Morgunblaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 22
ERLENT
22 LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BISKUPAR rómversk-kaþólsku
kirkjunnar í Bandaríkjunum báðu á
fimmtudag fórnarlömb kynferðisaf-
brota presta fyrirgefningar við upp-
haf þriggja daga ráðstefnu er kirkj-
an heldur til þess að bregðast við
kynlífshneykslismálum sem hafa
grafið undan kirkjunni. „Kaþólska
kirkjan í Bandaríkjunum er í alvar-
legri kreppu, ef til vill þeirri verstu
sem við höfum staðið frammi fyrir,“
sagði forseti ráðstefnunnar, Wilton
Gregory biskup.
Hann ávarpaði síðan fórnarlömbin
beint og sagði: „Í mínu eigin nafni og
í nafni allra biskupanna bið ég hvert
og eitt ykkar, sem hafið mátt þola
kynferðislega misþyrmingu af hálfu
prests eða annars embættismanns
kirkjunna, innilega fyrirgefningar.“
Gregory er fyrsti Bandaríkjamað-
urinn af afrískum uppruna sem situr
í forsæti kaþólsku kirkjunnar í land-
inu. Hann viðurkenndi að það væru
yfirmenn kirkjunnar
sem hefðu „hvort held-
ur er vegna skilnings-
skorts eða aðgæsluleys-
is, eða – Guð forði því –
vitandi vits, leyft prest-
um, sem hafa misþyrmt fólki, að
gegna embætti áfram, og skipað þá
til prestakalla þar sem þeir hafa
haldið áfram misþyrmingum.“
Ráðstefnan er haldin í Dallas, og
sagði Gregory að á henni gæfist
tækifæri til að móta stefnu sem
„tryggi fullkomna vernd barna okk-
ar og ungs fólks, og bindi enda á kyn-
ferðislegar misþyrmingar innan
kirkjunnar“. Í gær átti að sam-
þykkja á ráðstefnunni nýjar reglur
um hvernig framvegis tekið skuli á
kynferðisafbrotum sem prestar kaþ-
ólsku kirkjunnar fremji.
Samkvæmt reglunum munu mál
af þessu tagi leiða til þess að prestur
sem ásakaður er verði rekinn úr
embætti og lögregluyfirvöldum
fengin málin til rannsóknar. En í
reglunum er einnig umdeilt ákvæði
sem segir, að prestur sem hefur vit-
andi vits framið eitt kynferðisafbrot
megi sitja áfram ef hann gengst und-
ir viðeigandi meðferð eða ef hann
greinist ekki sem barnaníðingur.
Nokkrir biskupanna krefjast þess
að tekin verði upp sú stefna, að eng-
ar misþyrmingar skuli liðnar og að
sú regla skuli vera afturvirk og ná til
allra presta sem hafi á árum áður
framið slík afbrot. „Við verðum að
vera samkvæmir sjálfum okkur,“
sagði Joseph Galante,
biskup í Dallas. „Ef
biskuparnir ákveða að
prestar sem framvegis
misþyrma börnum skuli
reknir, hvers vegna
skyldu þeir þá ekki ákveða einnig að
það skuli eiga við þá presta sem hafa
á árum áður misþyrmt börnum?“
Um 30 til 40 manns efndu til mót-
mælastöðu við hótelið þar sem ráð-
stefnan fer fram, en hana sækja alls
um 300 biskupar. „Andrúmsloftið er
fremur þungt,“ sagði Theodore
McCarrick, kardínáli frá Wash-
ington. „Við vitum allir að þetta eru
mikilvægir dagar og enginn okkar
vill klúðra málum.“
Ráðstefnuna sóttu einnig margir
sem hafa orðið fórnarlömb kynferð-
islegra misþyrminga presta, og
héldu fórnarlömb og prestar sameig-
inlega blaðamannafundi. Sögðust
sum fórnarlambanna ánægð með að
hafa fengið tækifæri til að ræða við
presta og biskupa. „Ég held þeir hafi
orðið fyrir áfalli,“ sagði Lee White,
framkvæmdastjóri Samtaka fórnar-
lamba í Virginíuríki. „Ég sá það í
andlitum þeirra. Ég sá þjáningu.“
Reuters
John Kinney biskup (t.v.) og Craig Martin, sem sætti kynferðislegri misþyrmingu af hendi prests þegar hann
var barn að aldri, hlýða á frásögn annars fórnarlambs á ráðstefnu biskupanna í Dallas.
Biskupar biðjast
fyrirgefningar
Dallas. AFP.
’ Ég held að þeir hafi orðið
fyrir áfalli ‘
Höfðabakki - til leigu
- mjög hagstæð leiga
Atvinnuhúsnæði u.þ.b. 6000 fm
Góð lofthæð, mjög góð staðsetning, góð aðkoma og næg bílastæði. Mögulegt er
að skipta eigninni upp í smærri einingar.
Húsnæðið hefur verið í notkun fyrir höfðustöðvar Marels. Hentar fyrir ýmiss
konar starfsemi, s.s iðnað, heildsölur, skrifstofustarfsemi o.s.frv.
Eignin er í eigu Landsafls, sem er öflugt sérhæft fasteignafélag.
www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Upplýsingar veitir
Magnús Gunnarsson í
s. 588 4477 eða 899 9271
Þórhildur Sandholt
lögfr. og lögg. fast.sali.
Gsm 898 8545
Gísli Sigurbjörnsson
sölumaður
FAX 568 3231
SUMARHÚSALÓÐIR TIL SÖLU
Nokkrar fallegar sumarhúsalóðir til sölu á nýlega skipulögðu
svæði í landi Búrfells I, Grímsnesi. Fallegt útsýni, kyrrlátur
staður, stutt í golfið og veiðina. Landeigendur verða á svæð-
inu eftir hádegi bæði í dag, 15. júní og á morgun 16. júní og
gefa nánari upplýsingar.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
1. flokki 1989 – 47. útdráttur
1. flokki 1990 – 44. útdráttur
2. flokki 1990 – 43. útdráttur
2. flokki 1991 – 41 útdráttur
3. flokki 1992 – 36. útdráttur
2. flokki 1993 – 32. útdráttur
2. flokki 1994 – 29. útdráttur
3. flokki 1994 – 28. útdráttur
Húsbréf
Koma þessi bréf til innlausnar 15. ágúst 2002.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu
flokkunum birt hér í blaðinu í dag. Upplýsingar
um útdregin húsbréf má einnig finna á
heimasíðu Íbúðalánasjóðs: www.ils.is.
Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
Útdráttur
húsbréfa
C vítamín 400 mg
með sólberjabragði
Bragðgóðar tuggutöflur.
Eflir varnir.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum