Morgunblaðið - 06.12.2003, Side 33
STJÓRN Samtaka Sunnlenskra
sveitarfélaga, SASS hefur harðlega
átalið að ekki skuli staðið við gefin
loforð og tryggðir fjármunir á fjár-
lögum til viðbyggingar við Heilbrigð-
isstofnunina á Selfossi, en hún á m.a.
að hýsa starfsemi sem nú fer fram á
Ljósheimum á Selfossi. „Það vekur
undrun að ráðamenn skuli áfram
bjóða sjúklingum og starfsfólki þá
aðstöðu sem er á Ljósheimum, en þar
hefur starfsemin verið rekin á und-
anþágu Heilbrigðiseftirlits Suður-
lands undanfarin þrjú ár,“ segir í
ályktun sem samþykkt var á fundi
SASS í vikunni og afhent þingmönn-
um Suðurkjördæmis.
Hefur tekið eilífðartíma að
koma verkefninu af stað
Þorvarður Hjaltason, fram-
kvæmdastjóri samtakanna, sagði mál
ekki hafa gengið eftir í samræmi við
fullyrðingar og loforð ráðamanna.
Því hefði staðfastlega verið lýst yfir
að framkvæmdir við viðbygginguna
ættu að hefjast á þessu ári, en ljóst
væri að svo yrði ekki. Hann sagði að
um 130 til 40 milljónir væru eyrna-
merktar verkefninu á fjárlögum
næsta árs og að áætlanir gengu nú út
á að framkvæmdum lyki árið 2008.
„Menn eru alls ekki sáttir við það,“
sagði Þorvarður. „Það er vitanlega
skárra en ekkert að einhverjir fjár-
munir eru ætlaðir til verksins á fjár-
lögum, en það hefur tekið eilífðar-
tíma að koma þessu verkefni af stað
og í raun er þetta alveg ófært. Und-
irbúningur hefur staðið yfir í mörg
ár, en nú þegar að framkvæmdum
kemur gerast hlutirnir í þessum
hægagangi. Menn eru orðnir hund-
leiðir á þessu.“
Áætlanir gerðu ráð fyrir að bygg-
ingin yrði tilbúin á árinu 2005, en
gert var ráð fyrir að byggingin yrði
boðin út í mars fyrr á þessu ári og að
framkvæmdir hæfust nú síðastliðið
sumar.
Þorvarður sagði að nú kæmi í ljós
að fjárveiting til verksins á næsta ári
væri mjög lítil og ljóst að ekki yrði
mikið gert fyrir þá upphæð. Heild-
arkostnaður við bygginguna er áætl-
aður liðlega einn milljarður króna.
Talað um skóflustungur
fyrir kosningar
Byggingin sem um ræðir á að rísa
vestan við núverandi hús Heilbrigð-
isstofnunarinnar á Selfossi og er
tveggja hæða auk kjallara. Nýbygg-
ingin mun leysa af hólmi hjúkrunar-
deild sem nú er í Ljósheimum og
hefur undanfarin ár búið í óviðun-
andi aðstöðu. Gert er ráð fyrir að í
nýbyggingunni verði 26 hjúkrunar-
pláss, en þar verður einnig ný og
endurbætt aðstaða fyrir heilsu-
gæslustöðina og í kjallara er ætlunin
að koma fyrir aðstöðu fyrir endur-
hæfingu. Starfsfólk mun einnig fá
betri aðstöðu en það nú hefur.
Þorvarður nefndi að starfsemin á
Ljósheimum væri ekki bara rekin á
á undanþágu heilbrigðiseftirlits,
heldur einng brunaeftirlits og vinnu-
eftirlits. Ástandið væri gersamlega
óviðunandi, „og mjög sérkennilegt
að ríkið sem setur bæði lög og reglu-
gerðir um allt þetta eftirlit skuli láta
sér það sæma að fara ekki eftir eigin
reglum. Það er sagt að eftir höfð-
inum dansi limirnir. Vonandi á það
ekki við í þessum efnum.“
Þorvarður sagði að þingmönnum
kjördæmisins hefði verið gerð grein
fyrir stöðu mála og hann skildi þá
þannig að þeir teldu nauðsynlegt að
hraða málinu. „Ég trúi ekki öðru en
þeir reyni að þrýsta á að svo verði,“
sagði hann. „Við höfum beðið mjög
lengi og það hefur gengið á látlaus-
um yfirlýsingum að nú muni eitt-
hvað fara að gerast. Menn töldu
nánast fullvíst að farið yrði af stað af
krafti á þessu ári og fyrir kosningar
voru menn farnir að tala um skóflu-
stungur.“
Þorvarður sagði að skýring á því
að ekkert hefði gerist í málinu væri
einfaldlega sú að menn væru að
draga lappirnar varðandi fjárveit-
ingar. Hann sagði bráðnauðsynlegt
að hið fyrsta yrði gerður samningur
um framkvæmdir, þær hafnar og
verkinu yrði lokið á tveimur árum.
Ljúka þyrfti verkinu á tiltölulega
skömmum tíma, að sögn Þorvarðar.
Rökin fyrir því væru ástand þessara
mála í héraði og eins hlyti það að
þjóna hagsmunum ríkisins, því dýrt
væri að teygja framkvæmdatímann
svo lengi.
Stjórn SASS átelur tafir á framkvæmdum við sjúkrahúsið
Menn eru yfir sig
þreyttir á biðinni
Ljósheimar: Starfsemin hefur verið rekin á undanþágu heilbrigðiseftirlits
undanfarin ár. Einnig hafa brunaeftirlit og vinnueftirlit veitt undanþágur.
Heilbrigðisstofnunin á Selfossi: Miðað er við að uppbyggingunni verði lokið árið 2008 og á næsta ári eru 130–140
milljónir eyrnamerktar verkefninu. Heimamenn vilja að verkinu verði flýtt og því lokið á tveimur árum.
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 2003 33
LANDIÐ
Stykkishólmur | Framkvæmdir
eru hafnar við nýja götu í Stykk-
ishólmi. Gatan liggur á milli Lauf-
ásvegar og Borgarbrautar, á svæði
þar sem refagarðarnir voru hér áð-
ur fyrr. Við þessa götu er búið að
skipuleggja íbúðahús og verslunar-
og þjónustubyggingar. Reiknað er
með að þarna rísi fjögur einbýlis-
hús, tvö raðhús og tvö verslunar-
og þjónustuhús. Búið er að úthluta
tveimur lóðum og munu bygginga-
framkvæmdir hefjast þegar gatna-
gerð verður lokið. Með tilkomu göt-
unnar er verið að þétta byggðina,
því hún er ekki langt frá miðjum
bæ.
Verktakafyrirtækið Berglín í
Stykkishólmi sér um gatnagerðina
og skólplagnir og á verkinu að ljúka
22. desember nk. Ekki er enn búið
að gefa nýju götunni nafn.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Upphafið: Sveinn Björnsson byggingafulltrúi aðstoðar Baldur Heiðarsson
verktaka við að taka hæðarpunkta við nýju götuna í Stykkishólmi.
Framkvæmdir
við nýja götu
Sauðárkrókur | Þemavika var ný-
lega haldin hjá Árskóla á Sauð-
árkróki þar sem hefðbundið skóla-
starf var brotið upp. Þemað að
þessu sinni var: „Heilbrigð sál í
hraustum líkama.“ Unnu hópar þá
að margvíslegum viðfangsefnum og
er það mat starfsmanna skólans og
nemenda að mjög vel hafi til tekist
að þessu sinni.
Meðal annars fjallaði einn hóp-
urinn um geðheilsu og tók saman
kynningu á helstu geðsjúkdómum,
líkön voru gerð af íþróttamann-
virkjum í bænum og viðtöl tekin við
afreksfólk. Í þemavikunni var einn-
ig starfrækt útvarpsstöð.
Á morgni síðasta dags vikunnar
var farið í árlega friðargöngu Ár-
skóla þar sem 600 krakkar gengu
fylktu liði upp á Nafirnar og
kveiktu þar á jólakrossi. Síðdegis
var svo heilmikil dagskrá í íþrótta-
húsinu þar sem m.a. var fjallað um
Ólympíuleikana, sýndur grískur
dans, sungið, leikið og flutt tónlist.
Í báðum byggingum Árskóla var
opið hús og afrakstur þemavik-
unnar sýndur foreldrum og öðrum
bæjarbúum.
Ljósmynd/Sveinbjörn Ásgrímsson
Gerðu sér glaðan dag: Í lok þemavikunnar fjölmenntu nemendur Árskóla í
íþróttahúsið þar sem var dansað, sungið og leikið.
Hlakka til næsta sumars: Líkan af íþróttavellinum á Sauðárkróki eins og
hann verður tilbúinn fyrir næsta Landsmót UMFÍ.
Vel heppnuð
þemavika í ÁrskólaHveragerði | Einar Bollason, fyrrum körfuboltakappi,
var heiðursgestur á sigurleik Hamars gegn KFÍ fyrir
nokkru. Einar þáði boð nýstofnaðs stuðningsmann-
klúbbs Hamars um að fylgjast með leiknum og setjast
niður eftir leik með klúbbmeðlimum. Þar voru einnig
leikmenn Hamars mættir til að spjalla við Einar og
stuðningsmenn sína.
Einar hélt tölu um viðgang körfuboltans og lýsti yfir
ánægju með hversu vel hefði tekist til með stofnun
stuðningsmannafélagsins. Það hefði t.d. tekið KR hátt í
5 ár að ná þeim fjölda í sinn stuðningsmannaklúbb sem
þegar væru stofnfélagar hjá Hamri. Einnig lýsti Einar
ánægju sinni með að tiltölulega ný lið kæmu upp í úr-
valsdeild eins og Hamar og Þór Þorlákshöfn. Þessi nýju
félög gefa aukna breidd í körfuboltalandslagið og gefa
eldri félögum meiri samkeppni.
Pétur Ingvarsson, þjálfari Hamars, skýrði frá gengi
liðsins og hvað væri framundan og kvaðst ánægður
með hversu mörg stig væru komin í hlut Hamars það
sem af er tímabilinu. Bæði Einar og Pétur svöruðu svo
fyrirspurnum klúbbmeðlima í lok fundarins. Garðar
Árnason formaður klúbbsins var ánægður með komu
Einars Bollasonar til Hveragerðis og kvað slíka heim-
sókn vera hvalreka fyrir körfuknattleiksáhugafólk í
Hveragerði.
Fjöldi stuðn-
ingsmanna
vekur athygli
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Bakhjarlar: Auðunn Guðjónsson, í stjórn stuðnings-
mannaliðsins, Lárus Friðfinnsson, formaður Körfu-
knattleiksd. Hamars, Einar Bollason heiðursgestur,
Svavar Pálsson og Faheem Nelson, leikmenn Hamars.