Morgunblaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 29
HEILSA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2002 29
Fróðleikur um lækninga-
og kryddjurtir, sögu og
vísindi á vefsíðu.
www.sagamedica.com
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
N
M
0
6
1
3
4
/s
ia
.i
s
Angelica
Ástríðuvaki, gleðigjafi,
hjónasættir, heilsubætir.
MIKLAR og strangar knattspyrnu-
æfingar gætu leitt til þess að það fær-
ist í aukana að knattspyrnumenn
verði hjólbeinóttir, ef marka má rann-
sókn, sem gerð var í Ghent í Belgíu og
náði til rúmlega 500 ungra knatt-
spyrnumanna.
Rannsóknin leiddi í ljós, að því er
kemur fram á fréttavef BBC, að mun
meiri líkur voru á því að knattspyrnu-
mennirnir hefðu afmyndaðan bein-
vöxt við hnjáliðinn en fólk almennt.
Getur kallað á aðgerð, en
yfirleitt duga sérstakir skór
Stundum getur afmyndunin orðið
það mikil að grípa þarf til skurðað-
gerðar, en yfirleitt er hægt að bregð-
ast við með því að láta börnin ganga í
sérstökum skóm. Þegar menn verða
hjólbeinóttir þýðir það að þegar þeir
standa með ökkla saman er bil á milli
hnjánna.
Það afbrigði, sem greindist í belg-
ísku rannsókninni, reyndist ekki al-
varlegt, en læknar telja þó að vegna
þess séu leikmenn viðkvæmari fyrir
alvarlegum meiðslum á leikferlinum,
en þeir, sem ekki eiga við þennan
vanda að stríða. Rannsóknin leiddi
einnig í ljós að eftir því sem börnin
urðu eldri jókst ekki aðeins tíðni af-
myndunar, heldur mældist hún einnig
meiri, sem þykir benda til að stöðugt
álag í langan tíma leiði til þess að
ástandið versni.
Viðkvæmari fyrir meiðslum
vegna álags við æfingar
Hjólbeinóttir leikmenn gætu einn-
ig verið viðkvæmari fyrir meiðslum á
liðböndum og er sérstaklega tekið til
þess að það geti átt við um krossbönd.
Slitin krossbönd í hné geta gert út um
feril knattspyrnumanns. Einnig eru
vísbendingar um að hjólbeinótt fólk
sé líklegra til að fá slitgigt á efri árum.
Ekki hefur verið sýnt fram á þetta
samband milli mikilla æfinga og þess
að vera hjólbeinóttur áður, að sögn
Simons Roberts, sem er skurðlæknir
við Robert Jones og Agnes Hunt
bæklunarskurðlækningasjúkrahúsið
skammt frá Oswestry. Læknar telja
einnig að mikið álag vegna æfinga
geti leitt til annarra vandamála og
þess séu nokkur dæmi að ungir leik-
menn hafi fengið álagsmeiðsl í mæn-
una. Roberts bendir á að oft æfi börn
daglega og um helgar leiki þau þrjá
og jafnvel fjóra knattspyrnuleiki.
Margt bendi til þess að of mikið álag
við æfingar geti leitt til alvarlegra
meiðsla.
Hjólbeinóttir
vegna knatt-
spyrnu?
alltaf á sunnudögumBÍLAR