Morgunblaðið - 13.04.2003, Qupperneq 1
Stríð í Írak: Saddam allur?
Áhugamaður um bandaríska menningu 10/11
STOFNAÐ 1913 101. TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
KÚRDAR tóku í gær að draga herflokka sína frá
olíuborginni Kirkuk í norðurhluta Íraks. Banda-
ríkjamenn hafa aukið liðsafla sinn í borginni í því
skyni að draga úr gripdeildum og tryggja öryggi
íbúa þar. Hið sama gildir um Bagdad þar sem
bandarískar hersveitir hafa tekið upp eftirlitsferð-
ir um helstu hverfi borgarinnar. Mikil spenna ríkti
þó enn í borginni í gær og fregnir bárust af því að
trúflokkar múslima væru teknir að berjast.
Fréttamenn í Kirkuk sögðu brottflutning her-
sveita Kúrda hafa hafist í gærmorgun. Sögðu þeir
hann mikilvægan til að róa taugar Tyrkja sem
hafa miklar áhyggjur af rás atburða í Kirkuk og
Mosul, þriðju stærstu borg Íraks.
Tyrkneskir ráðamenn óttast að með töku þess-
ara borga sé verið að skapa grundvöll fyrir stofn-
un sjálfstæðs ríkis Kúrda í norðurhluta landsins.
Þar eð Kúrdar eru fjölmennur minnihlutahópur í
Tyrklandi gæti slíkt haft mikil pólitísk áhrif og
raskað stöðugleika þar. Tyrknesk stjórnvöld
lýstu yfir því í gær að þau teldu ekki ástæðu til að
senda herafla inn í Kúrdahéruðin „að sinni“.
Bandarískur liðsafli treysti og tök sín á Mosul í
gær sem féll á föstudag án bardaga eftir uppgjöf
íraska hersins þar. Hersveitir Bandaríkjamanna
voru sagðar teknar að feta sig í áttina að Tikrit,
heimaborg Saddams Hussein og helsta vígi Baath-
flokksins. Sú borg stendur í raun ein eftir af veldi
Saddams forseta og telja margir að þar kunni
lokauppgjörið að fara fram. Þungvopnaður liðs-
auki Bandaríkjamanna tók að berast til Íraks í
gær, að sögn CNN-sjónvarpsstöðvarinnar. Lík-
legt þykir að þeim hersveitum verði beitt til árásar
á Tikrit.
Spenna og upplausn einkenndi enn ástandið í
Bagdad í gær. Bandaríkjamenn gátu þó glaðst yfir
því að heimamenn sýndu því mikinn áhuga að
koma hernámsliðinu til hjálpar í því skyni að binda
enda á skálmöldina sem þar hefur ríkt á undan-
liðnum dögum. Hundruð manna höfðu í gær gefið
sig fram við bandarísku herstjórnina í Bagdad
sem hvatti á föstudag fyrrum embættismenn og
sérfræðinga á ýmsum sviðum til að aðstoða við að
koma á reglu í borginni. Lögreglumenn og verk-
fræðingar voru í þeim hópi en algjört stjórnleysi
hefur ríkt í borginni undanfarna daga og vatns- og
rafmagnsveitur hafa ekki starfað.
Trúflokkar berjast
Paul Wood, fréttamaður breska ríkisútvarpsins,
BBC, í Bagdad skýrði frá því í gær að tekið væri
að bera á átökum trúarhópa í borginni. Shía-músl-
imir og sunnítar berðust í mörgum hverfum henn-
ar. Shía-múslimar, sem einnig kallast shítar, eru
hinn kúgaði meirihluti í Írak. Sunnítar, sem eru
um fimmtungur þjóðarinnar, hafa farið með völdin
í landinu en Saddam Hussein heyrir þeim flokki
manna til í trúarlegum efnum.
Þjófaflokkar, flestir vopnaðir, fóru enn um
Bagdad í gær en þessir hópar eru nú teknir að ein-
beita sér að heimilum alþýðu manna og fyrirtækj-
um enda hafa þeir náð að „hreinsa“ flestar stjórn-
arbyggingar og stofnanir.
Kúrdar halda frá Kirkuk
Óbreyttir borgarar bregðast vel við ákalli Bandaríkjamanna
MOHAMED ElBaradei, yfirmaður Alþjóða-
kjarnorkustofnunarinnar (IAEA), sagði í
gær að engar sannanir væru enn fyrir því að
gereyðingarvopn væru falin í Írak. Sagði
hann að erindrekar Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) ættu að gera nauðsynlegar rannsóknir
á hugsanlegum bannefnum, ekki Banda-
ríkjamenn. „Aðeins þannig er hægt að gefa
trúverðugar yfirlýsingar um vopnin sem
hugsanlega eru geymd [í Írak],“ sagði El-
Baradei í viðtali við þýska vikuritið Bild am
Sonntag.
Eftirlit á vegum bandamanna
Árásin á Írak var sem kunnugt er m.a. rétt-
lætt á grundvelli þess að framfylgja þyrfti
ályktunum öryggisráðs SÞ er kveða á um að
Írakar megi ekki eiga gereyðingarvopn. Var
frá því greint í gær í The Guardian að bresk
og bandarísk stjórnvöld hefðu sent menn á
sínum vegum inn í Írak til að leita gereyðing-
arvopna. Segir blaðið að Charles Duelfer, sem
eitt sinn var aðstoðaryfirmaður vopnaeftirlits-
nefndar SÞ, fari fyrir teyminu og að eftirlits-
mennirnir hafi þrívegis farið inn í Írak á und-
anförnum tveimur vikum. Engin gereyð-
ingarvopn hafi þó ennþá fundist.
Eru þessi tíðindi sögð líkleg til að valda
embættismönnum SÞ óánægju. Síðast á
fimmtudag hafi Kofi Annan, framkvæmda-
stjóri SÞ, sagt að hann teldi umboð vopnaeft-
irlitsnefndar SÞ til leitar í Írak enn í gildi.
Var haft eftir ElBaradei í gær að aðeins SÞ
hefðu umboð til að eyða vopnum Íraka, ekki
Bandaríkjamenn.
Reuters
Bandarískir hermenn skoða vopn sem tek-
in voru af íröskum hermönnum.
SÞ fargi
gereyðing-
arvopnum
Berlín, London. AP, AFP.
BANKARÁÐ Búnaðarbanka Ís-
lands hf. og stjórn Kaupþings
banka hf. samþykktu í gær, laug-
ardag, að leggja til við hluthafa-
fundi bankanna að þeir verði sam-
einaðir og á sameinaði bankinn að
heita Kaupþing Búnaðarbanki hf.
Hluthafar Kaupþings banka hf.
eiga að fá um 51,77% í hinum sam-
einaða banka en hluthafar Búnað-
arbanka Íslands hf. um 48,23%.
Hlutaféð verður allt að
4.155.000.000 króna að nafnvirði
eða 415.500.000 hlutir. Bankinn
verður skráður í Kauphöll Íslands
og í Kauphöllinni í Stokkhólmi í
Svíþjóð. Kaupþing Búnaðarbanki
hf. verður stærsti banki landsins,
verðmætasta skráða fyrirtækið í
Kauphöll Íslands og í hópi 10
stærstu banka á Norðurlöndum.
Stefnt er að því að 30. maí nk. verði
fyrsti starfsdagur sameinaðs
banka.
Bankaráð BÍ og stjórn Kaup-
þings banka telja að sameiningin
auki arðsemi fyrir hluthafa og
tryggi viðskiptavinum enn betri og
víðtækari þjónustu. Ná megi auk-
inni hagkvæmni í rekstri og rekstr-
artengdum fjárfestingum með það
að markmiði að arðsemi eigin fjár
til lengri tíma verði 15%, arð-
greiðslur nemi 10 til 30% af hagn-
aði bankans og eiginfjárhlutfall
verði ekki lægra en 10%.
Stærstu hluthafar sameinaðs
banka eru Egla ehf. (9,43%), fjár-
málaráðuneytið (8,84%), Meiður
ehf. (8,16%), hlutabréf skráð í Sví-
þjóð (6,20%), Lífeyrissjóður verzl-
unarmanna (4,17%) og Íslands-
banki hf. (3,95%). Tillaga er um að
starfandi stjórnarformaður verði
Sigurður Einarsson, varaformaður
verði Hjörleifur Jakobsson, en
Hreiðar Már Sigurðsson og Sólon
R. Sigurðsson verði forstjórar.
Kaupþing Búnaðarbanki hf. verður stærsti banki
landsins og í hópi 10 stærstu banka á Norðurlöndum
Búnaðarbanki Íslands
og Kaupþing sameinast
Morgunblaðið/Kristinn
Sigurður Einarsson, Hreiðar Már Sigurðsson, Hjörleifur Jakobsson og Sólon R. Sigurðsson greindu frá sam-
einingaráformum Búnaðarbanka Íslands og Kaupþings í Þjóðmenningarhúsinu í gær.
„ÞAÐ er ekki hægt
að útiloka upp-
sagnir,“ segir Sig-
urður Einarsson,
formaður stjórnar
Kaupþings banka
hf., um fyrirhug-
aða hagræðingu
vegna samruna bankanna.
Fyrir liggur að hagrætt verði
þar sem núverandi starfsemi Bún-
aðarbankans og Kaupþings skar-
ast, það er á fjárfestingarbanka-
sviði. Báðir bankarnir eru með
starfsemi í Lúxemborg og er
stefnt að því að sameina þá starf-
semi.
Uppsagnir
ekki útilokaðar
HJÖRLEIFUR
Jakobsson, for-
maður bankaráðs
Búnaðarbanka Ís-
lands, segir mjög
ólíklegt að áform
um sameiningu
verði stöðvuð, „en
þetta er fyrst og fremst á valdi
hluthafa bankanna“.
Þau skilyrði eru sett fyrir sam-
runanum að hluthafafundir BÍ og
Kaupþings samþykki hann, einnig
Fjármálaeftirlitið og í þriðja lagi
að samkeppnisráð geri ekki at-
hugasemdir. Þá þarf að fara fram
áreiðanleikakönnun og er stefnt
að því að niðurstaða hennar liggi
fyrir ekki síðar en 28. apríl næst-
komandi.
Á valdi
hluthafanna