Morgunblaðið - 12.04.2003, Blaðsíða 25
STRÍÐ Í ÍRAK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 25
MOHAMMED Aldouri, sendiherra
Íraks hjá Sameinuðu þjóðunum,
sagðist í gær stefna að því að setjast
að í ónefndu arabaríki eftir fall
stjórnar Saddams Husseins Íraks-
forseta. Aldouri vildi ekki greina frá
því hvaða land hann hefði í huga en
lofaði Sýrlendinga fyrir að standa
með Írökum í deilum þeirra við
Bandaríkin. Þá sagði Aldouri í viðtali
á Al-Arabiya-sjónvarpstöðinni að
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hefði á fundi
þeirra í fyrradag heitið sér aðstoð
þyrfti hann á henni að halda.
Í viðtalinu var Aldouri greinilega
mjög brugðið vegna sjónvarps-
mynda, sem sýndar hafa verið frá
Bagdad undanfarna daga.
Aldouri er einn fjölmargra íraskra
stjórnarerindreka erlendis sem
starfa nú í tómarúmi í kjölfar falls
stjórnar Saddams Husseins. Í fyrra-
dag höfðu Bandaríkjamenn ítrekað
kröfur sínar gagnvart um 60 ríkjum
um að þau lokuðu sendiráðum Íraks í
umræddum ríkjum, frystu eigur
þeirra og rækju sendimennina úr
landi. Sagði Richard Boucher, tals-
maður utanríkisráðuneytisins í
Washington, að ekki væri lengur
hægt að una því að sendimennirnir
væru fulltrúar Íraks þar sem ríkis-
stjórn Saddams Husseins forseta
væri ekki lengur við völd.
Óttast að snúa aftur til Íraks
„Sendiráðið er lokað um stundar-
sakir,“ sagði á hurð sendiráðs Íraks í
Amman í Jórdaníu. Sömu sögu var
að segja annars staðar, erfitt var að
ná í starfsfók sendiráðanna og menn
voru tregir til að tjá sig. Sums staðar
sást hvar sendifulltrúar voru í óða
önn við að brenna pappíra. Fullyrt
var að sendiherra Íraks í Egypta-
landi, Mohsen Khalil, hefði beðið um
hæli í sendiráðum a.m.k. tveggja
annarra ríkja í Kaíró. Var hann
sagður hræddur við að snúa heim.
Talið er að flest starfsfólk sendi-
ráða Íraks erlendis sé liðsmenn
írösku leyniþjónustunnar og því ekki
ólíklegt að það sé tregt til að fara
heim miðað við þær breytingar, sem
hafa nú átt sér stað þar.
Hyggst setjast að í
ónefndu arabaríki
Bandaríkjamenn vilja að sendiráðum Íraka verði lokað
New York, Washington. AFP.
Mohammed Aldouri ræðir við fréttamenn í New York.
HÁLFBRÓÐIR Saddams Husseins,
Barzan al-Takriti, beið bana í gær-
morgun þegar bandarísk herflugvél
gerði sprengju-
árás á sveitabæ
hans í Ramadi-
héraði, vestan við
Bagdad, að sögn
vinar fjölskyldu
hans.
Heimildarmað-
urinn, sem vildi
ekki láta nafns
síns getið, sagði
að Saddam hefði
hneppt Barzan í stofufangelsi 5.
mars í húsi við forsetahöll í Jadriya,
hverfi í austurhluta Bagdad. Þegar
bandarískar hersveitir réðust inn í
borgina flúði Barzan á sveitabæ sinn
í Ramadi, um 100 km frá Bagdad.
Fjölskylduvinurinn sagði að
nokkrir af lífvörðum Barzans hefðu
einnig fallið í loftárásinni. Áður hafði
bandaríska herstjórnin skýrt frá því
að herflugvél hefði varpað sex
sprengjum á sveitabæ Barzans.
Saddam Hussein hafði hneppt
hálfbróður sinn í stofufangelsi fyrir
að leggjast gegn því að yngri sonur
hans, Qusay, tæki við forsetaemb-
ættinu félli Saddam í stríðinu.
Barzan var skipaður yfirmaður
leyniþjónustu Íraks árið 1983 en féll
í ónáð fimm árum síðar þegar hann
lagðist gegn því að ein af dætrum
Saddams giftist Hussein Kamel
Hassan, einum af helstu embættis-
mönnum Baath-flokksins. Hussein
Kamel hafði yfirumsjón með her-
gagnaiðnaðinum þar til hann flúði til
Jórdaníu árið 1995. Hann var ráðinn
af dögum ári síðar þegar hann sneri
aftur til Íraks.
Eldri sonur Saddams, Uday,
kvæntist dóttur Barzans „fyrir
löngu“ en þau skildu nokkrum vikum
síðar, að sögn fjölskylduvinarins í
Kaíró. Eftir deiluna við Saddam árið
1988 var Barzan sendur til Genfar til
að vera fulltrúi Íraks hjá Sameinuðu
þjóðunum og hann sneri aftur til
Íraks 1998.
Hálfbróðir
Saddams
beið bana
í loftárás
Kaíró. AFP.
Barzan al-Tikriti