Morgunblaðið - 06.12.2003, Blaðsíða 34
LANDIÐ
34 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sauðárkrókur | Í Hlíðarhverfinu
á Sauðárkróki býr Aðalsteinn J.
Maríusson múrarameistari, sem
fengist hefur við sitt af hverju í
múrverkinu og störfum því
tengdu um dagana. Gömul hús
eru miklir dýrgripir í augum
Aðalsteins og hefur hann farið
víða um land og gert við og lag-
fært gömul hús, og er skemmst
að minnast prestbústaðarins á
Sauðanesi við Þistilfjörð, sem
var að hruni kominn, en er nú
kominn í upprunalegt stand og
verður í framtíðinni stað-
arprýði. Þá vann hann við veru-
legar viðgerðir á sóknarkirkju
Þingeyringa við Dýrafjörð, og
fleiri kirkjur hafa notið að-
hlynningar hjá Alla múrara og
endurheimt fyrra útlit og feg-
urð.
Í haust sagðist Aðalsteinn
hafa gert það upp við sig að nú
væri hann hættur þessu flakki
um landið og nú mundi hann
snúa sér alfarið að því að selja
flísar og leggja þær í heimahús
og stofnanir, helst á öll gólf, því
að flísar væru með bestu gólf-
efnum og gætu sem best notið
sín hvar sem væri í íbúðum
fólks, hvað þá í stofnunum af
hvaða tagi sem væri.
Í þessu augnamiði end-
urskipulagði hann bílskúrinn
sinn og hefur nú þar til sýnis
verulegt úrval flísa af öllum
stærðum og gerðum og sagðist
hann, ef sérstakar óskir kæmu,
geta útvegað flest það sem í
þessum vöruflokki væri. Þá
sagðist hann einnig vera með
mikið úrval sýnishorna af vegg-
flísum bæði fyrir baðherbergi
og eldhús.
Aðalsteinn sagði að það væri
auðvitað alltaf viss áskorun að
sjá gamalt steinhús í nið-
urníðslu, en nú væri þeim þætti
hjá sér lokið og nú ætlaði hann
sér að einbeita sér að hinu.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Alli múrari við sýnishorn af flísum: Viss áskorun að sjá gamalt steinhús í niðurníðslu, en þeim þætti er lokið.
Alli múrari á Króknum hættur
að gera upp gömul hús
Mývatnssveit | Laufabrauðsgerð kallar á
samstillt átak hugar og handa. Algengt að
fleiri heimili taki sig saman við þetta verk
sem kallar á margar iðnar hendur við að
hnoða upp í, fletja út, skera, bretta og steikja
laufabrauðið. Handtökin eru mörg og mik-
ilvægt að allir leggi hönd á plóg, þannig verð-
ur verkefnið skemmtilegra og brauðið
bragðast betur. Sagt var frá því hér í blaðinu
á dögunum að nágrannakonurnar Kristín
Jónsdóttir í Álftagerði og Gerður Benedikts-
dóttir á Skútustöðum hafa nú í meira en 20
ár haft þann sið að hjálpa hvor annarri við
laufabrauðsgerðina. Þær fara þá hvor til
hinnar með fólk sitt, létta sér þannig verkið
og gleðjast með glöðum í skammdeginu. Þá
birtist mynd af Kristínu og barnabörnum
hennar en mynd af Gerði komst aldrei alla
leið í blaðið, vegna mistaka, og er bætt úr því
hér. Gerður notar hníf við skurðinn og vitnar
laufakakan á borðinu um smekkvísi og kunn-
áttu þess sem hana skar.
Laufabrauðsgerð
Sauðárkrókur | Heimismenn í Skagafirði
héldu árlega aðventutónleika á föstudags-
kvöldi fyrir rúmri viku í félagsheimilinu Mið-
garði og eins og oftast áður var húsfyllir.
Að þessu sinni komu fram þrír einsöngv-
arar með kórnum, tveir kórfélagar, þeir Stef-
án Öxndal Reynisson og Sigfús Pétursson,
en sérstakur gestur þeirra Heimismanna var
fr. Margrét Stefánsdóttir, sem söng með
kórnum nokkur lög.
Áheyrendur þökkuðu einsöngvurunum
með langvinnu lófataki og urðu þeir og kór-
inn að syngja mörg aukalög, en að venju lauk
tónleikunum með því að þau Margrét og Sig-
fús sungu jólalagið Heims um ból með kórn-
um.
Páll Dagbjartsson, formaður kórsins,
sagði að það væri alltaf sérstaklega ánægju-
legt að hefja aðventuna með þessum hefð-
bundnu tónleikum og að hann vonaði að
áheyrendur nytu þess eins vel og þeir kór-
félagar að eiga þessa afslöppuðu og notalegu
stund í upphafi þess tíma sem oftar en ekki
einkenndist af hraða og spennu.
Ekki sagði Páll þá kórfélaga slá slöku við í
jólamánuðinum því nú væri á fullu undirbún-
ingur fyrir þrettándatónleikana, sem hafa
um nokkurt skeið verið árvissir hjá kórnum.
Þeir tónleikar væru með öðru sniði en hinar
hefðbundnu söngskemmtanir kórsins, því þá
kæmi fram ræðumaður er flytti gestum hug-
vekju, oftar en ekki á léttari nótunum, og að
þessu sinni mundi Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, fyrrverandi borgarstjóri, lesa Skag-
firðingum pistilinn.
Vel heppnaðir
aðventutón-
leikar Heimis
í Miðgarði
Akranes | Á aðalfundi Golfklúbbs-
ins Leynis á Akranesi á dögunum
kom m.a. fram að umferð um
Garðavöll fer vaxandi ár frá ári og
voru alls 14.500 golfhringir leiknir
sumarið 2003 sem nemur um 17%
aukningu á milli ára. Að mati
stjórnar klúbbsins ætti hinsvegar
18 holu golfvöllur að geta borið um-
ferð sem er rúmlega helmingi
meiri, eða um 30.000 golfhringir á
ári.
Gísli S. Einarsson var endur-
kjörinn formaður klúbbsins og
Rósa Mýrdal var kosin varamaður
í stjórn. Aðrir stjórnarmenn eru
Lárus Arnar Pétursson, Reynir
Jónsson, Ingþór Bergmann Þór-
hallsson og Bjarki Jóhannesson.
Áslaug Rafnsdóttir lét af stjórnar-
störfum.
Félagar í GL eru 374 og þar af
um 110 unglingar og börn 18 ára og
yngri. Ársreikningar voru lagðir
fram og þar kom m.a. fram að
rekstrartekjur voru rúmar 34,5
millj. kr. og rekstrargjöld voru
rúmar 33 millj. kr. Með tilliti til af-
skrifta, annarra tekna og gjalda og
fjármagnsgjalda var tap ársins
17.797 kr. Skuldir nema 17 millj-
ónum.
Frá því að 18 holu golfvöllur var
tekinn í notkun á Akranesi árið
2000 hafa tekjur af gestaspilurum
frá öðrum byggðarlögum orðið
stór þáttur í tekjuöflun klúbbsins.
GL eignaðist tvo meistara á Ís-
landsmóti eldri kylfinga en í flokki
70 ára og eldri.
Sigraði Guðmundur Valdimars-
son án forgjafar og Alfreð Viktors-
son varð meistari með forgjöf. Þeir
léku báðir með landsliði öldunga í
september í Portúgal. Stefán Orri
Ólafsson var valinn í landsliðshóp
karla haust en gat ekki gefið kost á
sér í það verkefni. Stúlknasveit GL
varð í 3. sæti í sveitakeppni GSÍ í
ágúst, en þetta er í fyrsta sinn sem
stúlknasveit keppir fyrir GL.
Kvennasveit Leynis fékk silfur
sveitakeppni GSÍ og fer upp í 1.
deild að ári. Íslandsmót 35 ára og
eldri var haldið á Akranesi í byrjun
júlí og þar tóku þátt 180 keppendur
og er mótið það fjölmennasta hjá
golfklúbbnum til þessa. Á næsta
ári fer sjálft Íslandsmótið í högg-
leik fram á Garðavelli.
Umferð um Garðavöll fer vaxandi á milli ára
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Jón Elís Pétursson og Gunnar Júlíusson, kylfingar úr Leyni, ræða málin
við fyrsta teig í blíðviðrinu á Landsmóti 35 ára og eldri.
Jólaljós á Iðubrú | Kveikt verður á jóla-
ljósunum á brúinni yfir Iðu við Laugarás í
dag, laugardaginn 6. desember, kl. 17. 30.
Sú hefð hefur skapast að þegar ljósin eru
kveikt safnast íbúar og sumarhúsafólk sam-
an á Iðufelli og eiga þar saman stund við
söng, frásagnir og tilheyrandi veitingar.
Þetta verkefni er í umsjá Framfarafélags
Laugaráss og á nú 5 ára afmæli.
Siglufjörður | Í haust var byggð ný bryggja
sem hlotið hefur nafnið Roaldsbryggja
beint fram af Síldaminjasafninu á Siglu-
firði. Bryggjan er samstarfsverkefni Sigl-
ingastofnunar, Hafnarsjóðs Siglufjarðar og
Síldarminjasafnsins. Kostnaður er 5,7 millj-
ónir. Bryggjan er 51 metri að lengd og þrír
á breidd byggð úr furu og eingöngu ætluð
fyrir gangandi umferð. Tilgangur með
henni er að við hana liggi smærri bátar
bæði heimamanna og ferðamanna en sífellt
færist í vöxt að fólk komi í heimsókn til
bæjarins á margs konar sportbátum. Þá
verður bryggjan einnig í framtíðinni hluti
af starfstöð safnsins.
Ekki eina hafnarframkvæmdin
,,Aðkoma Síldarminjasafnsins að þessari
framkvæmd er sú að við lögðum til alla
staurana sem bryggjan stendur á. Ég tel að
fjárhagslega hafi munað drjúgt um framlag
okkar. Það er mjög gott að fá þessa
bryggju hérna beint framan við safnið. Hún
verður staðarprýði, gefur ýmsa möguleika
varðandi ferðamenn og setur skemmtilegan
svip á safnsvæðið,“ sagði Örlygur Krist-
finnsson, safnstjóri Síldarminjasafnsins,
þegar fréttaritari spurði hann um fram-
kvæmdina á dögunum.
Þetta er ekki eina hafnarframkvæmdin í
Siglufirði á þessu ári. Nú stendur yfir vinna
við endurnýjun á viðlegukanti smábátahafn-
arinnar, svokölluðum vesturkanti. Þar var í
haust rifin burt ónýt trébryggja. Sú nýja
sem nú er í byggingu er 47 metrar að lengd
og þrír og hálfur að breidd. Þessi bryggja
er að mestu hönnuð fyrir gangandi umferð
en þó er hluti hennar byggður þannig að
keyra megi út á hana t.d með veiðarfæri
o.fl. Bryggjan er byggð úr harðviði sem
upprunninn er í Suður-Ameríku og Afríku.
Harðviðurinn gerir hana margfalt ending-
arbetri en ef um venjulegan við væri að
ræða. Kostnaður við endurnýjun á vest-
urkantinum er 8,7 milljónir króna.
Vonandi búið fyrir jól
Verktaki við báðar þessar framkvæmdir
er Guðlaugur Einarsson, bryggjusmiður úr
Hafnarfirði. Hann sagði að öll fram-
kvæmdin í Siglufirði hefði gengið vel, tíð-
arfar hefði verið hagstætt og þeir vonuðust
til að klára viðlegukantinn fyrir jól. Þrír
menn hafa að jafnaði unnið við þessi verk.
Til stendur að dýpka fyrir framan nýju
bryggjuna þannig að þar verði a.m.k.
þriggja metra dýpi en ekki er búið að
semja við verktaka um þá vinnu enn.
Ný timburbryggja við Síldarminjasafnið
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Þeir voru að vinna við Roaldsbryggju fyrr í
haust. F.v. Páll Sævar Theódórsson, Luvis
Pétursson og Guðlaugur Einarsson verktaki.
♦ ♦ ♦