Morgunblaðið - 06.12.2003, Blaðsíða 79
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 2003 79
Rangt nafn
Rangt var farið með nafn Bjarna
Freys Bjarnasonar í myndatexta
með frétt um fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar í blaðinu í gær.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
Engilbert Olgeirsson
Föðurnafn og starfsheiti Engil-
berts Olgeirssonar, formanns hnefa-
leikanefndar ÍSÍ, féll brott í frétt
blaðsins í gær. Beðist er velvirðingar
á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Kristilega útvarpsstöðin Lindin
fm 102,9 heldur jólamarkað í
Smáralind kl. 11–18 í dag, laugar-
daginn 6. desember. Kökur, hand-
verk, kristileg tónlist, bækur o.fl. er
til sölu, til styrktar útvarpsstöðinni.
Nikulásarhátíð í Ráðhús Reykja-
víkur Goethe-Zentrum býður til
Nikulásarhátíðar í dag, laugardag kl.
17–18.30. Sagt verður frá heilögum
Nikulási, sungin aðventulög og boðið
upp á smákökur og glögg. Gunnar
Guðbjörnsson syngur og búast má
við þýska jólasveininum Nikulási.
Svölurnar selja jólakort í Kringl-
unni í dag. Svölurnar, félag fyrrver-
andi og núverandi flugfreyja, verða í
Kringlunni í dag laugardag kl. 10–17
með sölu á jólakortum sínum. Aðal
fjáröflun félagsins er sala jólakorta.
Svölurnar hafa á 30 ára starfsafmæli
sínu ákveðið að styrkja Rjóðrið,
hjúkrunarheimili í Kópavogi, fyrir
langveik börn, sem áætlað er að opni
snemma á næsta ári.
Jólafundur LAUFS verður haldinn í
dag, laugardaginn 6. desember, kl.
14–16 í húsakynnum Öryrkjabanda-
lagsins, Hátúni 10, jarðhæð. Pétur
Þorsteinsson mun flytja hugvekju.
Fræðslufundur Geðhjálpar verður
haldinn í dag, laugardaginn 6. des-
ember, kl. 14 að Túngötu 7. Einar
Guðmundsson geðlæknir mun fjalla
um: Geðhvörf II – nýr sjúkdómur?
Boðið er upp á kaffiveitingar.
Í DAG
Aðventuhátíð Bergmáls Aðven-
tuhátíð líknar- og vinafélagsins
Bergmáls verður haldin í Háteigs-
kirkju á morgun, sunnudaginn 7.
desember, kl. 16. Sigrún Hjálmtýs-
dóttir syngur einsöng og Skagfirska
söngsveitin syngur undir stjórn
Björgvins Valdimarssonar. Jóla-
hugvekju flytur Jón Helgi Þórarins-
son. Að lokinni dagskrá verða veit-
ingar fram reiddar í safnaðarheimili
kirkjunnar.
Jólaskemmtun MS-félags Íslands
Árlegt jólaball MS-félags Íslands
verður haldið á morgun, sunnudag-
inn 7. desember, kl. 14–16 í húsi MS-
félagsins á Sléttuvegi 5. Þar verður
m.a. jólahappdrætti, jólasveinn og
veitingar. Miðaverð er 500 kr., frítt
fyrir börn yngri en 12 ára.
Gönguferðir Göngugarpa ÍT ferða
í desember Sunnudaginn 7. desem-
ber er hellaferð í nágrenni Helga-
fells. Bent er á að taka með sér vasa-
ljós. Hinn 14. desember, Rauðhólar
og nágrenni. 21. desember, Ástjörn
og Ásfjall, stutt ganga, og 28. des-
ember, Vogar og Vogastapi.
Mæting kl. 11 við Hafnarfjarðar-
kirkjugarð nema 14. desember þá er
mæting við Vetnisstöðina (Skalli/
Skeljungur) við Vesturlandsveg.
Mætið með nesti. Frekari upplýs-
ingar á heimasíðu ÍT-ferða www.it-
ferdir.is
Hönnuðir úr LÍH selja í Kolaport-
inu á morgun Nokkrir ungir hönn-
uðir úr Listaháskóla Íslands, LÍH,
munu vera í Kolaportinu á morgun,
sunnudaginn 7. desember, að selja
hönnun sína (áprentaða boli) kl. 10–
16. Salan er til styrktar námsferð á
alþjóðlegu hönnunarsýninguna í
Mílanó í vor.
Á MORGUN
SJÚKRALIÐAFÉLAG Íslands af-
henti skólastjóra Heilbrigðisskóla
Fjölbrautaskólans við Ármúla skjá-
varpa og fartölvu fyrir verknáms-
stofu sjúkraliðabrautar skólans. Af-
hendingin fór fram við hátíðlega
athöfn í skólanum föstudaginn 21.
nóvember síðastliðinn.
Fjölmenn sveit úr forystu Sjúkra-
liðafélagsins og úr sérnámi sjúkra-
liða í hjúkrun aldraðra var mætt í
stofu 25A þennan dag, en þar fer
verknám sjúkraliða í Ármúlaskól-
anum fram.
Kristín Á. Guðmundsdóttir, for-
maður Sjúkraliðafélagsins, afhenti
gjöfina og sagði við það tækifæri að
Ármúlaskólinn hafi mörg und-
anfarin ár verið ein aðaldriffjöðrin
í því verkefni að mennta sjúkraliða-
stéttina. Skólinn fékk sérstaka við-
urkenningu frá sjúkraliðum árið
1996, á 30 ára afmæli stéttarinnar,
og enn líti sjúkraliðar mjög til Ár-
múlaskóla að því er varðar aukna
menntun stéttarinnar.
Á gjafabréfinu stendur: „Gjöf til
Heilbrigðisskólans, Fjölbrautaskól-
ans við Ármúla, frá Sjúkraliða-
félagi Íslands. Gjöf félagsins, skjá-
varpi og tölva, sem komið er fyrir í
verknámsstofu sjúkraliðabrautar,
stofu 25A, er gefin í trú á að lið-
veisla félagsins verði til að auka og
bæta menntun sjúkraliða.“
Sölvi Sveinsson skólameistari tók
við gjafabréfinu sem þau Kristín
festu í sameiningu uppi á vegg í
skólastofunni. Hann þakkaði þessa
höfðinglegu gjöf og sagði Ármúla-
skólann telja Sjúkraliðafélagið
meðal fremstu hollvina skólans,
enda hefði það sýnt skólanum
áhuga frá fyrstu tíð. Unnið væri að
því að bæta úr brýnni þörf Heil-
brigðisskólans fyrir aukið rými
með nýrri byggingu sem til stæði
að reisa á næstu árum.
Sölvi Sveinsson skólameistari og Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður
Sjúkraliðafélags Íslands, festa gjafabréfið upp á vegg.
Ármúlaskóli fær skjá-
varpa og tölvu að gjöf
Ilmandi gjafakassi fyrir ungar konur
Ver› 2.999 kr.
Gjafir sem gæla við líkamann
Í verslunum Lyfju færðu úrval af dekurgjöfum
Gosh snyrtivörusett
Ver› frá 1.848 kr.
– með í pakkann
Glæsilegar
sokkabuxur
Dekurpakkinn
hennar
Ver› 2.490 kr.
www.thjodmenning.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111