandarískra þingmanna hafi haft samband við
sendiráðið fyrir hönd kjósenda, sem hafi ekki
fengið að fljúga með Flugleiðum til Íslands, og
leitað skýringa á því. Í þremur tilfellum hafi ver-
ið um skriflega gagnrýni að ræða en annars fyrst
og fremst fyrirspurnir og hafi þeim verið svarað.
Síminn hafi vart þagnað í sendiráðinu, einstak-
lingar, sem hafi verið stöðvaðir, hafi kvartað í
rafpósti og fjölmiðlar eins og t.d. New York Tim-
es, Boston Globe og Washington Post, hafi í vax-
andi mæli haft samband vegna málsins.
Að sögn sendiherrans er Falun Gong-hreyf-
ingin mjög öflug í Bandaríkjunum og meðlimir
Falun Gong t.d. stöðugt fyrir framan kínverska
sendiráðið sem hann gangi framhjá á hverjum
degi, en lögregla sé þar ekki sjáanleg. Hann seg-
ir að hreyfingin sé mjög öflug á Taívan og á
bandaríska þinginu sé mjög sterkur hópur, sér-
staklega á meðal rebúblikana, sem styðji Taívan
eindregið en sé mjög andsnúinn meginlandi
Kína. Því eigi hreyfingin sér öfluga talsmenn á
þinginu.
Jón Baldvin Hannibalsson segir að Flugleiðir
hafi bent fólki á að snúa sér til sendiráðsins til að
leita réttar síns og það hafi því ekki aðeins sam-
band til að leita skýringa heldur líka til að spyrja
hvar eigi að framvísa reikningum. Hann fékk
þær upplýsingar hjá félaginu að rúmlega 100
manns hefði verið meinað að fara um borð í vélar
þess en samkvæmt öðrum heimildum væri um
200 manns að ræða.
Frelsissvipting bandarískra meðlima Falun Gong á Íslandi í vikunni
Bandarísk stjórnvöld óska
eftir opinberri skýringu