Morgunblaðið - 13.09.2003, Qupperneq 53
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 2003 53
„VIÐ höfum verið mikið sam-
an undanfarið og það er góð
stemmning í hópnum,“ sagði
Írís Andrésdóttir, fyrirliði
Vals og varnarmaður lands-
liðsins. „Við viljum auðvitað
alltaf sigra og þetta er heima-
leikur svo að við sjálfar og
áhorfendur hljóta að heimta
sigur. Við vitum ekki mikið
um pólska liðið en mætum í
þennan leik eins og alla aðra.“
Læri af reynsluboltunum
„Ég er orðin spennt,“ sagði
Dóra María Lárusdóttir sem
var í hópnum gegn Ungverj-
um en fékk ekki að spreyta
sig. „Það er mikið um að vera
í kringum leikinn og við höf-
um hist mikið, til dæmis fyrir
auglýsinguna sem maður ger-
ir ekki á hverjum degi. Það
hefur verið ein æfing en mað-
ur reynir að læra sem mest af
reynsluboltunum í liðinu og
það er góður andi í liðinu. Það
skiptir ekki máli þótt við séum
taldar með betra lið, við látum
bara vaða og tökum á þeim.“
Heimta
sigur
Enn sem komið er höfum við baraspilað einn heimaleik og tvo á er-
lendri grund. Jafnteflisleikurinn við
Rússa gat alveg eins endað með sigri
okkar og mér fannst við koma vel frá
þeim leik enda gott að ná jafntefli á
móti þeim á útivelli. Á móti Frökkum
vorum við meira í vörninni enda á móti
mjög sterku liði, að mínu mati því
sterkasta í riðlinum. Mér finnst
standa upp úr í þessum leikjum að það
eru miklar hrókeringar í gangi, marg-
ir reyndir leikmenn gátu ekki verið
með og mér fannst þá bersýnilegt
hvað við eigum orðið mikið af góðum
stelpum. Til dæmis voru Guðlaug
Jónsdóttir, Katrín Jónsdóttir, Mar-
grét Ólafsdóttir, Elín Jóna Þorsteins-
dóttir, Rósa Júlía Steinþórsdóttir og
Ásdís Þorgilsdóttir ekki með. Ég spái
því að á næsta ári, ef allar þessar
reyndu eru til í slaginn, að við höfum
fleiri hæfa leikmenn í hverja stöðu,
sem skiptir miklu máli. Það er samt
endurnýjun en mér finnst leikmenn,
sem voru kjarninn í keppninni á und-
an, séu duglegir við að efla nýju leik-
mennina. Það skiptir gríðarlegu máli.“
Óhætt er að segja að kvennaknatt-
spyrnan sé komin á kortið, ekki síst
eftir að landsliðskonurnar sneru vörn
í sókn með skemmtilegum auglýsing-
um og fleiri uppákomum. „Áhuginn á
kvennaknattspyrnu hefur aukist í
samræmi við gott gengi og það á ef-
laust líka við um landsliðið. Í fyrstu
landsleikjunum voru örfáir en svo
gerðu stelpurnar skurk með auglýs-
ingum og fleira. Þá kom fólkið og líka
betri árangur. Það gilda því markaðs-
lögmál í þessu eins og öðru. Það er
mikið spjallað og spáð og mér finnst
almenningur vita mun meira um
stelpurnar og sérstaklega til dæmis
Ásthildi Helgadóttur, því hún er goð-
sögn hjá yngri kynslóðinni. Áður fyrr
voru fyrirmyndirnar Ásgeir Sigur-
vinsson og félagar en nú heyrir maður
meira talað um Ásthildi, Olgu Fær-
seth og fleiri,“ sagði Helena.
Framundan eru tveir leikir við Pól-
verja og aðeins sigur á dagskrá. „Ég
sá bara leik þeirra við Rússa á mynd-
bandi, sem Pólverjar töpuðu 6:0, en
það er varla að marka þann leik því
pólska liðið lá í vörn og reyndi varla að
sækja svo það er erfitt að átta sig á
styrkleika þeirra. Ég sá að þær eru
líkari okkur að líkamsbyggingu, ekki
minni og nettari eins og franska liðið.
Við teljum okkur vita örlítið og ég er
þessa dagana að velta fyrir mér
hvernig ég vilji spila en ég geri ráð
fyrir að við færum okkur framar á
völlinn og pressum á þær, sagði lands-
liðsþjálfarinn. Oftar en ekki hefur ís-
lenskt landslið frekar haft hugann við
vörnina en Helena segir liðið vel hæft
til að sækja. „Það hentar okkur alveg
eins vel að sækja. Landsliðið hefur
ekki verið þekkt fyrir það og ég býst
við stilla liðinu upp svipað og áður – en
jafnvel með aðeins öðruvísi áherslum.
Við erum með sókndjarfa leikmenn í
okkar röðum og það kemur í ljós.
Stemmningin í liðinu er fín. Ég var
helst hrædd við að við myndum van-
meta Pólverja og það gengur ekki.
Mér fannst eftir leikinn við Frakka að
stelpurnar væru enn ákveðnari í að
standa sig og ætluðu sér að vinna Pól-
verja. Það er engin hræðsla við neitt
lið og á heimavelli ætlum við að berj-
ast fyrir stigunum. Ef úrslit verða góð
í næstu tveimur leikjum getum við
sest niður og spáð í framhaldið. Mögu-
leikarnir eru fyrir hendi og við
stefnum í umspil um að komast í úr-
slit. Stelpurnar kynntust því síðast að
ná langt og þær vilja enn lengra. Mér
fannst oft meira hugsað áður fyrr um
að sleppa frá leikjunum með sem
minnstu tapi og ég held að það hafi
breyst. Undirbúningur í leikjum er-
lendis er að sumu leyti einfaldari, hér
heima er maður í sinni vinnu en úti er
meiri tími og það er hægt að einbeita
sér algerlega að verkefninu í nokkra
daga og ekkert sem truflar. Það er
samt skemmtilegra að spila á heima-
velli, að ég tali nú ekki um ef vel er
mætt á völlinn.“
Morgunblaðið/Þorkell
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir því pólska í Laugardalnum klukkan 16.00 í dag.
Með sigri vaxa vonir um að komast í úrslitakeppni Evrópumótsins svo að þörf er á góðum stuðn-
ingi áhorfenda. Hér eru stúlkurnar á æfingu í Fífunni í Kópavoginum á fimmtudaginn.
Helena Ólafsdóttir landsliðsþjálfari í knattspyrnu
Ætlum að sækja
Morgunblaðið/Þorkell
Þrír nýliðar eru í íslenska liðinu í knattspyrnu kvenna, f.v. Guðbjörg Gunnarsdóttir, Dóra María
Lárusdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir ásamt Helenu Ólafsdóttur landsliðsþjálfara.
Helena Ólafsdóttir, landsliðsþjálfari kvenna, mun stjórna sínum
fjórða landsleik í dag. „Maður er að kynnast nýrri hlið á fótbolt-
anum og það er mjög gaman. Þetta er svipað en samt ólíkt en
að þjálfa deildarlið. Auðvitað eru þetta stærri leikir auk þess
að maður fær að velja lið úr stórum hópi. Það var mikið nýtt
fyrir mér í leiknum við Ungverja og maður notaði þann leik að
mestu til að átta sig á hlutunum en svo finnur maður að það er
mjög góður andi og mikil samheldni í hópnum,“ sagði Helena.
Hún getur vel við árangurinn unað, tapaði að vísu fyrir Frakk-
landi en hafði sigur á Ungverjum og gerði jafntefli við Rússa.
ELÍSABET Gunnarsdóttir hefur
verið ráðin þjálfari bikarmeistara
Vals í knattspyrnu kvenna og tekur
hún við starfi Helenar Ólafsdóttur
landsliðsþjálfara, sem stýrt hefur
Hlíðarendaliðinu tvö undanfarin ár.
Elísabet er öllum hnútum kunn-
ug hjá Val en hún hefur þjálfað
yngri flokka félagsins og 2. flokkur
Vals varð undir hennar stjórn Ís-
lands- og bikarmeistari fyrir tveim-
ur árum. Í sumar hefur Elísabet
þjálfað 2. flokk Breiðabliks en á síð-
asta ári þjálfaði hún meistaraflokk
ÍBV en var sagt upp störfum á
miðju sumri.
Elísabet
tekur
við Val
Elísabet Gunnarsdóttir
ÓLAFUR Þór Gunnarsson verð-
ur nær örugglega ekki í marki
Valsmanna þegar þeir taka á
móti Frömurum í fallslag
Reykjavíkurliðanna í úrvals-
deildinni í knattspyrnu á morg-
un. Ólafur Þór er meiddur í
nára og þurfti að fara af velli í
síðasta leik Valsmanna, gegn
KA. Kristinn Geir Guðmunds-
son leysti hann þá af og stend-
ur væntanlega vaktina í Vals-
markinu á morgun.
Þá er ljóst að Kristinn Lár-
usson verður ekki með Val en
hann meiddist í hné í KA-
leiknum og verður frá æfingum
næstu sex vikurnar. Aftur á
móti bendir allt til þess að fyr-
irliðinn, Sigurbjörn Hreið-
arsson, geti leikið með Vals-
mönnum á ný en hann fór af
velli snemma leiks gegn ÍA í 15.
umferðinni, meiddur á kálfa.
Ólafur Þór ekki í marki Vals
Íslenska liðið hefur þegar leikið þrjáleiki í undankeppninni. Fyrst vann
það góðan 4:1-sigur á Ungverjum í
Laugardalnum, næst
var 1:1-jafntefli við
Rússa á útivelli en
síðan 2:0-tap fyrir
Frökkum í París.
Liðið sem sigrar í riðlinum fer sjálf-
krafa í úrslit en liðið í öðru sæti spilar
við lið í öðrum riðli um laust sæti.
Reyndar á liðið í þriðja sæti riðilsins
einnig möguleika því það lið sem nær
bestum árangri annarra liða í þriðja
sæti riðlanna kemst einnig í umspil.
Íslenska liðið er í þriðja sæti en með
sigri á Pólverjum í dag og einnig í síð-
ari leiknum í Póllandi tveimur vikum
síðar aukast til muna líkurnar á að
komast í umspil.
Fyrirfram má búast við að Frakk-
ar taki efsta sætið og baráttan stend-
ur því helst á milli Rússa og Íslend-
inga en það er samt aldrei hægt að slá
neinu föstu í knattspyrnunni. Því má
segja að Ísland gæti vanmetið mót-
herja sína – frekar að það hafi verið á
hinn veginn í gegnum tíðina. Það
reynir því veruleg á hvort margir erf-
iðir landsleikir með mörgum ljúfum
sigrum hafa skerpt einbeitinguna.
En íslensku leikmennirnir spá líklega
minnst allra í slíka útreikninga. Þeir
fara inn á völlinn til að skila sínu.
Allir leggj-
ast á eitt
ENN og aftur berst kvennalandsliðið í knattspyrnu fyrir að komast í
úrslit á stórmóti. Í fyrra munaði mjóu að því tækist á komast í úr-
slitakeppni HM og í dag mætir það Pólverjum á Laugardalsvelli í
fyrri leik liðanna í undankeppni Evrópumótsins. Með sigri í honum
er möguleiki að ná í langþráða úrslitakeppni en þá þurfa líka allir að
skila sínu, áhorfendur jafnt sem leikmenn, sem mega ekki falla í þá
gryfju að vanmeta mótherja sína, sem taldir eru lakari.
Stefán
Stefánsson
skrifar