Morgunblaðið - 13.09.2003, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 2003 11
Ingvar
Helgason
F
í
t
o
n
F
I
0
0
7
7
1
9
Ingvar Helgason hf. · Sævarhöfða 2 · Sími 525 8000 · ih@ih.is · www.ih.is
frá 3.289.000 kr.
TERRANO
frá 4.590.000 kr.
PATROL
frá 2.490.000 kr.
DOUBLE CAB
frá 2.760.000 kr.
X-TRAIL
frá 3.860.000 kr.
MAXIMA
frá 2.260.000 kr.
PRIMERA
frá 1.650.000 kr.
ALMERA
frá 1.390.000 kr.
MICRA
Hann er japanskur og var valinn áreiðanlegasti bíll í sínum flokki af bresku neytendasamtökunum. Könnunin tók til bilanatíðni og
gangsetningar og það var okkar bíll, Nissan Almera sem náði hæstu einkunn, einfaldlega 100% áreiðanlegur bíll. Nissan Almera er
á einstöku verði miðað við búnað, þægindi og aksturseiginleika.
Komdu í reynsluakstur, 100% bíllinn stendur þér til boða fyrir aðeins 29.929 kr. á mánuði.
ÞETTA ER BÍLLINN
NISSAN ALMERA frá
29.929
á rekstrarleigu í 3 ár.
kr./mán.
Innifalið: Leiga til 36 mánaða, akstur
allt að 20.000 km á ári, smur- og
þjónustueftirlit samkvæmt þjónustubók.
Consumers’ Association
100%
Var valinn áreiðanlegastibíll í sínum flokki af breskuneytendasamtökunum
áreiðanlegur
MOKVEIÐI hefur verið í Laxá í
Dölum að undanförnu og tölurnar
þar hækka afar hratt. Skv. saman-
tekt kokksins, Gylfa Ingasonar,
veiddust alls 280 laxar frá hádegi 4.
september til hádegis 11. septem-
ber. Sum sé, 280 laxar á sex dögum,
en veitt er á sex stangir í ánni.
Þetta gerir meðaldagveiði á stöng
milli sjö og átta, en það gerist varla
betra í laxveiði.
Á umræddum veiðidögum hækk-
aði talan í ánni úr 862 löxum í
1.142, en allt síðasta sumar veidd-
ust í ánni 880 laxar.
„Þetta er algert mok, það er að
veiðast bæði á maðk og flugu, bæði
stór fiskur og smár og bæði ný-
genginn og leginn. Þaulvanir menn
segja að þeir hafi ekki séð annað
eins af laxi í ánni í mörg ár. Það
kom einn 21 punds fyrir nokkrum
dögum og hann er stærstur í sum-
ar,“ sagði Gylfi. Enn eru allmargir
veiðidagar eftir, það stefnir því í
mun hærri tölu í ánni en í fyrra.
Septemberskotin í Stóru-Laxá í
Hreppum eru byrjuð, en hópur sem
var í einn dag á svæðum 1–2 um síð-
ustu helgi fékk þrettán laxa og hóp-
ur sem tók við og var í tvo daga
fékk fimmtán stykki. Voru þar með
komnir 89 laxar á land af svæðinu
og talsvert af laxi á ferðinni. Svæði
3 var með um sjötíu laxa um mán-
aðamótin og ný tala af efsta svæð-
inu hljóðar upp á 104 laxa. Veitt er
fram eftir september og að sögn
Bergs Steingrímssonar hjá SVFR
er þetta verulega betri veiði en á
sama tíma í fyrra. Á sama tíma
herma fregnir að menn séu að
lenda í skemmtilegum skotum á
Iðu.
Blanda komin í fjóra stafi
Blanda er eina áin norðan heiða
sem hefur gefið vel og þótt vertíðin
hafi verið brokkgeng á köflum er
áin nú búin að rjúfa fjögurra stafa
múrinn skv. fréttum frá leigutaka
hennar, fyrirtækinu Lax-á. Í lok
vikunnar voru komnir rétt rúmlega
1.100 laxar á land, en alls veiddust í
ánni 833 laxar í fyrra. Efri svæðin
hafa verið gjöful síðustu daga.
Mokveiði í Laxá í
Dölum undanfarið
Ljósmynd/Jón G. Stefánsson
Hannes V. Ólafsson, Stefán Hallur Jónsson og Friðleifur Stefánsson ánægð-
ir austur á Iðu, enda fengu þeir væna fiska í veiðiferðinni.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Þrír ættliðir í Stóru Laxá, Sigmundur Ófeigsson, Eyþór Sigmundsson yngri
og Eyþór Sigmundsson eldri við Hólmahyl. Eyþór eldri með 7 punda lax.
ÞEIM sem greiða tekjuskatt til rík-
isins hefur farið fjölgandi á síðustu
árum og eru þeir nú rúmlega 60% af
framteljendum. Rúmlega þriðjungur
framteljenda greiðir hins vegar eng-
an tekjuskatt og barna- og vaxta-
bætur greiða allan tekjuskatt fyrir
tæplega 6% framteljenda. Því greiða
yfir 42% framteljenda engan tekju-
skatt.
Þetta kemur fram í nýju vefriti
fjármálaráðuneytisins. Nær allir
framteljendur greiða útsvar til sveit-
arfélaga, annaðhvort sjálfir eða rík-
issjóður greiðir útsvarið ef tekjur
viðkomandi ná ekki skattleysismörk-
um.
Mun færri framteljendur greiða
hins vegar tekjuskatt til ríkissjóðs
eða rétt rúmlega 60%. Hlutfallið var
nálægt 50% á samdráttarárunum
1990–1995 en hækkaði síðan sam-
hliða auknum kaupmætti á hagvaxt-
arskeiðinu á árunum 1995–2001.
Sérstakan tekjuskatt, svonefndan
hátekjuskatt, hafa 6–7% framtelj-
enda þurft að greiða undanfarin ár
eða um 9% þeirra sem borga hinn al-
menna tekjuskatt. Almennur eignar-
skattur hefur verið lagður á um eða
innan við 30% allra framteljenda en
sérstakur eignarskattur náði til tæp-
lega 15% þeirra þegar mest var.
Hann hefur nú verið lagður en var
lagður á allt að helming þeirra sem
yfirhöfuð greiddu eignarskatt.
Fjármagnstekjuskattur var lagð-
ur á rúmlega þriðjung framteljenda
þegar mest var en hlutfall þeirra hef-
ur farið lækkandi undanfarin ár.
40% fram-
teljenda
borga ekki
tekjuskatt