Morgunblaðið - 06.12.2003, Qupperneq 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Jólaskeið
Ernu
kr. 6.500
Gull- og
Silfursmiðjan Erna
Skipholti 3 • sími 552 0775 • www.erna.is
Landsins
mesta úrval
Fallega
íslenska silfrið
RAUÐARÁRSTÍG 14-16, SÍMI 551 0400 • KRINGLUNNI, SÍMI 568 0400 www.myndlist.is
w
w
w
.d
es
ig
n
.is
'
2
0
0
3Fæst um land allt
Dreifingara›ili:
Tákn heilagrar
flrenningar
Til styrktar
blindum
Tilvalinjólagjöf
skrauti sem þau hafa gert sjálf í leikskólanum. Á
jólahátíðinni lögðu þau svo lokahönd á verkið og
fönguðu með því að dansa í kringum jólatréð og
spjalla við nokkra jólasveina sem villtust alltof
snemma úr fjöllunum.
Breiðholt | Yfir 100 leikskólakrakkar komu saman í
göngugötunni í Mjóddinni í gær og héldu jólahátíð.
Þessir krakkar komu frá leikskólunum Arnarborg,
Bakkaborg og Fálkaborg. Undanfarna daga hafa
börnin komið og skreytt jólatré í Mjóddinni með
Morgunblaðið/Eggert
Krakkarnir fylgdust vel með jólasveinunum.
Jólahátíð í Mjóddinni
Ljósmynd/Guðni Harðarson
Skyrgámur stalst snemma til byggða
og bauð krökkunum skyr að borða.
Höfuðborgarsvæðið | Hefð er fyrir
því að stærstu bæjarfélögin á höf-
uðborgarsvæðinu tendri ljós á
stórum jólatrjám á áberandi stöð-
um í byrjun desember. Jólatrén
eru oftast gjöf frá vinabæjum er-
lendis.
Ljósin verða tendruð á Óslóar-
trénu á Austurvelli á morgun,
sunnudag. Lúðrasveit Reykjavíkur
hefur dagskrána kl. 15.30 með því
að leika jólalög og síðan tekur
Dómkórinn við áður en Kari Pahle
borgarfulltrúi og formaður menn-
ingar- og menntamálanefndar færir
borgarstjóra, Þórólfi Árnasyni, og
öðrum Reykvíkingum tréð að gjöf.
Alexander Örn Númason, 10 ára,
sem er jólatrésbarnið í ár, fær
þann heiður að kveikja ljósin á
trénu, en fyrir nákvæmlega 20 ár-
um var það móðir Alexanders Arn-
ar, Carolin Guðbjartsdóttir, sem
kveikti á trénu.
Í dag kl. 14 verða tendruð jóla-
ljós við Flensborgarhöfn í Hafn-
arfirði, jólatréð sem þar stendur er
gjöf frá vinabænum Cuxhaven.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar spilar,
Wolf Rudiger Dick, heiðurskonsúll
Íslands í Cuxhaven, flytur kveðju
og tendrar jólaljósin og sendiherra
Þýskalands, Johann Wenzl flytur
kveðju. Kvennakór Hafnarfjarðar
og leikskólabörn af Hjalla taka lag-
ið og formaður Hafnarstjórnar,
Eyjólfur Sæmundsson, flytur
ávarp.
Kópavogsbúar geta séð þegar
kveikt verður á ljósunum á jóla-
trénu frá vinabænum Nörrköping
kl. 16.45 í dag á flötinni fyrir fram-
an Gerðarsafn og Safnahúsið. Þar
mun Skólahljómsveit Kópavogs
flytja jólalög, ávarp flytja sendi-
herra Svíþjóðar Bertel Jobeus og
Sigurður Geirdal bæjarstjóri.
Skólakór Kársness syngur og jóla-
sveinar koma í heimsókn og
skemmta fólki.
Í dag kl 16.00 verða ljósin á
jólatré Mosfellsbæjar tendruð.
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar leik-
ur og Barnakór Varmárskóla syng-
ur nokkur lög og jólasveinar skjót-
ast til byggða til að skemmta
börnunum.
Mikið verður um að vera á
Garðatorgi í dag þegar ljósin verða
tendruð á jólatrénu fyrir utan ráð-
hús Garðabæjar kl. 15.45. Jólatréð
er gjöf frá vinabænum Asker í
Noregi. Gera má ráð fyrir að jóla-
sveinar komi til byggða og
skemmti sér og öðrum.
Jólaljós víða
tendruð um helgina
Kveikt á ljósunum á jólatrénu í
Hafnarfirði í fyrra.
Morgunblaðið/Jim Smart
Jólamarkaður á Lækjartorgi | Í
dag verður opnaður jólamarkaður á
Lækjartorgi en þetta er í annað sinn
sem hann er settur þar upp. Mark-
aðurinn verður nú með öðru sniði en
í fyrra, þar sem söluaðilar leigja lítil
tréhús fyrir varning sinn.
Jólamarkaðurinn verður opinn á
föstudögum, laugardögum og sunnu-
dögum til jóla og verður afgreiðslu-
tími frá kl. 13 til kl. 18 eða 22, eftir
því hve lengi er opið í verslunum í
miðborginni. Markaðurinn verður
einnig opinn 22. desember og á Þor-
láksmessu verður opið til kl. 23.
Á boðstólum verða fjölbreyttar
gjafa- og jólavörur sem og íslensk
jólatré og greinar, bæði fura og
rauðgreni. Í einu jólahúsinu verða
léttar veitingar.
Á meðan á jólamarkaðinum stend-
ur verða ýmsar uppákomur og í dag
verður markaðurinn opnaður með
brassbandi Svansins kl. 13 og jóla-
sveinar koma og Kammerkór
Reykjavíkur syngur.
Þróunarfélag miðborgarinnar hef-
ur veg og vanda af jólamarkaðinum.
Loftmyndir á Netinu | Á vef
Garðabæjar er núna hægt að leita að
heimilisföngum og sjá á loftmynd
hvar viðkomandi hús er.
Til að finna hús er heimilisfangið
skrifað, í nefnifalli, í gluggann
hægra megin á forsíðunni og smellt
á örina fyrir neðan hann. Þá kemur
upp gluggi með loftmynd og rauðum
punkti ofan á húsinu sem beðið var
um.
Skíðadeild til fyrirmyndar |
Skíðadeild Breiðabliks fékk nýver-
ið gæðaviðurkenningu frá Íþrótta-
og Ólympíusambandi Íslands fyrir
vel skipulagða starfsemi, vel
menntaða þjálfara og öflugt stjórn-
arstarf. Verðlaunin kallast Fyrir-
myndarfélag ÍSÍ.
Ný stjórn, sem tók við síðastliðið
vor undir formennsku Hildar Ást-
þórsdóttur, vann í sumar veglega
handbók sem foreldrar fengu af-
henta í Bláfjöllum í haust. Síðan
hefur efni bæst við bókina sem
verður á vefnum www.breida-
blik.is/skidi. Í handbókinni koma
fram þær upplýsingar sem eru
grundvöllur gæðaviðurkenningar
ÍSÍ.
Á heimasíðu Breiðabliks kemur
fram að til að hljóta gæðaviður-
kenningu þarf deildin að uppfylla
skilyrði sem eru sett fram í níu lið-
um. Þar á meðal er mikil áhersla
lögð á skýr íþróttaleg og félagsleg
markmið, starf með þjálfurum,
jafnréttismál og foreldrastarf. Eitt
af því sem farið er fram á af fyr-
irmyndarfélagi er að fulltrúi iðk-
enda sé í stjórn þess og hefur
Katrín Ósk Þorsteinsdóttir tekið
að sér það hlutverk.
Morgunblaðið/Eggert
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, af-
henti Hildi Ástþórsdóttur, stjórn-
arformanni skíðadeilar Breiða-
bliks, viðurkenninguna.
Börn undir grænum boga |
Nýtt merki fræðsluskrifstofu
Kópavogs var kynnt um daginn en
fræðsluskrifstofan hefur ekki haft
sérstakt merki áður. Merkið hann-
aði Sigrún Magnúsdóttir.
Í merkinu eru þrjú börn á
þremur aldursstigum sem veifa
undir grænum boga sem minnir á
boga Kópavogskirkju. Boginn end-
ar í blýanti sem táknar skólastarf
á öllum stigum. Áletrunin
„Fræðsluskrifstofa Kópavogs“ er
svo grunnurinn sem merkið stend-
ur á.
Stefnumótun kynnt | Skóla-
nefnd Kópavogs kynnti almenningi
drög að stefnumótun sinni á dög-
unum. Áður höfðu drögin verið
send samtökum kennara, skóla-
stjóra og foreldra til kynningar auk
þess sem þau voru birt á heimasíðu
bæjarins. Ármann Kr. Ólafsson fór
yfir drögin og kynnti áherslur
þeirra.
Allmargar athugasemdir komu
fram auk fyrirspurna sem skóla-
nefndarmenn svöruðu, segir á
heimasíðu bæjarins.
V
ín
m
e
ð
jó
la
m
a
tn
u
m
V
ín
m
e
ð
jó
la
m
a
tn
u
m Í tilefni af útkomu bæklingsins
munu birgjar áfengis, í samvinnu við ÁTVR, halda kynningu á vínum
með jólamatnum.
V í n m e ð j ó l a m a t n u m
Á kynningunni gefst fólki kostur á að kynna sér bæklinginn og smakka á
vínunum ásamt þeim mat sem þau eiga best við. Rúmlega 80 vín-
tegundir verða kynntar, ásamt smakkprufum af lambakjöti, nauta-
kjöti, hangikjöti, hamborgarhrygg, kalkúna, villibráð, fiski og ábætis-
réttum.
Aðgangseyrir er 1000 krónur.
Miðafjöldi takmarkaður. 20 ára aldurstakmark.
Laugardaginn 6. desember
í Hvammi á Grand Hótel frá kl. 16-19.