Morgunblaðið - 12.04.2003, Side 68
DAGBÓK
68 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Ör-
firisey, og Freri koma í
dag. Árni Friðriksson
fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Sarfaqittuk kemur í
dag.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Áhuga-
fólk um boccia, skrán-
ing í bocciaklúbb, í
Hraunseli sími 555
0142. Félagsheimilið
Hraunsel er opnaðð kl.
9 mánudaga, miðviku-
daga og fimmtudaga,
og alla daga vikunnar
frá kl. 13–17. Kaffi á
könnunni kl. 15–16.30.
Gerðuberg, félags-
starf. Á mánudögum
og föstudögum kl. 9.39
sund og leikfimiæfing-
ar í Breiðholtslaug.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl.
10 laugardagsmorgna
frá Gjábakka.
Krummakaffi kl. 9.
Gigtarfélagið. Leik-
fimi alla daga vikunn-
ar. Létt leikfimi, bak-
leikfimi karla, vefja-
gigtarhópar, jóga,
vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla,
kl. 18.15 á mánudögum
í Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í
fræðsludeild SÁÁ
Síðumúla 3–5 og í
Kirkju Óháða safnað-
arins við Háteigsveg á
laugardögum kl. 10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
að Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið
hús alla laugardaga frá
kl. 14.
Kattholt. Flóamarkað-
ur í Kattholti, Stangar-
hyl 2, er opinn þriðjud.
og fimmtud. frá kl. 14–
17. Leið 10 og 110
ganga að Kattholti.
Kvenfélag Grensás-
sóknar. Fundur verður
í safnaðarheimilinu
mánudaginn 14. apríl
kl. 20. Páskaeggja-
bingó.
Barðstrendingafélag-
ið heldur skemmtun,
félagsvist og dansleik, í
Breiðfirðingabúð í
kvöld laugardaginn 12.
apríl. Félagsvistin
hefst kl. 20.30.
Minningarkort
Minningarkort ABC-
hjálparstarfs eru af-
greidd á skrifstofu
ABC-hjálparstarfs í
Sóltúni 3, Reykjavík í
síma 561-6117. Minn-
ingargjafir greiðast
með gíróseðli eða
greiðslukorti. Allur
ágóði fer til hjálpar
nauðstöddum börnum.
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings
málefnum barna fást
afgreidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í síma 561-
0545. Gíróþjónusta.
Barnaspítali Hrings-
ins. Upplýsingar um
minningarkort Barna-
spítalasjóðs Hringsins
fást hjá Kvenfélagi
Hringsins í síma 551-
4080. Kortin fást í
flestum apótekum á
höfuðborgarsvæðinu.
Bergmál, líknar- og
vinafélag. Minningar-
kort til stuðnings or-
lofsvikna fyrir krabba-
meinssjúka og lang-
veika fást í síma
587-5566, alla daga fyr-
ir hádegi.
Minningarkort Hjarta-
verndar, fást á eftir-
töldum stöðum á
Reykjanesi: Kópavog-
ur: Kópavogs Apótek,
Hamraborg 11. Hafn-
arfjörður: Lyfja, Set-
bergi. Sparisjóðurinn,
Strandgata 8–10,
Keflavík: Apótek
Keflavíkur, Suðurgötu
2, Landsbankinn Hafn-
argötu 55–57.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á Vest-
urlandi: Akranes:
Hagræði hf., Borgar-
nes: Dalbrún, Bráka-
braut 3. Grundarfjörð-
ur: Hrannarbúð sf.,
Hrannarstíg 5. Stykk-
ishólmur: Hjá Sesselju
Pálsd., Silfurgötu 36.
Ísafjörður: Póstur og
sími, Aðalstræti 18.
Strandasýsla: Ásdís
Guðmundsd. Laugar-
holti, Brú.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á Aust-
urlandi: Egilsstaðir:
Gallery Ugla, Mið-
vangur 5. Eskifjörður:
Póstur og s., Strand-
götu 55. Höfn: Vilborg
Einarsdóttir Hafnar-
braut 37.
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrif-
stofutíma. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Í dag er laugardagur 12. apríl,
102. dagur ársins 2003. Orð dags-
ins: En mikillega bið ég yður,
bræður, fyrir sakir Drottins vors
Jesú Krists og fyrir sakir kærleika
andans, að þér stríðið með mér
með því að biðja til Guðs fyrir mér.
(Rómv. 15, 30.)
Á vefritinu Múrnumstanda menn ekki
beinlínis á öndinni yfir
fregnum af væntanlegu
framboði Nýs afls. Í pistli
Ármanns Jakobssonar
múrverja segir: „Seinustu
ár hefur ekki verið kosn-
ingavor án þess að hópur
„valinkunnra“ karlmanna
sem komnir eru af létt-
asta skeiði kæmi saman
og „hótaði“ framboði.
Meðal fastagesta hafa
verið þeir Jón [Magnús-
son] og Guðmundur [G.
Þórarinsson], auk Ellerts
Schram og Valdimars Jó-
hannssonar. Jón í Járn-
blendinu var stundum
með áður en hann fór yfir
til Sverris.
Helsta einkenni hópsinser að í honum eru
einvörðungu karlmenn og
þeir hafa allir annaðhvort
setið á þingi en horfið
þaðan ósáttir, án þess að
fá tilhlýðleg sendiherra-
og bankastjóraembætti,
eða að þeir hafa boðið sig
fram í ófáum prófkjörum
en ekki fengið braut-
argengi. Jafnvel fyrir for-
setakosningar hefur grái
fiðringurinn pólitíski
gripið suma af þessum
körlum, a.m.k. man ég
ekki betur en að Ellert B.
Schram hafi þá verið orð-
aður við framboð. Það er
því afar gott að þeir skuli
loksins hafa látið til skar-
ar skríða.
Einhvern veginn lyktaraðferðin samt ekki lít-
ið af „elítisma“. Í fregn-
um af þessu kemur alltaf
fram að hér séu „valin-
kunnir“ menn á ferð, öf-
ugt við sauðsvartan al-
múgann. Og stundum er
engu líkara en hæfileikar
þessara manna séu aðal-
atriðið. Um hvað verður
svo boðið fram? Væntan-
lega á svipuðum forsend-
um og Kristján Pálsson
og Frjálslyndi flokkurinn
–og hver veit nema reynt
verði að sækja fylgi til
Samfylkingarinnar, sem
hafði jú hirt óformlegan
leiðtoga hópsins frá hon-
um.“
Áfram heldur Ármann:„Svo má spyrja sig
hvort hópur sextugra
kvenna mundi nokkurn
tímann bjóða sig fram og
stofna flokk á svipuðum
forsendum. Sæju menn
fyrir sér flokk þar sem
Guðrún Agnarsdóttir,
Drífa Sigfúsdóttir, Sigríð-
ur Dúna, Kristín S. Kvar-
an, Jóna Valgerður Krist-
jánsdóttir, Jóna Gróa
Sigurðardóttir, Lára
Margrét Ragnarsdóttir,
Sigríður Jóhannesdóttir
og Arnþrúður Karlsdóttir
stæðu saman um að koma
sér öllum á þing? Gætu
menn séð fyrir sér hóp
„40 valinkunnra kvenna“
senda frá sér ávarp til
þjóðarinnar og fara svo í
framboð?“
Annars er nafnið Nýttafl ekki mjög nýtt,
heldur þvert á móti notað.
Nýtt afl bauð fram í bæj-
arstjórnarkosningum á
Seltjarnarnesi 1990, und-
ir forystu Sivjar nokk-
urrar Friðleifsdóttur.
STAKSTEINAR
Hótanir karla kominna
af léttasta skeiði
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA hefur alltaf fundistborgarbúar undarlega áfjáðir í
að vera með neglda hjólbarða undir
bílum sínum, sérstaklega í ljósi þess
að í borginni festir varla snjó og það
er aðeins örsjaldan sem hált er svo
heita megi. Af þessum sökum hefur
Víkverji lagt metnað sinn í að aka á
naglalausum hjólbörðum árið um
kring, gjarnan á svokölluðum heils-
ársdekkjum. Hann hefur fagnað
hugmyndum um að setja sérstakan
naglaskatt innan borgarinnar enda
bölvað í hljóði þeim óþverra sem
spænist upp af götunum vetur hvern
og leggst á vit þeirra sem hætta sér
út fyrir bifreiðar sínar, að maður tali
nú ekki um allan skítinn sem sest á
bílana sjálfa.
x x x
SÍÐAN gerðist það skömmu fyrirsíðastliðin jól að einn morguninn
gerði lymskuhálku, sem Víkverji átt-
aði sig ekki á þar sem hann var á
ferð sinni, og varð hún til þess að
einn ljósastaurinn í Hafnarfirði
gerði skyndiárás á jeppabifreið
hans. Sem betur fer var Víkverji á
afskaplega lítilli ferð þegar þetta
gerðist, þannig að engin slys urðu á
Víkverja og fjölskyldu hans en öllum
var verulega brugðið. Enda
skemmdist bíllinn töluvert og reynd-
ist reikningurinn fyrir viðgerðinni
vera vel yfir hálfa milljón króna.
Sem betur fer féll það að mestu leyti
í skaut tryggingafélags Víkverja að
punga út fyrir herlegheitunum. Þá
má þess geta að ljósastaurinn hallaði
ofurlítið undir flatt eftir þetta
óvænta stefnumót.
Það verður að segjast eins og er
að eftir þetta var Víkverji á nálum í
umferðinni í hvert sinn sem föl kom
á jörðu, enda hafði hann gert skyndi-
könnun á hjólbörðunum sínum eftir
atvikið og komist að því að líklega
væru fínu heilsársdekkin hans ekk-
ert sérlega heilsárs lengur heldur
hentuðu kannski fyrst og fremst til
sumaraksturs. Eftir nokkra ígrund-
un var því ákveðið að ráðast í kaup á
lítið notuðum vetrardekkjum, af-
bragðsfínum en þó var sá ljóður á
ráði þeirra að þau voru negld í bak
og fyrir. Verður Víkverji að viður-
kenna að hann þurfti að kyngja tals-
verðu stolti áður en hann játaði sig
sigraðan og pungaði út fyrir gödd-
uðum hjólbörðunum.
x x x
ÞAÐ tók síðan svolítinn tíma áðuren dekkjunum atarna var komið
fyrir undir bifreiðinni. Reyndar þótti
frekar lítil ástæða til þess þar sem
sannkallað sumarfæri var í borginni
í langan tíma eftir að dekkin voru
keypt en loks kom eitthvað í átt við
kuldakast og fínu hjólbörðunum var
snarað undir eðalvagninn.
Kuldakastið varði óskaplega stutt
– eiginlega varla miklu lengur en í
fáeina klukkutíma. Síðan hafa komið
nokkur kuldaköst, álíka langvarandi.
Þess á milli sargar Víkverji upp mal-
bikið í borginni á meðan samvisku-
bitið nagar hann sjálfan.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nagladekk eða ekki – það er efinn!
LÁRÉTT
1 bernska, 8 skynfærið, 9
bárur, 10 iðja, 11 skepn-
an, 13 líffærið, 15 þekkja,
18 smala, 21 flaut, 22
mastur, 23 umhyggjan,
24 sjúkdómur.
LÓÐRÉTT
2 mein, 3 róin, 4 röng, 5
dásemdarverk, 6 hand-
festa, 7 margvís, 12
greinir, 14 fiskur, 15
ýlda, 16 tittur, 17 lausa-
grjót, 18 þriðjungur úr
alin, 19 snjóa, 20 fífl.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 hagga, 4 skúfs, 7 fúlar, 8 ruddi, 9 ský, 11 iðni,
13 snös, 14 loðin, 15 mögl, 17 æpti, 20 hal, 22 gubba, 23
játar, 24 rósin, 25 tæran.
Lóðrétt: 1 hafni, 2 galin, 3 aurs, 4 strý, 5 úldin, 6 seims,
10 koðna, 12 ill, 13 snæ, 15 mögur, 16 gabbs, 18 pútur,
19 iðrun, 20 hann, 21 ljót.
Krossgáta
MIG langar að benda á frá-
bæra þjónustu og góðar
verslanir sem eru í Hóla-
garði, v/Lóuhóla, efra
Breiðholti.
Þar er ein besta snyrti-
vöruverslun bæjarins, þar
sem maður er alltaf leystur
út með gjöfum, frábær
kvenfataverslun sem er
með fréttabréf á Netinu og
myndir, blómabúð til sóma,
ritfanga-, íþrótta- og ljós-
myndaverslun þar sem allt
mögulegt er að fá. Einnig
er þar innrömmun, fata-
hreinsun og snyrtistofa
sem ekki eru síðri.
Það sem er einkennandi
fyrir þessar verslanir er hið
góða viðmót sem mætir
manni. Allir svo glaðir og
ánægðir og er eins og við-
skiptavinirnir hafi komið á
hverjum degi í fjöldamörg
ár.
Þið sem vinnið þarna,
hafið þökk fyrir gott og vin-
samlegt viðmót, það er svo
sannarlega mannbætandi
að koma í Hólagarð.
Viðskiptavinur.
Hegnt fyrir að safna
ÉG var sjómaður með góð-
ar tekjur og safnaði í lífeyr-
issjóð. En vegna þess að ég
notaði lífeyrisréttindi þeg-
ar ég varð öryrki duttu ör-
orkubætur niður. Finnst
mér ósanngjarnt að vera
hegnt fyrir að hafa safnað
lífeyrissjóðsréttindum.
Þorlákur Hannesson.
Ríkisútvarpið –
Skert þjónusta
SEM dyggur hlustandi
Ríkisútvarpsins í meira en
hálfa öld er mér ekki sama
þegar ég er svipt einum af
þeim dagskrárliðum sem
ég met mest og hlusta oft-
ast á – en það er morgunút-
varpið milli 7 og 9. Nú hef-
ur klukkutími verið klipinn
úr miðjunni svo þátturinn
er núna hvorki fugl né fisk-
ur og fullkomlega eyðilagð-
ur. Í staðinn kom kjafta-
þáttur um menn og
málefni.
Ég á það sammerkt með
mörgum að finnast gott að
koma mér í gang á morgn-
ana við ljúfa tónlist og
kynningar í lágmarki. Allar
umræður – viðtöl og samtöl
– og hvað þetta nú allt er
kallað um hin ýmsu málefni
– vil ég heyra á öðrum tím-
um dagsins. Þessi kjafta-
þáttur sem var skellt inn í
miðjan morgunþáttinn er
fluttur á samtengdum rás-
um Ríkisútvarpsins.
Og ég spyr – hvað á það
að þýða? Af hverju megum
við, hlustendur Ríkisút-
varpsins, ekki eiga val?
Eina valið sem núna er í
boði er að slökkva.
Ég skora á stjórnendur
Ríkisútvarpsins að breyta
þessu til baka og lofa morg-
unútvarpinu á rás 1 að vera
í friði.
Jórunn Sörensen.
Tapað/fundið
Úr í óskilum
ÚR fannst á Höfðanum
skammt frá Odda sl. mið-
vikudag. Upplýsingar í
síma 567 5768.
Gleraugu
týndust
FJÓLUBLÁ gleraugu
týndust við Nóatún 26
seinnipart sl. þriðjudags.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 551 0261 eða
824 2821.
Grár bakpoki
týndist
GRÁR bakpoki týndist úr
bíl við Hagkaup, Skeifunni,
miðvikudaginn 9. apríl sl. Í
honum eru tvennar æfing-
arbuxur og astmalyf eig-
anda. Þeir sem vita um af-
drif pokans vinsamlega
skilið honum í Hagkaup,
Skeifunni eða hringið í
síma 824 2890.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Góð þjónusta
Morgunblaðið/Golli
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16