Morgunblaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ blaðið að þegar lögreglan tók við borðanum af Chipkar hefði hann verið beðinn um að vera ekki með uppákomur þegar forsetinn kæmi að húsinu. Í samtali við Morgun- blaðið neitaði Chipkar því að hafa verið beðinn um slíkt. Ekki í ósamræmi við samkomulag við lögreglu Joel Chipkar er einn af helstu talsmönnum Falun Gong hér á landi. Hann er einn fjögurra sem skrifaði undir yfirlýsingu þess efn- is að allir Falun Gongi-ðkendur muni fara eftir tilmælum og fyr- irmælum lögreglu varðandi opin- bera heimsókn forseta Kína til landsins. Hópurinn muni fara eftir íslenskum lögum og reglugerðum og ekki á nokkurn hátt trufla dag- skrá heimsóknarinnar. Í því felist að öryggissvæði lögreglu verði virt og æfingar verði gerðar á sérstök- um svæðum sem lögregla leggur til og útnefna sérstakan talsmann fyr- ir hvern stað. Þá verði þessi yf- irlýsing kynnt fyrir öllum Falun Gong-iðkendum sem staddir eru hér á landi. Aðspurður sagðist Chipkar ekki telja framkomu sína á nokkurn hátt hafa verið í ósamræmi við þetta samkomulag. Aldrei hefði verið rætt um að ekki mætti mót- mæla kínverska forsetanum með hrópum. Hann ítrekaði að Falun Gong-iðkendur myndu fara eftir tilmælum lögreglu en sömu lög giltu um þá og íslenska ríkisborg- ara. Benti hann á að enginn hefði farið inn fyrir öryggissvæði þrátt fyrir að þeir vissu af kínverska for- setanum í nágrenninu. Sagði hann það í raun vera ósanngjarnt að krefjast þess fólkið væri á svæðum þar sem kínverski forsetinn gæti ekki séð það. Falun Gong-iðkendur væru hingað komnir til að vekja at- hygli á mannréttindabrotum í Kína og sjálfur ætti hann vini sem hefðu verið pyntaðir, eingöngu fyrir að leggja stund á Falun Gong. Sæi hann forsetann aftur myndi hann örugglega hrópa að honum aftur. Í Morgunblaðinu í gær er haft eftir John Nania, aðaltalsmanni Falun Gong hér á landi, að Falun Gong-iðkendur myndu ekki gera hróp að forsetanum. Aðspurður sagðist Chipkar ekki kannast við að Nania hefði látið þessi orð falla. Í þann mund sem forseti Kína kom út úr Þjóðmenningarhúsinu hrópaði annar liðsmaður að honum slagorð. Að sögn Stefáns Eiríks- sonar hafði hann verið inni á veit- ingahúsinu Gráa kettinum áður en forsetinn kom að Þjóðmenningar- húsinu. Hann var leiddur burt af lögreglu. TVEIR Falun Gong-iðkendur hrópuðu slagorð að kínverska for- setanum við Þjóðmenningarhúsið í gær en forsetinn átti þar fund með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Halldóri Ásgrímssyni utanrík- isráðherra. Skv. auglýstri dagskrá átti fund- urinn að vera síðdegis en ekki var farið eftir þeirri áætlun heldur hófst fundurinn um klukkan 12 á hádegi. Klukkan 15.30 hafði verið boðað til mótmælafundar á Aust- urvelli og þaðan átti að ganga að Þjóðmenningarhúsinu. Bílalest Jiangs Zemins ók niður Hverfisgötuna að Þjóðmenningar- húsinu og varð Kínaforseti því ekki var við hóp liðsmanna Falun Gong við hugleiðslu og æfingar vestan í Arnarhóli, enda í hvarfi frá Þjóð- menningarhúsinu. „Falun Dafa ho“ hrópaði Joel Chipkar frá horni Ingólfsstrætis og Hverfisgötu þegar forseti Kína gekk frá bíl sínum en það mun þýða „Falun Dafa er gott“. Skömmu áður hafði hann gert sig líklegan til að draga upp gulan borða með merki Falun Gong en afhenti hann lögreglu eftir að hún hafði rætt við hann. Þegar Chipkar hrópaði að forsetanum færðu nokkrir lögreglumenn sig að hon- um en héldu sig þó innan við af- markað öryggissvæði. Nokkrir kín- verskir öryggisverðir hlupu til og stilltu sumir sér upp við hlið Chipkars. Í framhaldi af atvikinu stækkaði lögreglan öryggissvæðið við húsið nokkuð. Fólki sem átti erindi vegna vinnu sinnar eða hafði lagt bílum sínum innan öryggis- svæðisins var flestu hleypt í gegn. Stefán Eiríksson, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, var á vett- vangi og sagði hann við Morgun- Jiang Zemin fór fyrr í Þjóðmenningarhúsið en áætlun gerði ráð fyrir Slagorð hrópuð að kínverska forsetanum Morgunblaðið/Þorkell Diane Daily og Maureen Gamrecki við hugleiðslu á Austurvelli í gær en lögreglumaður vísaði þeim út af Hótel Loftleiðum í gær eftir að þær birtust í móttökunni íklæddar bolum með merki Falun Gong. Morgunblaðið/Þorkell Forseti Kína var nýfarinn frá Þjóðmenningarhúsinu þegar þessi maður hrópaði slagorð andspænis húsinu. Hafði hann klæðst stuttermabol með merki Falun Gong yfir stuttermaskyrtuna. ÞRIGGA rétta máltíð var á borðum í há- tíðarkvöldverði forseta Íslands í Perl- unni í gærkvöld til heiðurs forseta Kína. Í forrétt var silungatartar með sil- ungahrognum á blómkálsbeði. Aðal- réttur var lambahryggur með rót- argrænmeti og kantarellusveppum og eftirrétturinn heit súkkulaðikaka með vanilluís. Borðvín voru Chablis Premier Cru Vailon 1999 og Conde de Valdimar Crianza, Rioja 1999. Þá var boðið uppá tónlist. Sigrún Hjálmtýsdóttir söng einsöng og lék Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleik- ari með henni og á trompeta léku Eirík- ur Örn Pálsson og Sveinn Birgisson. Þriggja rétta máltíð í veislunni KVÖLDVERÐUR var í Perlunni í gærkvöldi til heiðurs forseta Kínverska Alþýðulýðveld- isins hr. Jiang Zemin og frú Wang Yeping. Gestgjafar voru forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson og heitkona hans Dorrit Moussaieff. Fjölmargir gestir úr fylgdarliði kínverska for- setans sátu veisluna. Innlendir gestir voru: Forseti Alþingis Halldór Blöndal Frú Kristrún Eymundsdóttir Varaforseti Hæstaréttar Markús Sigurbjörnsson Frú Björg Thorarensen Davíð Oddsson forsætisráðherra Frú Ástríður Thorarensen Utanríkisráðherra Halldór Ásgrímsson Frú Sigurjóna Sigurðardóttir Fjármálaráðherra Geir H. Haarde Frú Inga Jóna Þórðardóttir Samgönguráðherra Sturla Böðvarsson Frú Hallgerður Gunnarsdóttir Umhverfisráðherra Siv Friðleifsdóttir Hr. Þorsteinn Húnbogason Sjávarútvegsráðherra Árni Mathiesen Heilbrigðisráðherra Jón Kristjánsson Frú Margrét Hulda Einarsdóttir Iðnaðar- og viðskiptaráðherra Valgerður Sverrisdóttir Hr. Arvid Kro Fv. forseti Íslands Frú Vigdís Finnbogadóttir Steingrímur Hermannsson fv. forsætisráðherra Frú Edda Guðmundsdóttir Ólafur Davíðsson ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis Frú Helga Einarsdóttir Sverrir Haukur Gunnlaugsson ráðuneyt- isstjóri utanríkisráðuneytis Frú Guðný Aðalsteinsdóttir Ólafur Egilsson sendiherra Íslands í Kína Þorgeir Örlygsson ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytis Frú Iðunn Reykdal Guðríður Sigurðardóttir ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytis Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytis Frú Ragnheiður Hermannsdóttir Bogi Nilsson ríkissaksóknari Frú Elsa Ingeborg Petersen Skarphéðinn Steinarsson skrifstofustjóri forsætisráðuneytis Frú Sigríður Jóhannesdóttir Kristján Andri Stefánsson deildarstjóri forsætisráðuneytis Stefán Skjaldarson skrifstofustjóri utanríkisráðuneytis Frú Birgit Nyborg Sveinn Björnsson prótokollstjóri utanríkisráðuneytis Dóra Ásgeirsdóttir fulltrúi Hr. Björn Ingi Jósefsson Petrína Backman deildarstjóri Tómas Orri Ragnarsson blaðafulltrúi Jörundur Valtýsson blaðafulltrúi Ólöf Hrefna Kristjánsdóttir aðstoðarm. Anna Hinnriksdóttir aðstoðarm. Ríkislögreglustjóri Haraldur Johannessen Frú Brynhildur Ingimundardóttir Jóhann Benediktsson sýslumaður Keflavíkurflugvelli Frú Sigríður Guðrún Guðmundsdóttir Óskar Þórmundsson yfirlögregluþjónn Keflavíkurflugvelli Frú Helga Ragnarsdóttir Ólöf Pálsdóttir fv. sendiherrafrú Oddný Thorsteinsson fv. sendiherrafrú Formaður Íslenska-kínverska viðskipta- ráðsins Baldur Hjaltason Sigtryggur R. Eyþórsson fv. form. Kínversk-ísl. viðskiptaráðsins Frú Þorbjörg Guðmundsdóttir Arnþór Helgason, form. Kínversk-íslenska menningarfélagsins Frú Elín Árnadóttir Jia Changwen form. Félags Kínverja á Íslandi Frú Rannveig Hallvarðsdóttir Thor Vilhjálmsson rithöfundur Frú Margrét Indriðadóttir Matthías Johannessen skáld og fv. ritstjóri Frú Hanna Johannessen Vésteinn Ólason forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar á Ísl. Frú Unnur A. Jónsdóttir Eiríkur Þorláksson forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur Frú Margrét Þorkelsdóttir Hjálmar H. Ragnarsson rektor Listaháskóla Íslands Frú Ása Richardsdóttir Gunnar Eyjólfsson leikari Auður Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur Hrafnhildur G. Thoroddsen Unnur Guðjónsdóttir fararstjóri Atli Heimir Sveinsson tónskáld Guðmundur Emilsson tónlistarmaður Formaður Útflutningsráðs Páll Sigurjónsson Frú Sigríður Gísladóttir Framkvæmdastjóri útflutningsráðs Jón Ásbergsson Frú María Dagsdóttir Vilhjálmur Guðmundsson deildarstjóri Útflutningsráðs Frú Erla Konný Óskarsdóttir Ingvar Birgir Friðleifsson skólastjóri Háskóla SÞ Frú Þórdís Árnadóttir Vilhjálmur Egilsson frkvstj. Verslunarráðs Frú Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir Stefán Friðfinnsson forstjóri Frú Ragnheiður Ebenesardóttir Jón Sigurðsson forstjóri Frú Eydís Hilmarsdóttir Arngrímur Jóhannsson forstjóri Frú Þóra Guðmundsdóttir Guðmundur Þóroddsson orkuveitustjóri Frú Halldóra Björnsdóttir Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi Frú Guðný Kristjánsdóttir Eyþór Ólafsson frkvstj. Jónas Hallgrímsson forstjóri Frú Kristín Ísleifsdóttir Einar Guðbjörnsson frkvstj. Frú Hugrún Þorgeirsdóttir Jóhann Xiang frkvstj. Frú María Xiang Hannes R. Richardsson forstjóri Stefán Lárus Stefánsson forsetaritari Frú Guðrún Harðardóttir Örnólfur Thorsson sérfræðingur á skrifstofu forseta Ísl. Frú Margrét Þóra Gunnarsdóttir Vigdís Bjarnadóttir deildarstjóri á skrifstofu forseta Ísl. Ragna Þórhallsdóttir deildarstjóri á skrifstofu forseta Ísl. Hr. Flosi Kristjánsson. Gestir í kvöldverðar- boði forseta Íslands BORGARRÁÐ býður Jiang Zemin, forseta Kína, og sendi- nefnd hans velkomin til Reykjavíkur auk þess sem fé- lagar í samtökunum Falun Gong eru boðnir velkomnir. Þetta kemur fram í sam- þykkt borgarráðs í gær. Þar er þess getið að aukin sam- skipti og viðskipti séu mik- ilvæg leið til að stuðla að framgangi mannréttinda og bættum hag almennings um heim allan. Því hafi Reykja- víkurborg meðal annars átt vinsamleg samskipti við full- trúa frá Alþýðuveldinu Kína og tekið á móti fjölda kín- verskra stjórnarerindreka á undanförnum árum. „Að gefnu tilefni vill borgarráð árétta að það samræmist ekki stefnu Reykjavíkurborgar að takmarka fjölda friðsamra mótmælenda í borginni. Ljóst er að tryggja verður öryggi erlendra gesta sem koma í op- inberum erindagjörðum hing- að til lands. Ríkar ástæður þurfa hins vegar að vera fyrir því að takmarka lýðræðisleg- an rétt fólks til að lýsa skoðun sinni eða afstöðu í tengslum við opinberar heimsóknir.“ Í samþykktinni kemur enn- fremur fram að ekki stafi hætta af friðsamlegum mót- mælum. Þvert á móti séu þau eitt megineinkenni lýðræðis- legs stjórnarfars sem byggist á virðingu fyrir mannréttind- um. Í Reykjavík sé baráttu- fólki fyrir mannréttindum því alltaf velkomið að koma mál- stað sínum á framfæri með friði. Samþykkt borgarráðs Félagar í Falun Gong vel- komnir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.