Morgunblaðið - 13.04.2003, Blaðsíða 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2003 57
þar á meðal framúrskarandi
skemmtilega safnskífu með Los Zaf-
iros, vinsælustu hljómsveit Kúbu
um miðjan sjöunda áratuginn. Tón-
listarstjóri og gítar- og hljómborðs-
leikari Los Zafiros var Manuel
Galbán sem kom einnig við sögu í
Buena Vista sveitinni og lék inn á
nokkrar af þeim skífum sem komið
hafa út í kjölfar Buena Vista-
disksins fræga, en hann er líka áber-
andi á nýrri skífu Ry Cooders,
Mambo Sinuendo.
Af smekkvísi sinni leyfir Cooder
Galbán og að ráða ferðinni að miklu
leyti á Mambo Sinuendo en þeir
Galbán semja flest laganna en önnur
eru eftir ýmsa. Cooder heldur og vel
utan um allt saman og skreytir af
snilld þó gítarleikur Galbán sé yf-
irleitt í aðalhlutverki. Galbán varð
frægur fyrir það á Kúbu á sjöunda
áratugnum að hljóma eins og Duane
Eddy og líkt og Buena Vista-
diskurinn hljómaði eins og upptökur
frá liðnum tíma er hljómurinn í gítar
Galbáns frábærlega gamaldags.
Sektaður um milljónir
Litlu munaði að Cooder fengi ekki
að ljúka við skífuna með Galbán því
eins og flestir eflaust þekkja þá er í
gildi viðskiptabann á Kúbu sem
Bandaríkjamenn hafa sett. Þannig
er bandarískum þegnum óheimilt að
eiga samskipti við Kúbverja á Kúbu
Að sögn Cooders urðu vinsældir
Buena Vista-skífanna til þess að
vekja athygli manna á því að hann
væri sífellt að fara til Kúbu og vinna
þar með þarlendum tónlist-
armönnum, en verst af öllu fannst
mönnum að hann skyldi græða á
öllu saman þegar Buena Vista Social
Club tók að seljast í bílförmum. Í
kjölfarið fóru menn að kvarta við
stjórnvöld og á endnum var Cooder
sektaður um hálfa þriðju milljón
1999.
Ekkert varð því úr frekari upp-
tökum í bili, en síðustu daga sína í
embætti var Bill Clinton duglegur
við að gefa mönnum upp sakir og
leyfa sitthvað sem áður var bannað.
Cooder, sem er stuðningsmaður
demókrata vestan hafs, var með á
teikniborðinu tvær plötur sem hann
langaði að gera, Mambo Sinuendo
sem áður er getið og einnig plötu
með Ibrahim Ferrer, Buenos
Hermanos. Hann sótti því um leyfi
til forsetans að fá að ljúka við þær
tvær og Clinton brást vel við; skrif-
aði minnisblað til viðeigandi yf-
irvalds um að Cooder ætti að fá leyfi
til gera það á Kúbu sem hann vildi
og upp úr krafsinu hafði Cooder árs
starfsleyfi sem dugði til að ljúka við
skífurnar tvær.
Með bestu söngvurum heims
Ibrahim Ferrer er í miklu stuði á
Buenos Hermanos og röddin jafn-
ævintýralega tær og sterk og alltaf.
Mannskapurinn á plötunni er sá
sami og á Mambo Sinuendo, Cooder
og Galbán með þá Orlando „Cach-
aíto“ López, Miguel Angá Díaz, Jim
Keltner og Joachim Cooder sér til
halds og trausts, en allt er svo
kryddað með skemmtilegum gestum
eins og Blind Boys of Alabama,
Chucho Valdes og Jon Hassell. Fyr-
ir vikið er platan býnsa ævintýraleg
á köflum, ekkert verið að hanga í
gamla tímanum, en þó er kúbverska
sveiflan grunnþátturinn í öllu sem
fram fer. Ibrahim Ferrer getur
sungið hvað sem er og sannar það
rækilega á plötunni að hann er með
bestu söngvurum heims nú um
stundir, kominn hátt á áttræðis-
aldur.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Ibrahim Ferrer
SNYRTIVÖRUFYRIRTÆKIÐ No
Name stendur fyrir förðunar-
keppni í samvinnu við Freshlook-
linsur í Vetrargarðinum í Smára-
lind sunnudaginn 18. maí næstkom-
andi. Tilgangur keppninnar er að
gefa öllum, sem lært hafa förðun
tækifæri til að koma sér á framfæri.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
keppni af þessu tagi er haldin á
landinu. Mikill fjöldi fólks á öllum
aldri hefur lært förðun í hinum
ýmsu skólum og er þetta tækifæri
fyrir það til að sýna hvað í því býr,“
útskýrir Lilja Nótt Þórarinsdóttir,
framkvæmdastjóri keppninnar.
Keppt er í fjórum flokkum:
„Smokey“, tískan í dag , ljós-
myndaförðun og brúðarförðun.
Dregnir verða út tíu manns til að
keppa í hverjum flokki í beinni út-
sendingu í þættinum Fólk með
Sirrý á SkjáEinum hinn 30. apríl en
umsóknarfrestur rennur út daginn
áður.
Lilja Nótt útskýrir að aðeins
megi sækja um í einum flokki þar
sem keppt verði í þeim öllum sam-
tímis og bætir við að vegleg verð-
laun verði í boði.
„Einnig verður unglingaflokkur
fyrir krakka á aldrinum 14-16 ára
því gífurlegur áhugi á allskyns
förðun er í grunnskólum landsins,“
segir hún og bætir við að þemað sé
náttúran og verðlaunin séu nám í
Förðunarskóla No Name.
Förðunarskólinn var settur á
laggirnar af stofnanda No Name,
Kristínu Stefánsdóttur. Skólinn er
að útskrifa yfir 100 nemendur á ári,
segir Lilja Nótt, sem dæmi um mik-
inn áhuga á förðun hérlendis.
Hún segir að mestmegnis konur
sæki skólann en sífellt fleiri karl-
menn stundi förðunarnám. Hún
nefnir lærðan bílasprautara, sem
dæmi, en hann er ennfremur nýút-
skrifaður förðunarfræðingur. Hann
ætlar að mála bíl á nýstárlegan hátt
í keppninni í Smáralindinni.
Keppendur koma með eigin fyr-
irsætur á staðinn og stendur þeim
til boða að skipta ekki bara um svip
á þeim með förðun heldur einnig
augnlit. „Við verðum með allskonar
litalinsur og partýlinsur frá
Freshlook á staðnum. Keppend-
urnir fá að nýta sér þetta í keppn-
inni en heildarútlitið gildir,“ segir
Lilja Nótt en áætlað er að keppnin
verði árlegur viðburður.
No Name stendur fyrir förðunarkeppni
Öllum gefið tækifæri
Morgunblaðið/Jim Smart
Kristín Stefánsdóttir, stofnandi No
Name, og Lilja Nótt Þórarinsdóttir,
framkvæmdastjóri keppninnar.
Keppnin verður haldin í Vetrargarð-
inum í Smáralind 18. maí. Umsókn-
arfrestur rennur út 29. apríl.
TENGLAR
.....................................................
www.noname.is