Morgunblaðið - 13.04.2003, Qupperneq 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2003 29
HÁVAR Sigurjónsson
leikskáld er nýkominn
heim úr för til Ohio í
Bandaríkjunum þar
sem nýtt verk eftir
hann var frumsýnt á
alþjóðlegri leiklist-
arhátíð Ohio North-
ern-háskólans. Þetta
var í fyrsta skipti sem
hátíðin er haldin og
var af því tilefni leitað
til fjögurra evrópskra
leikskálda og þau beð-
in að semja verk sér-
staklega fyrir hátíðina.
Leikskáldin komu frá
Portúgal, Eistlandi og
Írlandi, auk Hávars. „Okkur voru
sett nokkur skilyrði, eins og um
lengd verksins, og það var jafn-
framt ákveðið að búin yrði til ein
leiksýning og verkin fjögur sýnd
saman. Þekktur leikstjóri frá Skot-
landi, Rita Henderson, var fengin til
að setja verkin upp, tveir leik-
myndahönnuðir voru fengnir frá
Eistlandi til að sjá um umgjörðina
en leikararnir og tæknimenn voru
úr röðum heimamanna. Við urðum
líka að vera innan ákveðins ramma
hvað varðar sviðsetninguna sjálfa,
útfærslu og leikmynd þar sem öll
verkin þurftu að passa inn í eina
umgjörð. Leikararnir máttu ekki
vera fleiri en fjórir en í mínu tilfelli
voru þeir þrír. Þá vildu þeir einnig
að verkið endurspeglaði á einhvern
hátt menningarlegan bakgrunn leik-
skáldanna en tóku nú samt fram að
það væri sjálfgefið með uppruna
höfundanna í öðrum löndum.“
Markmið að auka
víðsýni nemenda
Forsvarsmenn hátíðarinnar segja
í efnisskrá hennar að tilefni að til-
urð hátíðarinnar mætti rekja til at-
burðanna 11. september 2001. Þá
hafi háskólasamfélagið þar ytra
spurt hvað gera mætti til að auka
viðsýni nemenda og opna gáttir til
annarra menningarheima ólíkra
þeirra eigin. Alþjóðleg leiklist-
arhátíð þar sem könnuð yrði sýn
annarra þjóða á lífið var svar við
þeirri spurningu. „Háskólinn þarna
er lítill og stúdentarnir fremur eins-
leitur hópur, – nánast engir af öðr-
um uppruna en hvítum. Prófess-
orinn, Niels Riess, sem átti
hugmyndina að hátíðinni og skipu-
lagði hana talaði sérstaklega um
það hversu mikilvægt það væri fyrir
háskólann að leggja
sitt af mörkum til að
auka víðsýni nemenda
sinna, víkka sjóndeild-
arhring þeirra og auka
menningarlega hugs-
un. En það sem var svo
skemmtilegt var að
auðvitað virkaði þetta í
báðar áttir; opnaði
glugga hjá þeim en líka
á milli okkar og þeirra
og svo milli okkar höf-
undanna innbyrðis, því
við kynntumst öll og
urðum ljómandi góðir
vinir. Tengslin urðu því
til á alla vegu, og þann-
ig séð var þetta mjög vel heppnað.“
Verk Hávars heitir Fe-male.com,
sem hann kallar Karl-kona-sonur á
íslensku. Það er um öldruð hjón og
miðaldra son þeirra. „Verkið snýst
mikið um sjálfsmyndina; þetta fólk
er að velta upp eigin sjálfsmynd og
annarra og spegla sig hvað í öðru og
umhverfinu. Vinnan gekk svo
þannig fyrir sig að við leikskáldin
vorum búin að vera í sambandi við
dramatúrg í skólanum frá því í
haust og frameftir vetri og um ára-
mótin voru handritin tilbúin og þá
fékk leikstjórinn þau í hendurnar.
Æfingar hófust seinni partinn í
febrúar en við vissum ekkert hvern-
ig þetta yrði unnið. Við mættum svo
bara tveimur dögum fyrir frumsýn-
ingu og það var svolítið sláandi að
sjá sýninguna. Þetta var allt öðru
vísi en ég hafði ímyndað mér, –
hafði ekki verið alveg viss um
hvernig verkið myndi virka. Það
kom mér þó þægilega á óvart að sjá
þetta og sýningin var ljómandi
skemmtileg í heild sína þótt verkin
ættu í raun ekkert sameiginlegt.“
Hávar segir að deildin við Ohio
Northern-háskólann útskrifi fólk
með BA-gráðu og í leiklist og öðrum
tengdum greinum og aðstaðan var
til hreinnar fyrirmyndar. „Þarna er
háskólaleikhús, Freed Center, og
þar eru tveir salir, stór 400 manna
salur með öllu tilheyrandi og annar
minni, – stúdíósvið. Leikhúsið þjón-
ar þessu umhverfi, sem er þessi 7–
10.000 manna háskólabær, Ada,
mitt inni í Ohio-ríki. Maður er eig-
inlega úti í sveit þarna.“
Englabörn gera víðreist
Þegar hefur verið ákveðið að sýn-
ingin verði á dagskrá Edinborgar-
hátíðarinnar í ágúst og Hávar hefur
átt því láni að fagna að leikhúsfólk
víða um heim hefur sýnt verkum
hans mikinn áhuga. Leikritið
Englabörn, sem var frumsýnt í
Hafnarfjarðarleikhúsinu fyrir
tveimur árum hefur farið víða og
var flutt á leiklistarhátíðum í St.
Pétursborg, í London, í Kanada í
fyrrahaust og í janúar sl. á hátíð
Schaubühne-leikhússins í Berlín.
„Englabörnin virðast hafa fundið
hljómgrunn víða og það er orðið
klárt núna að það verður sett upp
hjá Deutsches Theater í Göttingen
næsta vetur. Það er svo ýmislegt
fleira í farvatninu sem er ekki stað-
fest. Sýningin í Göttingen verður
fyrsta „alvöru“ uppfærslan á verk-
inu erlendis því hinar fjórar voru
það sem kallað er sviðsettur leik-
lestur.“
Næsta haust verður nýtt verk eft-
ir Hávar, Pabbastrákur, frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu, verk sem leikhúsið
pantaði hjá honum og Hilmar Jóns-
son leikstýrir. „Æfingar hófust í
byrjun febrúar en í mars var gert
hlé fram yfir páska. Þá verður verk-
ið fullæft og frumsýnt á Litla svið-
inu í byrjun september,“ segir
Hávar.
Á leikrit á Edinborgarhátíð, í
Göttingen og Þjóðleikhúsinu
Hávar Sigurjónsson
begga@mbl.is
Morkinskinna, Hverfisgötu 54, kl.
13 Yuri Bobrov, prófessor í íkona-
fræðum og miðaldalist við Listahá-
skólann í St. Pétursborg, metur
íkona, aldur þeirra og uppruna.
Í DAG
Norræna húsið kl. 12 Hádegistón-
leikar norska kórsins Ra Sanglag.
Kórinn er skipaður 46 blönduðum
söngröddum frá Ågårdstrand í Borro
við Óslóarfjörð. Kórinn var stofnaður
1926 og hefur ferðast víða innanlands
sem utan. Stjórnandi kórsins er Inga
Kjæraas. Hún hefur starfað hjá kórn-
um síðan 1999. Inga Kjæraas útskrif-
aðist í söngkennslu og kórstjórn frá
Tónlistarháskólanum í Østlandets
1989. Þjóðlagatónlistin hefur skipað
ákveðinn sess í starfi hennar sem
stjórnanda og hefur hún staðið fyrir
mörgum þjóðlagatónleikum.
Ókeypis aðgangur.
Á MORGUN
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi samþykkt frá stjórn Fé-
lags íslenskra bókaútgefenda:
„Stjórn Félags íslenskra bókaút-
gefenda fagnar þeim hugmyndum
sem fram hafa komið í aðdraganda al-
þingiskosninga um að lækka eða fella
niður virðisaukaskatt af bókum. Ljóst
er að slík aðgerð yrði mikil lyftistöng
fyrir íslenskan bókamarkað, það stað-
festir reynsla annarra landa þar sem
skattar af bókum hafa verið felldir
niður eða lækkaðir svo um munar.
Með lægra bókaverði er stuðlað að
auknum bóklestri í landinu og fjöl-
breyttari bókaútgáfu. Það felur líka í
sér umtalsverða kjarabót fyrir fram-
halds- og háskólanema sem standa
sjálfir undir öllum sínum bókakosti.
Nútímalegt atvinnulíf gerir sífellt
auknar kröfur um símenntun og end-
urmenntun starfsfólks og í þeim efn-
um er greiður aðgangur að bókum
lykilatriði.
Stjórn Félags íslenskra bókaútgef-
enda hvetur íslenska stjórnmála-
flokka til að sameina krafta sína í því
að fella niður virðisaukaskatt af bók-
um og skipa Íslandi þannig í sveit með
þeim þjóðum sem þegar hafa stigið
það metnaðarfulla skref, s.s. Norð-
mönnum, Írum og Bretum. Slík að-
gerð yrði glæsilegt framlag til stuðn-
ings bókaútgáfu á okkar litla mál-
svæði og landsmönnum öllum hvatn-
ing til aukins lestrar.“
Ályktun frá bókaútgefendum