Morgunblaðið - 12.04.2003, Síða 48

Morgunblaðið - 12.04.2003, Síða 48
SKOÐUN 48 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ er rétt sem segir í Reykja- víkurbréfi Morgunblaðsins 30. mars s.l. að ýmsum finnst Morg- unblaðið breytast í „flokksmálgagn Sjálfstæðisflokksins“ þegar dregur að kosningum. Á sama stað segir að þeir hinir sömu hafi hins vegar ekki „fært nein rök fyrir þeim staðhæfingum“. Annað mál sé að „áþekk lífsviðhorf“ séu í Sjálfstæð- isflokki og á Morgunblaðinu og því sé oftast um svipaðar áherslur í ritstjórnargreinum, þar sem eins og segir „skoðanir blaðsins eru settar fram“. „Skoðanir blaðsins eru eitt, fréttir eru annað“, segir ennfremur og nokkru áður segir í Reykjavíkurbréfinu 30. mars um fréttaskrif og frásagnir blaðsins af kosningabaráttunni: „Áhersla verður lögð á að í þeim efnum sitji allir við sama borð“. Landsfundur Sjálfstæðis- flokksins og vorþing Samfylkingarinnar Sömu helgi og ofangreint Reykjavíkurbréf er ritað heldur Sjálfstæðisflokkurinn landsfund, þar sem meginviðfangsefnið er að leggja fram, ræða og samþykkja stefnuskrá fyrir komandi kosning- ar. Seturétt eiga á annað þúsund félagsmenn í Sjáfstæðisflokknum. Flokkurinn er annar tveggja stærstu flokka landsins og því sæta hans stefnumál fyrir kosn- ingar umtalsverðum tíðindum. Viku síðar eða um nýliðna helgi hélt hinn stóri flokkurinn, Sam- fylkingin, vorþing sem hefur sama tilgang: að leggja fram, ræða og samþykkja stefnuskrá fyrir kom- andi kosningar. Seturétt eiga allir flokksmenn, þátt tóku hins vegar milli fimm og sexhundruð manns alls, að sögn þeirra sem skipu- lögðu þingið. Viðburðir þessir gegndu ná- kvæmlega sama hlutverki í und- irbúningi kosningabaráttunnar, þótt formleg staða fundanna í flokkslögum sé ólík. Stefnuskrá flokkanna fyrir kosningarnar var aðalatriði beggja eins og leidd verða rök að síðar í greininni. Ég er í hópi þeirra sem telja að Morgunblaðið breytist í „flokks- málgagn Sjálfstæðisflokksins“ þegar líður að kosningum. Í ljósi ofangreindrar fréttastefnu, sem Morgunblaðið fullyrðir að sé höfð að leiðarljósi ákvað ég, eins og far- ið var fram á í Reykjavíkurbréfinu 30. mars, að „færa rök“ fyrir þeirri staðhæfingu. Ég geri það með því að bera saman „fréttir“ blaðsins af þessum tveimur viðburðum sem fram fóru með nokkurra daga millibili. Landsfundur þrisvar sinnum fréttnæmari en vorþing Ég ákvað að skoða fréttir, myndir og fréttauppslátt blaðsins þá daga sem þessir viðburðir stóðu og daginn eftir að þeim lauk. Mældir voru dálksentimetrar með reglustiku, sem kann að vera eitt- hvað ónákvæmt, en samanburður- inn er engu að síður hlutfallslega réttur þar sem báðir voru mældir með sama hætti. Fyrst mældi ég fréttir Morg- unblaðsins af landsfundi Sjálf- stæðisflokksins 27. –30. mars. Á fjórum dögum birtust fréttir og myndir á samtals þrettán hundruð fjörutíu og átta dálksentmetrum, þar af eru 120 dálksentímetrar á forsíðu. Alls eru þannig lagðar undir „fréttir“ af landsfundinum um sjö fréttasíður og samtals heil forsíða. Auk þessa var opnað sér- stakt vefsetur á forsíðu mbl.is „Landsfundur Sjálfstæðisflokks- ins“. Myndir taka mikið rými á síðunum og eru þær fjórtán tals- ins. Alls taldi ég um fjögur hundr- uð tuttugu og fimm manns, sem sáust á smærri og stærri hóp- myndum, auk þrjátíu og fjögurra einstaklinga á ýmsum nærmynd- um. Til samanburðar mældi ég frétt- ir Morgunblaðsins af vorþingi Samfylkingarinnar 4. –5. apríl. Á þremur dögum birtust „fréttir“ og myndir á samtals fjögur hundruð og tuttugu dálksentímetrum, þar af tuttugu og fjórir dálksentimetr- ar á forsíðu. Samtals er þetta tæp- ur eindálkur á forsíðu og tvær inn- síður í blaðinu. Myndir eru fjórar nærmyndir af átta einstaklingum, en á tveimur þeirra sjást átján einstaklingar í bakgrunni. Landsfundur Sjálfstæðisflokks- ins var sem sagt um þrisvar sinn- um fréttnæmari en vorþing Sam- fylkingarinnar og þátttakendur þar tæplega tuttugu sinnum frétt- næmara myndefni en þau fimm til sex hundruð manns sem sóttu vor- þing Samfylkingarinnar. Umfjöll- unin var að vísu á fjórum dögum um landsfundinn en þremur um vorþingið. Myndaval af þessum tveimur fundum er síðan kapítuli út fyrir sig, en allir vita að fjöldi lesenda skoðar aðeins myndir og les fyr- irsagnir. Þetta veit Morgunblaðið og er hinn ótrúlegi fjöldi litmynda sem birst hefur af Sólveigu Pét- ursdóttur dómsmálaráðherra í blaðinu órækt vitni þess, en Sól- veig er ásamt eiginmanni sínum einn af eigendum blaðsins. Af vor- þingi Samfylkingarinnar birtist ein svart-hvít mynd af Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur talsmanni og for- sætisráðherraefni Samfylkingar- innar. Af Davíð Oddssyni birtust tvær stórar myndir á forsíðu, auk allmargra inná fréttasíðunum. Hér skal ekki reynt að meta efni þessara „frétta“ Morgunblaðsins, en sér ekki hvert mannsbarn hversu lítið er að marka Reykja- víkurbréfið þann 30. mars um að- skilnað fréttamats blaðsins og stjórnmálaskoðana ritstjórnenda þess? Sitja „allir við sama borð“? Nú munu Sjálfstæðismennirnir sem skipa ritstjórn Morgunblaðs- ins segja við framangreindum rök- semdum: Vorþing flokks er eitt, landsfundur allt annað. Lands- fundinn sóttu helmingi fleiri og hann stóð í fjóra daga, en vorþing- ið í tvo. Þar var kosin ný forysta, en ekki á vorþinginu. Það réttlætir þrisvar sinnum fleiri dálksentí- metra, myndaval sem gefur til kynna að annar fundurinn hafi verið fjöldafundur, en hinn fremur fámennur, auk sérstaks vefseturs fyrir landsfund Sjálfstæðisflokks- ins. Við þessum röksemdum skal endurtekið það sem áður sagði. Báðum þessum flokksþingum var ætlað það meginhlutverk að móta kosningastefnuskrá flokkanna, annað sóttu um tólf hundruð manns, en hitt fimm til sex hundr- uð manns. Til annars var kosið, en hitt var opið öllum flokksmönnum. Annað kaus forystu flokksins en hitt ekki. Sú kosning var þó ekki aðalatriði heldur kosningastefnu- skráin eins og fréttamat Morg- unblaðsins bar glögglega með sér. Kosningar landsfundar Sjálfstæð- isflokksins á forystu og miðstjórn fengu um tuttugu dálksentimetra af þeim þrettán hundruð fjörutíu og átta sem lagðir voru undir landsfundinn og sýnir það vel vægi þeirra á þessum tiltekna fundi. Ég hef ekki undir höndum gögn til að bera saman fundi annarra flokka eða fundi fyrr á árum, en fundir rúmum mánuði fyrir kosn- ingar hafa aðra stöðu, en tíðinda- litlir fundir á miðju kjörtímabili. SJÁLFSTÆÐISFLOKK- URINN OG „FRÉTTIR“ MORGUNBLAÐSINS Eftir Kristján Ara Arason „Ég er í hópi þeirra sem telja að Morgunblað- ið breytist í „flokksmálgagn Sjálf- stæðisflokksins“ þegar líður að kosningum.“ Höfundur er blaðamaður og kennari í fjölmiðlafræði. Fréttnæmi landsfundar Sjálfstæðisflokks að mati Morgunblaðsins saman- borið við vorþing Samfylkingar, mælt í dálksentimetrum. Ath. að umfjöll- un um landsfund var í fjóra daga, en vorþingið í þrjá. arráðuneytis og Landsvirkjunar beita nafnlausum áróðri gegn þingmönnum og störfum þeirra? Fyrirsögnin „Ungt fólk á Austur- landi er hlynnt Kárahnjúkavirkjun“ vísar í skoðanakönnun. Rúmur helm- ingur er fylgjandi virkjun, heil 34% eru á móti og það á Austurlandi. Eru þessi 34% óvinir Austurlands? Draumar ungra Austfirðinga eru væntanlega jafn fjölbreyttir og fram- tíðardraumar ungmenna á öllu Ís- landi en enginn virðist spyrja hvort í unga fólkinu búi sú framtíðarsýn eða frumkraftur sem gæti breytt sam- félaginu. Menn fá svörin sem þeir vilja: 60% töldu sig vilja vinna í álveri. Getur verið að af öllum heimsins tækifærum hafi 60% ungmenna sett ál í fyrsta sæti? Er „hvað langar þig að verða …?“ of opin og hættuleg spurning? Það er sama hvar borið er niður. Ómar Ragnarsson er sagður í „heil- ögu stríði gegn virkjunum og stór- iðju“. Steinunn Sigurðardóttir er sögð hafa „hallað réttu máli“ í Kastljósinu. María Ellingsen er sögð hafa farið með ósannindi á Bylgjunni. Toyota- umboðið er hvatt til að „láta auglýs- ingamanninn Egil Ólafsson lesa með tilþrifum“ tilkynningu þess efnis að Toyota hafi ekki styrkt Umhverfis- vini og þar með Jakob Frímann. For- maður Náttúruverndarsamtaka Ís- lands fær verstu útreiðina, orð hans eru sögð „þvæla og vitleysa“ og þarna má sjá fyrirsagnir eins og „Enn skrökvar Árni Finnsson og það dug- lega“. „Árni Finnsson, formaður NSÍ, hikar ekki við að fara langt út af braut sannleikans í baráttu sinni gegn virkj- unum.“ Vitnað er í Friðrik Sófusson sem segir Náttúruverndarsamtök Ís- lands vera handbendi útlendinga og vinna gegn „íslenskum hagsmunum“. Eiga forstjórar ríkisfyrirtækja að nota svona þjóðernislega orðræðu og sníða „íslenska hagsmuni“ að sínum eigin? Enginn fær að svara fyrir sig en öllu sem snertir virkjun og stóriðju er snúið á jákvæðan og nánast trúarleg- an veg. „Hér hitti ég bara brosandi fólk,“ segir Smári Geirsson. „Á sama tíma og flestir landsmenn fögnuðu undirskrift“ flögguðu landverðir í Drekagili í hálfa stöng. „Á sama tíma og þorri íslensku þjóðarinnar fagnar ákvörðun stjórnar Alcoa …“ Fær enginn gæsahúð? Erum við í Norður- Kóreu? Ósjálfstæðisbaráttan gengur lengst þegar vitnað er með lotningu í Alcoa-menn: „Þá er rétt að minna á þau orð upplýsingafulltrúa Alcoa, Jake Siewert að í allri nálgun Alcoa að málinu hafi verið tekið mjög mikið mið af umhverfisþáttum.“ Var hann að tala um stóru strompana? Var hann að hrósa tálbeitu iðnaðarráðu- neytisins: „hagkvæmar umhverfis- kröfur“? Var hann að tala um land, ímynd og áhættu sem er einskis met- in? Star.is er opinbert vald sem beitir sér gegn nafngreindum persónum og starfsheiðri þeirra, leggur fæð á stjórnmálamenn og frjáls félagasam- tök og ónafngreindir skrifarar kalla nafngreinda menn lygara. Þarna er beitt orðum og aðferðum sem síðasta öld á að hafa kennt okkur að nota ekki og það sem verra er: Hagsmunahópur skrumskælir tjáningarfrelsið með því að hertaka orðið „Austfirðingur“ og nota sem samnefnara yfir „eina þjóð með einn vilja“ þrátt fyrir að margir hörðustu fylgismenn verndunar séu einmitt þeir Austfirðingar sem þekkja landið best og ættu að öllu eðlilegu að vera gild rödd í sínu sam- félagi. Á star.is er orðsending Félags um verndun hálendis Austurlands sögð „taktlaus“ og gefið í skyn að á bak við hana standi „einhverjir aðrir en Austfirðingar“. Málflutningur star.is nær fjögur ár aftur í tímann og hann ætti að fá menn til að íhuga alvarlega hvaða að- ferðum og valdi var beitt til að veita þessum framkvæmdum brautar- gengi, hversu margir hafa kosið að þegja í stað þess að segja hug sinn op- inberlega og hversu mikið mark er takandi á þeim upplýsingum og rann- sóknum sem aðstandendum STAR var falið að afla og miðla. Fari endur- menntunarnámskeið í taugarnar á mönnum getur fátt verið heilagt í samskiptum við vísindamenn með óþægilegar niðurstöður. Star.is er að- eins toppurinn á ísjakanum, aðeins brot af þeim tugmilljónum sem hefur verið eytt til að að koma „upplýsing- um“ til almennings gegnum almanna- tengslafyrirtæki þar sem fyrrverandi fréttamenn virðast lausir undan siða- reglum blaðamanna. Áróðurinn er greiddur af þjóðinni til að tryggja vilja meirihlutans og þar með „lýð- ræðislega niðurstöðu“. Menn hljóta að spyrja hverjir skrifa þennan nafn- lausa áróður, hvað hann hefur kostað þjóðina og hvaða stjórnmálamenn bera ábyrgð á þessari hræðilegu þró- un. Forstjóri Alcoa sagði að það væri „alltaf til fólk sem er á móti framför- um“. Ef star.is er aðferðin til að keyra framfarir í gegn þá er fórnin ekki að- eins náttúra Íslands heldur lýðræðið sjálft. Höfundur er rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.