Morgunblaðið - 12.04.2003, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐRÁTTAN á Íslandi hefur
löngum þótt heldur rysjótt og það
fengu krakkarnir í Seljalandsskóla
undir Eyjafjöllum að reyna á leið-
inni heim úr skólanum á fimmtu-
dag en aðeins andartak leið á milli
þess sem myndirnar tvær voru
teknar.
Á fyrri myndinni eru þau í fót-
bolta við skólann sinn í snjó og
krapa líkt og um hávetur væri að
ræða, en á seinni myndinni sem
tekin var 400 metrum frá skólanum
og nokkrum mínútum síðar var
komin hellirigning og túnin græn
líkt og á miðju sumri. Það er því
ekki ofsögum sagt að stundum geti
verið erfitt að klæða sig eftir veðri
hér á landi eins og landsmenn ættu
reyndar að vera farnir að þekkja.
Morgunblaðið/RAX
Vetur og sumar á
sama augnabliki
„HINUMEGIN er svipur heimsk-
ingjans og hérna einskonar refur
sem er reiðubúinn að klekkja á
einhverjum,“ segir Erlingur Jóns-
son myndhöggvari og bendir á
helstu einkenni nýrrar högg-
myndar sem komið hefur verið
fyrir í Morgunblaðshúsinu í
Kringlunni. Verkið kallar Erling-
ur Gaggrýnandann og er það gert
úr ösp. „Í Biblíunni er talað um að
menn sjái ekki bjálkann í eigin
auga heldur flísina í auga náung-
ans. Þessi „gaggrýnandi“ gengur
með mikinn bjálka í öðru auganu
og notar hitt alopið í leit að hugs-
anlegum flísum í augum annarra.“
Erlingur hefur um árabil starfað
að list sinni í Ósló, þar sem hann
kenndi einnig við myndlistahá-
skóla. Hann kom nú til landsins í
tilefni af dagskrá helgaðri honum
og list hans, sem haldin var í
heimabæ hans, Keflavík, fyrr í vik-
unni. Hann notaði þá tækifærið til
að koma þessu nýja verki fyrir í
anddyri Morgunblaðshússins.
„Ég er þakklátur fyrir að verkið
fái að standa hér. Að mínu mati
eru ekki gaggrýnendur á Morg-
unblaðinu heldur gagnrýnendur.
Þar er mikill munur á. Ég var einu
sinni með sýningu í Hafnarfirði,
húsrýmið var ekki mikið en safnað
hafði verið saman töluverðu af
verkum. Það var alltof þröngt. Ég
man að Bragi Ásgeirsson skrifaði
um þessa sýningu og sagði, eins og
rétt var, að þetta væri kraðak!“
segir Erlingur og hlær. „Það var
holl og góð gagnrýni; dæmigerð
og rétt gagnrýni eins og birtist um
menningarmál á síðum blaðsins.
Einu sinni var Stravinský á
göngu úti í skógi ásamt vinum sín-
um og allir voru í himnesku skapi.
Allt í einu flaug kráka yfir og
gargaði óskaplega. Hvaða fugl var
þetta, sagði einn þeirra. Þetta er
áreiðanlega gaggrýnandi! svaraði
Stravinský. Gaggrýnandinn er
eins og kráka, báðir eru sífellt með
hávaða og læti og geta ekki séð
neitt án þess að gagga eitthvað yf-
ir því.
Ein vísa Steingríms Thorsteins-
sonar hefur alltaf verið mér til við-
vörunar: Lastaranum líkar ei neitt
/ lætur hann ganga róginn, / finni
hann laufblað fölnað eitt, / þá for-
dæmir hann skóginn. Þannig menn
þurfa alltaf að láta til sín taka og
eyðileggja út frá sér.
En af hverju langaði mig að láta
þetta verk standa hér? Mig langaði
að koma því fyrir til heiðurs
Matthíasi Johannessen, Braga,
Gísla Sigurðssyni og því góða fólki
á blaðinu sem hefur verið að
vernda íslenska menningu.
Hér á Morgunblaðinu þola menn
að sjá þennan gaggrýnanda. Allir
vita að ekki má nefna snöru í
hengds manns húsi en hér er eng-
inn „gaggrýnandi“! Því finnst mér
eiga vel við að hann standi hér í
einhvern tíma,“ segir Erlingur.
Gagnrýn-
andi eða
gaggrýn-
andi?
Morgunblaðið/Einar Falur
Erlingur Jónsson við verk sitt, Gaggrýnandann.
„MJÖG margir hér í Jórdaníu eru
fegnir því að Saddam Hussein hefur
verið komið frá völdum og vonast til
þess að stríðinu ljúki endanlega en
vilja aftur á móti alls ekki að Banda-
ríkjamenn taki þarna við stjórninni.
Mér hefur fundist að arabarnir hér
beri ákaflega lítið traust til Banda-
ríkjamanna án þess ég hafi þó gert
sérstaka úttekt á því,“ segir Þorkell
Þorkelsson, ljósmyndari Morgun-
blaðsins, sem staddur er í Amman á
vegum Rauða kross Íslands og sem
ljósmyndari Alþjóða Rauða krossins
og Rauða hálfmánans. Þorkell bíður
nú eftir að fá að komast yfir til Íraks
en tekur fram að reglur af hálfu
Rauða krossins séu mjög strangar.
„Það er ekki lengra síðan en um dag-
inn að starfsmaður Rauða krossins
lést eftir að hafa lent í skothríð í
Bagdad og það setti allt úr skorð-
um.“
Þorkell segir að almenningur í
Jórdaníu fylgist mjög grannt með
framgangi mála í Írak. „Það eru hér
stórar arabískar sjónvarpsstöðvar
sem sinna þessu mjög vel. Það var
mjög frægur jórdanskur fréttamað-
ur sem féll í Bagdad. Hann var ný-
lega kominn frá Jórdaníu og hafði
verið í búðunum hjá okkur í nokkra
daga áður en hann fór yfir til Bagdad
en hann féll eiginlega strax eftir að
hann kom þangað. Hér hafa margir
bein persónuleg tengsl við stríðið og
það ýtir auðvitað undir óhugnaðinn í
huga almennings hér í Jórdaníu.“
Þorkell Þorkelsson ljósmyndari
býður eftir að komast til Íraks
Jórdanir bera
lítið traust til
Bandaríkjanna
LÖGREGLAN á Selfossi kom upp
um stórt fíkniefnamál á fimmtudags-
kvöld og handtók karl og konu vegna
málsins. Við húsleit lögreglunnar á
heimili karlmannsins á Selfossi fund-
ust yfir 100 e-töflur, um 30 grömm af
amfetamíni og rúmlega 20 grömm af
kannabis. Auk þess fundust vogir og
íblöndunarefni. Lögreglan réðst í að-
gerðina í kjölfar ítarlegrar og vinnu-
frekrar rannsóknar sem fram hefur
farið að undanförnu.
Stórum hluta fíkniefnanna hafði
verið pakkað í söluumbúðir og telur
lögreglan að fíkniefnin hafi verið
ætluð til sölu og dreifingar meðal
ungs fólks á Selfossi fyrir páskahá-
tíðina. Lögregla biður foreldra að
vera á varðbergi gagnvart fíkniefn-
um og hika ekki við að hafa samband
ef spurningar vakna. Einnig eru for-
eldrar og aðrir hvattir til að koma
upplýsingum á framfæri sem miða
að því að fyrirbyggja að fíkniefni
berist til unglinga.
Í fyrrakvöld var annar maður
handtekinn á Selfossi og við húsleit
hjá honum fannst lítilræði af hassi.
Um óskyld mál eru að ræða og eru
þau bæði í rannsókn.
Flettu ofan af
stóru fíkniefnamáli
ÞRÍR nemendur Menntaskól-
ans við Sund, sem voru að
dimittera í miðbænum í gær
ásamt skólafélögun sínum, voru
handteknir vegna líkamsárásar
og settir í fangageymslu. Fórn-
arlambið var starfsmaður fyr-
irtækis á Laugavegi sem var
fluttur á slysadeild með höfuð-
meiðsl. Að auki var tilkynnt um
aðra líkamsárás þar sem MS-
ingar eiga hlut að máli. Að sögn
lögreglunnar lét hópur MS-
inga mjög illa í miðbænum, þeir
brutu rúður á Laugaveginum
og köstuðu flöskum í bifreiðar.
Að auki þurfti lögreglan að
fjarlægja nokkra nemendur
sem voru orðnir viti sínu fjær af
ölvun.
Auk MS-inga voru nemendur
frá Menntaskólanum í Reykja-
vík og Verzlunarskóla Íslands
að dimittera í miðbænum. Að
sögn lögreglunnar voru MR-
ingar og Verzlingar skólum sín-
um og sjálfum sér til mikils
sóma.
Gengu ber-
serksgang í
miðbænum