Morgunblaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 28
HEILSA
28 LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ég á 9 ára son sem sem alla tíð hefur
verið rólegt og gott barn. Íþróttakenn-
aranum hans finnst hann verða of
fljótt þreyttur og hann stendur sig ekki
nógu vel í íþróttum í skólanum.
Hann sagði að hann gæti verið með
einhver einkenni astma og ráðlagði
mér að tala við lækni. Hann fékk
reyndar astmalyf þegar hann var með
kvef sem ungbarn en aldrei síðan þar
sem hann hefur ekki verið með neinn
astma. Hann hefur alltaf verið róleg-
ur og mikið fyrir að vera inni og
dunda sér og ekki mikið fyrir læti. Ég
hef samt reynt að hvetja hann til að
hreyfa sig meira og skráði hann í fót-
bolta í haust. Hann vildi hætta fljót-
lega og sagði að það væri ekkert gam-
an. Vinir hans eru samt flestir í
fótbolta daginn út og inn. Getur verið
að þetta sé astmi eða er þetta ekki
bara æfingaleysi og á ég að vera harð-
ari við hann?
Takk fyrir.
Áhyggjufull móðir.
SVAR Ágæta móðir. Það er vel skilj-
anlegt að þú hafir áhyggjur af því að
drengurinn þinn virðist úthaldslaus
og vill síður taka þátt í íþróttum.
Það þarf þó á engan hátt að vera
óeðlilegt. Astmi er algengur sjúk-
dómur, um 5% fullorðinna og 9% 11
ára barna hafa astma á Íslandi. Það
er algengt að ungbörn fái astmaein-
kenni samfara kvefi sem síðan eldist
af þeim. Ef móðir barnsins er með
astma eða barnið sjálft með exem,
frjó-, dýra- eða fæðuofnæmi er lík-
legra að einkennin verði þrálátari.
Einnig ef barnið er útsett fyrir tób-
aksreyk. Úthaldsleysi er oftast ekki
bara eina einkennið um astma, held-
ur fylgir honum gjarnan hósti, surg
eða píp í brjósti og sérlega þegar
barnið reynir á sig. Þegar börn með
astma fá kvef fer kvefið oftast í
lungun og þau hósta lengi á eftir,
jafnvel í fleiri vikur. Því ættir þú að
huga að því hvort drengurinn hósti
til dæmis á nóttunni sem er algengt
einkenni hjá þeim sem hafa astma
eða þegar hann hefur hlegið mikið
eða verið úti í kulda. Einnig er mjög
gott að fara með í leikfimitíma og
fylgjast með því hvort eitthvert
þessara einkenna komi fram eða út-
haldsleysi hans er öllu meira en
annarra. Ef þannig er háttað er
réttast að fara til læknis med dreng-
inn.
Hins vegar erum við öll misjöfn af
Guði gerð og sum okkar hafa bara
ekki áhuga á íþróttum. Mér finnst
þú lýsa honum þannig. Við því er
ekkert að gera. Taktu hann með þér
í sund, gönguferðir og hjólreiða-
túra. Það eflir líkama og sál og
styrkir samband ykkar um ókomna
framtíð.
Michael Clausen,
sérfræðingur í barna-
lækningum og ofnæm-
issjúkdómum barna
og unglinga.
..............................................
persona@persona.is
Lesendur
Morg-
unblaðsins
geta komið
spurn-
ingum varð-
andi sálfræði-, félagsleg
og vinnutengd málefni
til sérfræðinga á vegum
persona.is. Senda skal
tölvupóst á persona-
@persona.is og verður
svarið jafnframt birt á
persona.is.
Úthaldsleysi eða skort-
ur á íþróttaáhuga?
Hins vegar erum við
öll misjöfn af Guði
gerð og sum okkar
hafa bara ekki áhuga
á íþróttum. Við því er
ekkert að gera.
Þ
AÐ eru fordómar þegar við dæmum
fólk fyrirfram á grundvelli alhæf-
inga og staðalmynda. Að því leyti
verða aldraðir fyrir fordómum.
Þeim er við starfslok ýtt til hliðar
og markaður bás, þeim er ætlaður ákveðinn
lífsmáti, þeirra er ekki lengur þörf í athafna-
lífinu og þeir eiga að hafa hægt um sig. Það er
tilhneiging til að setja þá alla undir einn hatt eins og þeir væru ekki lengur
einstaklingar hver með sinn persónuleika, lífsreynslu, áhugamál og óskir.
Við eigum margt sameiginlegt, en hvert og eitt okkar er alveg einstakt.
Það er það stórkostlega og við eigum að hlúa að því og virða það. Fjöl-
breytnin auðgar mannlífið en fordómar skaða samskipti fólks.
Þessu staðlaða viðhorfi eru aldraðir núna sjálfir að breyta með því að
vera virkir þátttakendur á mörgum sviðum mannlífsins. Og það er vel.
Ánægjulegt sýnishorn af margþættu starfi og viðfangsefnum aldraðra
mátti nýlega lesa um í blaðinu Í fullu fjöri sem gefið var út í samvinnu við
Landsamband eldri borgara og dreift með Morgunblaðinu. Það var þörf
ábending um hvaða kraftur býr í þeim hópi sem núna er kominn á eft-
irlaun. Það er mikil sóun á lífsreynslu, menntun og hæfileikum þessa fólks
að gefa því ekki kost á sveigjanlegum starfslokum og nýta krafta þeirra í
ýmis verkefni, hlutavinnu eða sjálfboðastörf. Það gefur ellinni innihald og
lífsfyllingu þegar eldri borgarar er metnir hæfir til að leysa af hendi
margvísleg verkefni og þegar þeir finna að þeir geta orðið einhverjum að
liði. Það er einfaldlega heilsuefling og sparar samfélaginu útgjöld. „Besta
vernd gegn sjúkdómum aldraðra er sennilega að vinna bug á kreddum um
þá og stuðla að meiri virkni þeirra og þátttöku í samfélaginu meðan heilsa
og kraftar endast,“ heyrði ég haft eftir lækni.
Feykjum fordómunum burt og sýnum hvað í okkur býr. Njótum efri ár-
anna meðan heilsan leyfir, þau eru yndisleg. Fyllum þau lífi og virkni í lik,
starfi og þjónustu við þá sem hafa þörf fyrir umhyggju og gleði.
Það er heilsubrunnur fyrir líkama og sál.
Pálína Jónsdóttir, fulltrúi Félags eldri borgara.
Vitundarvakning Landlæknisembættisins og Geðræktar um fordóma í samstarfi
við: Alþjóðahúsið, Félag eldri borgara, Félagsþjónustuna í Reykjavík, Heilsuefl-
ingu í skólum, Hitt húsið, jafnréttisnefnd og stúdentaráð Háskóla Íslands, Mið-
borgarstarf KFUM og K og Þjóðkirkjunnar, Rauða kross Íslands, Samtökin ’78 og
Öryrkjabandalag Íslands.
Heilsan í brennidepli
Fjölbreytnin
auðgar mannlífið