Morgunblaðið - 05.11.2002, Side 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 13
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. kl. 11-18,
lau. kl. 11-15
Húsgögn
Sérpantanir
40% a
fslát
tur
af in
nimá
lning
u!
Allt a
ð
MÁLNINGARTILBOÐ
í verslunum Hörpu Sjafnar
419kr. á lítrann
Norðan tíu í 10 lítra dósum
REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR er á 64º 07’
47’’ N og 21º 55’ 56’’ V og er staðsetningin
skráð á hnitastein, sem Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra afhjúpaði við flugstjórn-
armiðstöðina við Reykjavíkurflugvöll fyrir
helgi.
Steinninn var unninn hjá Steinsmiðju S.
Helgasonar hf., en á plötu, sem Geislatækni
gerði, kemur meðal annars fram að Reykjavík-
urflugvöllur sé vagga flugs á Íslandi og að hann
hafi verið endurbyggður 1999 til 2002.
Staðsetning
flugvallarins
á hnitasteini
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Þorgeir Pálsson flugmálastjóri við steininn eftir afhjúpunina. alltaf á föstudögum
JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingaráðherra, segir að samið sé
við sérfræðilækna um ákveðinn ein-
ingafjölda fyrir allt árið fyrir lækn-
isverk og því sé erfitt að auka kvót-
ann hjá læknum nema fara fram úr
fjárveitingum. „Þetta er allt bundið í
samningum og ekki til fjármagn til
að bæta við einingum,“ segir ráð-
herra.
Í Morgunblaðinu í síðustu viku
kom fram að bæklunarlæknar á
læknastöðinni í Álftamýri í Reykja-
vík hafa orðið að draga úr þjónustu
og setja fólk á biðlista nema sjúk-
lingar vilji standa sjálfir undir öllum
kostnaði án þátttöku Trygginga-
stofnunar ríkisins.
Heilbrigðisráðherra segir að ný
samninganefnd undir forystu Garð-
ars Garðarssonar, formanns kjara-
dóms, hafi tekið til starfa og lagt
mikla vinnu í að fara yfir alla samn-
inga sérfræðinga. Þeir þurfi að
byggjast á þarfagreiningu en ekki
sjálfvirkum framreikningi og að því
sé nú unnið. Segir hann þessi útgjöld
hafa vaxið hratt undanfarin ár. Ráð-
herra segir nýja tilveru ekki geta
hafist í þessum efnum fyrr en á
næsta ári.
Heilbrigðisráðherra
Erfitt að
auka kvóta
fyrir lækn-
isþjónustu
EINN var fluttur á slysadeild vegna
gruns um reykeitrun eftir að eldur
kom upp í íbúð á sjöundu hæð í hús-
næði aldraðra við Bólstaðarhlíð í
Reykjavík um klukkan sex í gær-
morgun. Talið er að kviknað hafi í
dúnsæng út frá leslampa.
Töluverður reykur var í íbúðinni
þegar Slökkvilið höfuðborgarsvæðis-
ins kom á vettvang en búið var að
slökkva eldinn að mestu. Samkvæmt
upplýsingum slökkviliðsins var mað-
ur sem býr í íbúðinni kominn út er
slökkvilið kom á vettvang.
Leslampi
kveikti
í sæng
♦ ♦ ♦