Morgunblaðið - 13.09.2003, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 13.09.2003, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 2003 59 www.laugarasbio.is Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.15. Sýnd kl. 2 og 4. Með ísl. tali Tilboð 400 kr. Fullkomið rán. Svik. Uppgjör. KVIKMYNDIR.IS Skemmtilegast a spennumynd ársins er komin.. J I M C A R R E Y Ef þú gætir verið Guð í eina viku, hvað myndir þú gera? Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 12 áraSýnd kl. 6, 8 og 10.15. B.i. 10 ára Sýnd kl. 2, 4 og 6. Með ísl. tali.  ROGER EBERT  L.A. TIMES  BBCI Með íslensku tali MEÐ ÍSLEN SKU TALI Mögnuð spennumynd í anda The Mummy og X-Men 2 með hinum frábæra Sean Connery sem fer fyrir hópi klassískra hetja sem reyna að bjarga heiminum frá örlögum brjálæðings! Geggjaðar tæknibrellur og læti. Missið ekki af þessari! FRUMSÝNINGNýr og betri Hverfisgötu  551 9000 www.regnboginn.is Sýnd kl. 4, 6 og 10. Fjölskyldumynd ársins! Sýnd kl. 4, 6 og 8. Ísl. tal. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára. Frá leikstjóra Trainspotting kemur hið magn- aða meistaraverk 28 Days Later. Missið ekki af þessum frábæra framtíðartrylli. SV MBL  HK DV  Kvikmyndir.com Einn sá allra besti hryllingur sem sést hefur í bíó síðustu misserin." Þ.Þ. FBL. Ein besta mynd ársins Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14. Sýnd kl. 3.30, 6, 8.30 og 11. B.i. 12 ára. Mögnuð spennumynd í anda The Mummy og X-Men 2 með hinum frábæra Sean Connery sem fer fyrir hópi klassískra hetja sem reyna að bjarga heiminum frá örlögum brjálæðings! Geggjaðar tæknibrellur og læti. Missið ekki af þessari! FRUMSÝNING ZOMBIE- SKONROKK FM 90.9 KEPPNIN um Dragdrottningu Ís- lands fer fram á NASA í kvöld en þetta er í sjöunda skipti sem keppnin er haldin. Í ár verður Holly- wood-bragur á keppninni, því þema kvöldsins er Óskarsverðlaunaaf- hendingin. Páll Óskar verður í hlut- verki aðalkynnis, sem Frú Öskjuhlíð, en hinar og þessar stjörnur stíga á svið auk sjálfra keppendanna. Keppendur eru fjórir en þeir voru valdir úr tíu manna hópi, segir Georg Erl- ingsson, einn skipu- leggjenda. „Við ákváðum að hafa fáa keppendur en sterka,“ segir hann, en kepp- endurnir eru Candy Cane, Amidala, Starina og Isobel. „Það verða þakkarræður og grátur og allt það sem því fylgir,“ segir hann en tónlistin verður einnig í fyrirrúmi. Keppnin sjálf hefst klukkan 23 en uppá- komur klukkustundu fyrr og hvetur Georg fólk til að mæta tím- anlega. Páll Óskar leikur síðan fyrir dansi það sem eftir lif- ir nætur. Dragdrottning Íslands valin í kvöld Hollywood og Óskarinn Starina er á meðal keppenda í kvöld. Dragdrottning Íslands á NASA í kvöld. Húsið opn- að kl. 21. Aðgangseyrir 2.000 krónur. Forsala á Café Cozy til kl. 18. FRUMSÝNINGARNAR á Erling eru að bresta á (Erling er frumsýnt í Reykjavík og á Akureyri) og síðustu æfingunni fyrir sunnan er lokið. Ég sest í þægilegan sófa í hryssingslegu bakherbergi Loftkastalans. Mér við hlið er Jón Gnarr en á móti situr Benedikt Erlingsson, leikstjóri. Fjær eru þau Stefán Jónsson, Gísli Pétur Hinriksson og Hildigunnur Þráinsdóttir. Það er létt yfir mannskapnum. Og blaðamanni dettur ekkert sniðugra í hug en að spyrja hvort þau hafi nú öll séð myndina. Og auðvitað hafa þau gert það. Norska myndin Elling, með þeim Sven Nordin og Per Christian Ellefsen í aðalhlut- verkum, er frábær kvikmynd. En leikritið sem hér um ræðir er ekki byggt á þeirri ágætu bíó- mynd. Það er byggt á leikgerð þeirrar skáld- sögu sem myndin er byggð á. „Þetta er annað leikritið sem ég tek þátt í,“ upplýsir Jón Gnarr. „Það var gaman í því fyrsta. En þetta hér slær öll met. Það er hrein unun að vinna með honum Benedikt.“ Upphefjast nú miklar umræður um hvað leikritið sé nú eiginlega um. Benedikt staðhæf- ir að á ferðinni séu sígildar vísanir, hvað þá fé- laga varðar, þetta eru Óðinn og Þór á okkar tímum. Þessu er ekki tekið gagnrýnislaust inn- an hópsins. Allir sammælast þó um að hér sé á ferðinni falleg saga um tvo vini; bæði spreng- hlægileg og ægisorgleg. „Kannski mætti segja að þetta sé ástarsaga tveggja fullvaxinna karlmanna,“ segir Bene- dikt. „Um þá má segja að þeir hafa verið and- lega handgeltir af mæðrum sínum en í verkinu sjáum við þá endurheimta manndóm sinn í krafti kærleikans og með smáhjálp frá fé- lagsþjónustunni í Reykjavík. Verkið er því óð- ur til karlmennskunnar og kemur á góðum tíma sé haft í huga hversu nálæg plánetan Mars er nú um stundir!“ Aðspurðir hvort þetta sé erfitt verk segja þeir Stefán og Jón að vissulega sé þetta keyrsla, enda séu þeir nánast á sviðinu allan tímann. „En ekkert svo erfitt fyrir mig,“ skýtur Gísli þá inn í brosandi. „Ég er meira svona baksviðs. Annað en þegar ég var að leika Gretti og var að beljakast á sviðinu í tíma og ótíma.“ Benedikt segir að lokum að leikgerðin af Ell- ing hafi farið nokkuð víða, um Norðurlöndin og eitthvað líka til meginlands Evrópu. Það er Hallgrímur Helgason sem sér um að þýða og staðfæra leikritið. Að sögn Benedikts hafa æf- ingar gengið svo gott sem snurðulaust fyrir sig. Hópurinn sé þéttur, stemningin í loftinu karlmannleg. Leikritið Erling frumsýnt á Akureyri og í Reykjavík Sprenghlægilegt/ grafalvarlegt Leikritið Erling verður frumsýnt í kvöld í Loftkast- alanum. Arnar Eggert Thoroddsen leit inn á loka- æfingu og tók púlsinn á stöðu mála. Morgunblaðið/Ásdís Það er ýmislegt lagt á þá Karl Bjarna (Jón Gnarr) og Erling (Stefán Jónsson). arnart@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.